Fréttablaðið - 22.03.2003, Side 39
LAUGARDAGUR 22. mars 2003
Óskarsverðlaunin 2003:
Þjóðvarðliðið í viðbragðsstöðu
ÓSKARINN Þjóðvarðlið Bandaríkj-
anna hefur verið fengið til þess
að sjá um öryggisgæslu Ósk-
arsverðlaunahátíðarinnar. Aka-
demían óttast að friðarsinnar
nýti sér tækifærið til þess að
mótmæla stríðinu gegn Írak.
Lögreglan í Los Angeles hef-
ur staðfest að sérstakt rými
verði gert fyrir framan Kodak-
leikhúsið fyrir 2000 mótmæl-
endur. Mótmælasamtökin „Not
In Our Name“ hafa verið að
hvetja til mótmæla fyrir framan
leikhúsið og er því búist við
margmenni.
Umsjónarmenn hafa þegar
sagt að yfirbragð hátíðarinnar
verði rólegra þar sem þjóðin
eigi í stríði.
Yfirvöld í Kaliforníu segja að
Þjóðvarðliðið sé í stakk búið að
finna efnavopn ef þau leynist á
svæðinu. Öllum ætti því að vera
óhætt á svæðinu.
Margir leikaranna ætla að
bera sorgarborða á hendi sér til
þess að votta bandarískum her-
mönnum í Írak virðingu sína. ■
Will Smith og Tom
Hanks mæta ekki
Óskarsverðlaunahátíðin í ár verður meira en lítið undarleg. Engin at-
höfn á rauða teppinu, fjölmiðlafólki er meinaður aðgangur og nú til-
kynna stjörnurnar hver af annarri að þær ætli ekki að mæta.
ÓSKARSVERÐLAUNIN Leikarinn Will
Smith hefur tilkynnt að hann ætli
sér að vera fjarverandi á Ósk-
arsverðlaunahátíðinni í ár vegna
árásanna á Írak. Hann var fyrsti
Hollywood-leikarinn til þess að
afboða komu sína.
Tom Hanks tilkynnti einnig í
gær að hann og eiginkona hans
ætluðu að halda sig heima. Hann
verður því ekki á staðnum til þess
að samgleðjast vini sínum Paul
Newman ef hann hreppir Óskar-
inn fyrir leik í aukahlutverki
myndarinnar „Road to Perdition“.
Nú íhuga fleiri leikara að
fylgja fordæmi þeirra. Má þar
nefna Meryl Streep, sem tilnefnd
er fyrir aukahlutverk sitt í
„Adaptation.“, og Cate Blanchett,
sem á að kynna ein verðlaunin.
Fatahönnuðurnir Giorgio
Armani, Donatella Versace og
Matthew Williamson móðguðust
sárlega þegar athöfninni á rauða
teppinu var aflýst enda hefur sá
hluti yfirleitt verið mikil auglýsing
fyrir hugarsmíðar þeirra.
Óskarsverðlaunaakademían
hefur hvatt þá leikara sem tengj-
ast hátíðinni á einn eða annan hátt
til þess að standa við boðun sína.
Annars gætu hæglega skapast afar
erfiðar aðstæður.
Eitthvað var Nicole Kidman
búin að gefa í skyn að það væri
óvíst hvort hún myndi mæta ef til
stríðs kæmi. Talsmenn hennar
segja þó að hún verði á staðnum,
en leikkonan hefur sjálf ekki gefið
neinar yfirlýsingar um það.
Margir Hollywood-leikaranna
hafa sagt að óþægilegt væri að
hafa fjölmiðlamenn á staðnum og
hefur þeim því verið bannaður að-
gangur. Þeir hafa gefið þá ástæðu
að margir Bandaríkjamenn myndu
reiðast þeim ef það yrði greinilegt
að þeir væru að skemmta sér. Aðr-
ir Bandaríkjamenn myndu svo
reiðast þeim ef þau væru grafal-
varleg. Sama hvernig þau myndu
haga sér þá litu þau alltaf út eins
og þau væru að leika.
Gamanleikarinn Steve Martin á
erfitt hlutskipti fyrir höndum því
hann hefur fengið lista yfir hluti
sem hann má ekki gera grín að.
biggi@frettabladid.is
Stríðið og skemmatlífið:
Hernaðurinn truflar
afþreyingariðnaðinn
STRÍÐSÓTTI Skemmtanaiðnaðurinn í
Bandaríkjunum er farinn að finna
fyrir áhrifum stríðsins í Írak og
viðburðum er nú slegið á frest í
gríð og erg. Tónlistarmenn og
leikarar vilja lítið vera á ferðinni
og kæra sig sumir hverjir einfald-
lega ekki um að troða upp á stríðs-
tímum. Óskarsverðlaunin eru að
vísu enn á dagskrá en hætt er við
að einhverjar stórstjörnurnar
kjósi að mæta ekki.
Finnski leikstjórinn Aki
Kaurismäki, sem leikstýrir mynd-
inni Maður án fortíðar, sem er til-
nefnd sem besta erlenda myndin,
hefur lýst því yfir að hann og hans
fólk muni ekki láta sjá sig í mót-
mælaskyni.
Framleiðslu á fjórðu Mad Max-
myndinni með Mel Gibson í aðal-
hlutverki hefur verið frestað og
tökur sem hefjast áttu í Namibíu í
júlí munu væntanlega bíða
haustsins.
Frönsku hjónin Angela Ghe-
orghiu, sópran, og Roberto
Alagna, tenór, hafa slegið tvær
síðustu sýningarnar á Faust í
Metropolitan óperunni af og eru
farin aftur heim til Frakklands.
Talsmaður óperunnar segir að þau
hafi hætt við vegna ótta við stríð-
ið og hryðjuverk.
Íþróttaviðburðum hefur einnig
verið frestað og það virðist helst
vera að bókaútgáfa sé að glæðast
í öllum hamaganginum en bækur
um stríðið frá ýmsum sjónarhorn-
um munu streyma á markað á
næstunni. ■
ÓSKAR UNDIRBÚINN
Hér sést verkamaður fyrir utan Kodak-leik-
húsið gera öryggisráðstafanir fyrir framan
innganginn.
TOM HANKS
Mætir ekki þrátt fyrir að myndirnar „Road
to Perdition“ og „Catch Me if You Can“ séu
tilnefndar í nokkrum flokkum.
MAÐUR ÁN FORTÍÐAR
Aki Kaurismäki er á móti stríðinu
og ætlar að skrópa hjá Óskari í
mótmælaskyni.
ÓSKAR FÆGÐUR
Hér sést verkamaður „gullhúða“ Óskars-
stytturnar með spreybrúsa.
WILL SMITH
Ætlar að vera fjarri góðu gamni í ár. Hann
var það reyndar líka í fyrra, þrátt fyrir að
vera tilnefndur fyrir hlutverk sitt í „Ali“.