Fréttablaðið - 22.03.2003, Qupperneq 40
22. mars 2003 LAUGARDAGUR
Hin árlega söngkeppni fram-haldsskólanema verður haldin
í kvöld og Sjónvarpið verður með
beina útsendingu úr Íþróttahöll-
inni á Akureyri þar sem fulltrúar
27 framhaldsskóla stíga á svið.
Margir þeirra sem hafa stigið
sín fyrstu skref í þessari keppni
hafa síðar orðið landsþekktir
skemmtikraftar, t.d. Guðrún Árný
Karlsdóttir, Birgitta Haukdal og
Páll Óskar Hjálmtýsson. Það er því
aldrei að vita nema í hópnum sem
nú kemur fram leynist ein af stór-
stjörnum framtíðarinnar. Kynnar
kvöldsins eru Ellý Ármannsdóttir
og Þorsteinn Bachmann.
Áður en söngkeppnin hefst, eða
klukkan 20.50, sýnir Sjónvarpið
stuttmyndina Memphis, sem var
tekin í einu skoti. Þar er fylgst með
hópi fólks á óræðum stað úti á
landi. Allt er slétt og fellt á yfir-
borðinu, en þegar nánar er að gáð
er ekki allt sem sýnist. Leikstjóri
er Þorgeir Guðmundsson og hand-
ritshöfundur er Óttarr Ólafur
Proppé. Leikendur eru Benedikt
Erlingsson, Ragnhildur Gísladótt-
ir, Gunnar Jónsson, Helgi Björns-
son, Ásmundur Ásmundsson,
Ragnheiður Pálsdóttir og Henrik
Baldvin Björnsson.
Myndin hefur hlotið fjölda við-
urkenninga á kvikmyndahátíðum
víða um heim, var meðal annars
valin besta myndin á kvikmynda-
hátíðinni í Mílanó, fékk sérstök
verðlaun 20th Century Fox og
Farrelly-bræðra á kvikmyndahá-
tíð Columbia-háskóla í New York-
borg 2002, auk þess að vera til-
nefnd til Edduverðlauna sem stutt-
mynd ársins 2002. ■
Kvikmyndir
Á LAUGARDAGSKVÖLD
klukkan 20.50 sýnir Sjónvarpið
íslensku stuttmyndina Memphis.
15 mínútum síðar sýnir Sjón-
varpið beint frá söngkeppni
framhaldsskólanema.
Söngkeppni framhaldsskólanema
20.00 Vonarljós
21.00 Blandað efni
21.30 Ron Phillips
22.00 Billy Graham
Á Breiðbandinu má finna 28
erlendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru
6 Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
13.45 Enski boltinn (Liverpool -
Leeds) Bein útsending frá leik
Liverpool og Leeds United.
15.55 Enski boltinn (Arsenal -
Everton) Bein útsending frá leik
Arsenal og Everton.
18.00 NBA (SA Spurs - LA Lakers)
Bein útsending frá leik San
Antonio Spurs og Los Angeles
Lakers.
20.30 NBA (Toronto - Phila-
delphia) Bein útsending frá leik
Toronto Raptors og Philadelphia
76ers.
23.00 Meistaradeild Evrópu
(Fréttaþáttur) Farið er yfir leiki
síðustu umferðar og spáð í spilin
fyrir þá næstu.
0.00 US PGA Tour 2003 (Honda
Classic)
1.00 European PGA Tour 2003
(Qatar Masters)
2.00 Dagskrárlok og skjáleikur
9.00 Morgunstundin okkar
9.01 Disneystundin
9.55 Kobbi (2:13) (Kipper V)
10.25 Franklín (59:66)
10.50 Nýjasta tækni og vísindi
11.05 Vísindi fyrir alla (11:49)
11.15 Spaugstofan
11.40 Laugardagskvöld með
Gísla Marteini Endursýndur þáttur.
12.25 Mósaík
13.00 Formúla 1
15.30 Innanhússmeistaramót
Íslands í sundi Bein útsending frá
Vestmannaeyjum.
17.05 Markaregn
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.25 Eva og Adam (7:8)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
20.00 Noi, Pam og mennirnir
þeirra Heimildarmynd eftir Ásthildi
Kjartansdóttur um tvær taílenskar
frænkur sem búa með íslenskum
mönnum norður í landi. Myndin
var tilnefnd til Edduverðlaunanna
sem besta heimildarmyndin 2002.
21.15 Nikolaj og Júlía (1:24)
(Nikolaj og Julia) Danskur
myndaflokkur. Aðalhlutverk: Peter
Mygind, Sofie Gråbøl, Dejan Cukic,
Jesper Asholt, Sofie Stougaard og
Therese Glahn.
22.05 Helgarsportið
22.30 Hver er hræddur við
Virginíu Woolf? (Who’s Afraid of
Virginia Woolf?) Bandarísk
bíómynd frá 1966 byggð á leikriti
eftir Edward Albee. Aðalhlutverk:
Elizabeth Taylor, Richard Burton,
George Segal og Sandy Dennis.
0.35 Kastljósið
0.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
8.00 Addi Paddi
8.05 Lísa
8.10 Leirkarlarnir
8.15 Vaskir Vagnar
8.20 Litlir hnettir
8.25 Snjóbörnin
8.40 Tröllasögur
9.05 Svampur
9.55 Hjólagengið
10.20 Batman
10.45 Galidor
11.10 Lizzie McGuire
11.35 Veröldin okkar
12.00 Neighbours (Nágrannar)
13.50 60 mínútur (e)
14.35 Normal, Ohio (9:12) (e)
15.00 Nar mor kommer hjem
Aðalhlutverk: Kasper Emanuel
Stæger, Clara Johanne Simonsen
og Pernille Kåre Höier.1998.
16.15 Tónlist
16.40 Að hætti Sigga Hall (3:12)
17.10 Naked Chef 2 (6:9) (e)
17.40 Oprah Winfrey
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður
19.30 Viltu vinna milljón?
20.20 Sjálfstætt fólk (Örn
Árnason leikari)
20.50 Twenty Four (9:24)
21.40 Boomtown (9:22)
(Englaborgin)
22.25 60 mínútur
23.00 Catching Up With the
Osbourne
23.30 Rauði dregillinn á
Óskarnum
1.00 Óskarinn undirbúinn
1.30 Óskarsverðlaunin 2003
Bein útsending frá afhendingu
Óskarsverðlaunanna.
4.35 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TíVí
8.00 Monkeybone (Apaköttur)
10.00 Little City (Ringulreið)
12.00 The Flinstones in Viva Roc
14.00 Drive Me Crazy
(Ástarflækjur)
16.00 Monkeybone (Apaköttur)
18.00 Little City (Ringulreið)
20.00 The Flinstones in Viva Roc
(Steinaldarmennirnir í Vegas)
22.00 Ride With the Devil
(Stríðátök)
0.15 Romeo Must Die (Rómeó
skal deyja)
2.10 Rancid Aluminium (Ekki
sopið álið)
4.00 Ride With the Devil
(Stríðátök)
7.00 Meiri músík
14.00 X-TV..
15.00 X-strím
17.00 Geim TV
19.00 XY TV
20.00 Trailer
21.00 Pepsí listinn
0.00 Lúkkið
0.20 Meiri músík
12.30 Silfur Egils
14.00 The Drew Carrey Show (e)
14.30 The King of Queens (e)
15.00 Charmed (e)
16.00 Boston Public (e)
17.00 Innlit/útlit (e)
18.00 The Bachelor 2 (e)
19.00 Popp og Kók (e)
19.30 According to Jim (e)
20.00 Yes Dear
20.30 Will & Grace
21.00 Practice Bobby Donnell
stjórnar lögmannastofu í Boston og
er hún smá en kná. Hann og
meðeigendur hans grípa til ýmissa
ráða, sumra býsna frumlegra, til að
koma skjólstæðingum sínum
undan krumlu saksóknara, þar á
meðal hinnar harðskeyttu Helen
Gamble sem er samt mikil vinkona
þar og sannar þar með enn og
aftur að vinna og skemmtun þarf
ekki að fara saman (þó hún geti
gert það).
21.50 Silfur Egils (e)
23.20 Listin að lifa (e)
0.10 Dagskrárlok
Óskarsverð-
launahátíðin
2003
Stærstu stjörnurnar í kvikmynda-
borginni Hollywood koma sam-
an á Óskarsverðlaunahátíðinni.
Hátíðin verður sýnd í beinni út-
sendingu á Stöð 2 í nótt en
kynnir er leikarinn Steve Martin.
Valið um bestu myndina stendur
á milli Chicago, Gangs of New
York, The Hours, The Lord of the
Rings: The Two Towers og The
Pianist. Á undan hátíðinni verður
sýndur klukkutíma þáttur um
undirbúning hennar. Samantekt
frá afhendingu Óskarsverðlaun-
anna verður á dagskrá Stöðvar 2
annað kvöld klukkan 21.30.
Stöð 2
23.00 Sjónvarpið 22.30
Hver er hræddur við
Virginíu Woolf?
Bíómyndin Hver er hræddur við
Virginíu Woolf? var gerð árið
1966 eftir frægu leikriti Banda-
ríkjamannsins Edwards Albee.
Nick, ungur háskólakennari, og
Honey, konan hans, þiggja heim-
boð til starfsbróður hans og eig-
inkonu, George og Mörthu. Boð-
ið fer huggulega af stað en svo
fer allt fer í bál og brand þegar
George og Martha fara að nota
gesti sína til þess að vega hvort
að öðru. Leikstjóri er Mike
Nichols og hlutverkin leika þau
Elizabeth Taylor, Richard Burton,
George Segal og Sandy Dennis.
DAGSKRÁ
SUNNUDAGSINS
23. MARS
FÓLK Leikarinn heimsfrægi Mar-
lon Brando er sagður vera að
„berjast fyrir lífi sínu“ eftir að
hafa fengið hjartaáfall. Hinn 78
ára gamli leikari hefur átt við
hjartavandamál að stríða um ára-
bil en ítrekað neitað ráðlegging-
um lækna um að leggjast inn á
sjúkrahús.
Síðustu mánuði hefur hann
notast við súrefniskút sem hjálp-
ar honum að anda.
Brando er því afar illa á sig
kominn og telja ættingjar hans
að hann eigi skammt eftir ólifað.
Hann hefur litla matarlyst og
hefur lítið tjáð sig síðustu daga.
Brando hefur meðal annars
leikið í Guðföðurnum, Súperman
og Eyju dr. Moreau. ■
MARLON BRANDO OG ROBERT DE NIRO
Brando berst nú fyrir lífi sínu.
Marlon Brando:
Berst fyrir lífi sínu
SALUR á 101
Meðleigjandi
Við leitum að meðleigjanda með okkur að góðum 200 fm
fundarsal með öllum búnaði fyrir námskeið og/eða fundi.
Salurinn rúmar vel 35 manns fyrir námskeið og 60 manns á
fundum.
Salurinn er staðsettur við Austurbugt 3, 101 Reykjavík, og get-
ur salurinn verið laus bæði á dagtíma sem á kvöldin.
Upplýsingar gefur Ólafur
sími 892 7731 og netfang olinjall@islandia.is