Fréttablaðið - 22.03.2003, Page 45
Að fara á mótmælafundi. Sam-komur sem kosta ekki neitt.
Hittir marga og blandar geði með
tilgangi sem jafnvel getur verið
göfugur. Helstu mótmælafundir
sem í gangi eru:
Gegn Kárahnjúkavirkjun á
Austurvelli. Oft í hádeginu.
Gegn stríðinu í Írak. Yfirleitt
á Lækjartorgi eða þá í námunda
við bandaríska sendiráðið á Lauf-
ásvegi. Gatan er að vísu lokuð.
Mótmælum gegn samræmdum
stúdentsprófum er lokið. Ný mót-
mæli auglýst síðar. ■
45LAUGARDAGUR 22. mars 2003
Pondus eftir Frode Øverli
■ Ókeypis
Þú situr í
sætinu mínu,
Pondus!
En... ég get ekki
setið við glugg-
ann... sólskinið
lætur camem-
bertinn svitna!
Takk, Pondus!
Hvað segirðu...
ertu með
rækjusamloku
í dag?
Vissirðu að ég get
þekkt í sundur tólf
tegundir af rækju-
salati bara með
lyktarskyninu?
Skráðu þig strax í dag til að auka vinningsmöguleikana
Skráning í öllum bönkum, sparisjóðum og á www.kreditkort.is
Ferð fyrir 4 á úrslitaleik UEFA Champions
League í boði MasterCard®
46 ÁRA „Ég geri nú bara ekki neitt“,
segir Tumi Magnússon, myndlist-
armaður og prófessor við Lista-
háskóla Íslands, aðspurður um
hvort hann ætli að gera sér glaðan
dag á fjörutíu og sex ára afmælinu
sínu í dag. „Ég fer sennilega út úr
bænum en ég þarf að skreppa
vestur á Strandir þannig að það
verða engin sérstök hátíðarhöld.
Ég reyni samt kannski að borða
einhverja köku með fjölskyldunni
þegar ég kem aftur heim. Ég er nú
ekki enn búinn að halda upp á fer-
tugsafmælið en ætli ég reyni ekki
að hafa veislu þegar ég verð
fimmtíu ára.“
Tumi segir afmælisdagana hafa
skipað veigameiri sess, svona eins
og gengur og gerist, hjá sér þegar
hann var krakki en segir þá þó
ekki vera neitt sérstaklega eftir-
minnilega. Tumi bætir því við að
eftir að hann varð fullorðinn hafi
hann misst áhugann á afmælis-
dögunum og hafi einna helst vanið
sig á að gera eitthvað heima með
fjölskyldunni. „Þegar ég varð þrí-
tugur var ég með heldur stærra
fjölskylduafmæli. Annars er ég
orðinn hálf ruglaður í þessu og er
ekki einu sinni alveg klár á hvað
ég er gamall og hélt alveg eins að
ég væri að verða fjörutíu og sjö.
Ég var því afskaplega ánægður að
heyra það þegar þú hringdir að ég
væri að verða fjörutíu og sex ára
þar sem ég geri ráð fyrir að þú
hafir kannað þetta.“ Aldurinn leg-
gst annars vel í Tuma, sem sér
enga ástæðu til að kvarta. „Mér
finnst ég alltaf vera að græða á
þessum árum.“
Tumi hefur verið að vinna með
ljósmyndir undanfarið og afrakst-
urinn ætlar hann að sýna á næst-
unni. „Þetta er mitt á milli þess að
vera ljósmyndir og digital mál-
verk en þetta eru ljósmyndir sem
eru unnar í tölvu, límdar á plötu.
Ég er búinn að vera að fást við
þetta í um það bil ár og hef látið
prenta myndirnar út þegar ég hef
haft efni á því. Þetta eru myndir af
fiskum. Það hentaði verkefninu og
þetta tengist vissulega Íslandi þó
að þetta séu ekki endilega íslensk-
ir fiskar. Þeir eru lífrænir og ekki
allt of flóknir en það kom sér vel
að þeir eru ekki með hendur og
fætur, sem er mjög þægilegt. Þeir
pössuðu vel við verkefnið.“
thorarinn@frettabladid.is
Afmæli
■ Tumi Magnússon myndlistarmað-
ur er 46 ára í dag. Hann kippir sér
ekki upp við það og verður að
heiman. Hann er í dularfullum er-
indagjörðum á Ströndum og hefur
auk þess unnið við fiskvinnslu í
tölvu síðastliðið ár.
TUMI MAGNÚSSON
„Það er þá helst þessi fyrsti sem er minnisstæður en það var heilmikil upplifun að koma í
heiminn.“
Vinnur
fisk í tölvu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Erum við allt
í einu komnir
með spes
sæti?
Jájá,
Húgó...
allt í lagi!
Já, Húgó...
rækjusam-
loku!
Er það
virkilegt?
Þefaðu VEL
að þér!