Fréttablaðið - 26.03.2004, Síða 14

Fréttablaðið - 26.03.2004, Síða 14
16 26. mars 2004 FÖSTUDAGUR ■ Afmæli Rússneska þjóðin kaus VladímírPútín forseta á þessum degi árið 2000. Pútín hafði verið starfandi forseti frá því Boris Jeltsín hætti um áramótin en þar áður hafði hann gegnt embætti forsætisráðherra Rússlands. Þrátt fyrir þennan bak- grunn þótti Pútín að mörgu leyti enn vera óskrifað blað í pólitíkinni þegar hann náði kjöri og óvissa ríkti um hvaða stefnu hann myndi marka sér sem forseti. Sterk tengsl hans við rússnesku leyniþjónustuna KGB voru mörgum áhyggjuefni en hann starfaði þar í 17 ár og hélt nánum tengslum við gamla félaga sína. Þá hafði hann gengið harkalega fram í Tsjetsjeníu og vílaði ekki fyrir sér að blanda saman hernaðarlegum ávinningi og pólitískum hagsmunum. Þjóðin virtist hins vegar treysta þessum harða nagla og kunni að meta þá staðfestu sem hann bar með sér og þótti kærkomin tilbreyt- ing frá upplausnar- og óvissu- ástandinu sem ríkti í kringum Jeltsín, forvera hans. Pútín hefur aldrei hikað við að svínbeygja pólitíska andstæðinga sína. Hann hefur á valdatíma sínum til að mynda beygt flesta fjölmiðla landsins undir ægivald sitt og vel- gengni hans í nýafstöðnum forseta- kosningum þykir til marks um þau sterku tök sem hann hefur á almennri umræðu í Rússlandi. ■ Hafliði Arngrímsson dramatúrg er 53 ára. Jónína Benediktsdóttir er 47 ára. Ég er að vinna á afmælisdaginnminn,“ segir Haukur Hólm, fréttamaður á Stöð 2, sem er 48 ára í dag. „Ég átti að vera í fríi en sök- um manngæsku minnar og mann- vonsku samstarfskonu minnar, Brynju Þorgeirsdóttur, er ég að vinna því sonur hennar á afmæli,“ bætir hann við glettinn. Haukur ætlar að gera sér ein- hvern dagamun í kvöld: „En ég mun ganga hægt um gleðinnar dyr, bæði vegna þess að þetta er ekki stórafmæli og daginn eftir er árshátíð. Þá verð ég í mínum hefð- bundna árshátíðargalla sem eru 50 ára sjakketfötum sem ég klæðist fyrir árshátíð, aðfangadagskvöld og fjölmiðlamót í fótbolta þar sem ég er forseti félagsins hér á Stöð 2.“ Hann segist þó ekki spila fót- bolta sjálfur þar sem hann er mun lélegri en þeir sem eru inn á. Þess í stað hvetur hann sitt lið áfram. Þrátt fyrir að hafa fá plön fyrir þetta afmæli segist Haukur strax vera farinn að huga að fimmtugs- afmælinu. „Ég er að spara mig fyrir næsta stórafmæli sem verð- ur tekið með miklu trompi. Ég er farinn að huga að næsta afmæli og það verður mikilfenglegra en nokkurt annað sem ég hef haldið. Þrítugs- og fertugsafmælin voru nokkuð góð. Ég veit ekki hvað það verður en ég mun ekkert draga af mér til að það verði gott.“ Hann hefur engar áhyggjur af það verði erfiðara að toppa fertugsafmælið en þá leigði hann bragga frá stríðsárunum úti á Reykjavíkur- flugvelli. „Það mættu um 200 manns og ég fékk vini elsta sonar míns til að vera þjónar og þeir gengu um í gömlum hermanna- búningum. Svo var veisla til sex eða sjö um morguninn.“ Fleiri tímamót eru í lífi Hauks því hann varð nýlega afi og var það hans fyrsta afabarn. „Ég ætla að vera bæði góður og eftirláts- samur. Afi sem beygir reglurnar svolítið, sérstaklega þegar ég þarf lítið að takast á við afleiðingarnar sjálfur.“ Vorveiðin er einnig að fara að hefjast og klæjar Hauk í allan lík- amann af eftirvæntingu. „Þetta er eitt af því skemmtilegra sem ég geri, að fara með góðum vinum að veiða.“ Framundan er árleg veiði- ferð með Horkúlunni, sem er karlaklúbbur núverandi og fyrr- verandi starfsmanna frétta- stofunnar. ■ Afmæli HAUKUR HÓLM ■ er 48 ára. Ætlar að spara sig fyrir árshátíðina á morgun. LEONARD NIMOY Sjálfur Spock úr Star Trek er 73 ára. 26. mars ■ Þetta gerðist 1827 Tónskáldið Ludwig van Beethoven deyr í Vín. 1892 Skáldið Walt Whitman deyr. 1923 Leikkonan Sarah Bernhardt deyr. 1961 Rússar endurheimta leyfarnar af geimfarinu Sputnik 10 ásamt hundinum sem var um borð. 1997 Lík 39 meðlima í sértrúarsöfnuð- inum Heaven’s Gate finnast í Kaliforníu. 2000 American Beauty fær Óskar- inn sem besta myndin. VLADÍMÍR PÚTÍN Þessi harðjaxl úr KGB var kosinn forseti Rússlands, í fyrsta sinn, á þessum degi fyrir fjórum árum. Pútín kosinn forseti VLADÍMÍR PÚTÍN ■ Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands og KGB-maður var kosinn eftirmaður Boris Jeltsín Rússlandsforseta. 26. mars 2000 ■ Andlát JAMES CAAN Leikarinn og harðjaxlinn er 64 ára í dag. ■ Jarðarfarir Tilefni fyrir 50 ára sjakketföt Konunglegt leyfi fyrir lyfjabúð Vjer Christian hinn Tíundi afguðs náð konungur Íslands og Danmerkur, Vinda og Gauta, hertogi í Slesvik, Holtsetalandi og Aldinborg, gjörum kunnugt að vjer samkvæmt þegnlegri umsókn og beiðni höfum leyft að cand. Pharm. Stefán Thorarensen megi setja á stofn lyfjabúð í austurhluta Reykja- víkurbæjar.“ Svohljóðandi er skjal frá konungi Danmerkur sem gaf Stefáni Thorarensen leyfi til lyfsölu hinn 25. mars 1919 og fagnar Thorarensen Lyf ehf. því 85 ára starfsafmæli um þessar mundir. Síðar hóf Stefán framleiðslu á lyfjum og var brautryðjandi á því sviði á Íslandi auk þess sem hann stofnaði heildsölu á lyfj- um. Þá var það sem telst aust- urhluti Reykjavíkurbæjar neð- arlega á Laugavegi og þar sem fyrirtækið er staðsett nú, á Lynghálsi í Árbænum, hefði þá talist til sveitar og var fólk þar með sumarbústaði. „Í gærmorgun buðum við fyrrverandi og núverandi starfsmönnum og velunnurum til morgunverðar til að heiðra starfsfólkið og vel á annað hundrað manns mættu,“ segir Thomas Möller, framkvæmda- stjóri Thorarensen Lyfja. „Þetta er fyrirtæki með mikla sögu og það er mjög ofarlega í huga fólks þegar minnst er á lyfsölu. Það er ekki algengt að íslensk fyrirtæki nái þessum aldri og því horfum við björtum augum fram á veg.“ Í dag er fyrirtækið hætt að framleiða lyf og starfar ein- göngu við kynningu og markaðs- setningu á lyfjum og heilsuvör- um og öðrum vörum á sviði heil- brigðistækni og rannsókna. ■ THOMAS MÖLLER, ÞYRI ÞORSTEINS- DÓTTIR OG ÓLÖF SIGURÐARDÓTTIR Fyrir 85 árum fékk Stefán Thorarensen leyfi til lyfsölu með skjali frá Danakonungi. 11.00 Sveinborg Helga Sveinsdóttir verður jarðsungin frá Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði. 11.00 Þórdís Kristjánsdóttir, Vallholti 11, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju. 13.30 Elí Rósinkar Jóhannesson húsa- smíðameistari, Álfhólsvegi 151, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju. 13.30 Magnús Þórisson, Hamragerði 26, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju. 14.00 Sigurjón Guðjónsson verður jarðsunginn frá Akraneskirkju. 14.30 Laufey Ásgeirsdóttir Æsufelli 4, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu. 15.00 Garðar Sigurðsson, fyrrverandi alþingismaður, Laugarnesvegi 89, verður jarð- sunginn frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík. Oddrún Inga Pálsdóttir, Sogavegi 78, lést mánudaginn 22. mars. Sigríður Guðjónsdóttir, Lindargötu 18, Siglufirði, lést þriðjudaginn 23. mars. Þorsteinn Jóhannsson, hjúkrunarheim- ilinu Skjóli, áður til heimilis á Kárastíg 5, Reykjavík, lést þriðju- daginn 23. mars. HAUKUR HÓLM Er strax farinn að huga að fimmtugs- afmælinu sínu. Það gæti þó verið vandkvæðum bundið að halda veislu sem slær fertugsafmælinu við. Afmæli THORARENSEN LYF ■ fagnar 85 ára starfsafmæli. Éf ég ætti eina ósk yrði það jafn-rétti, að sjálfsögðu,“ segir Katrín Anna Guðmundsdóttir, talsmaður Femínistafélags Íslands. Eina ósk

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.