Fréttablaðið - 29.05.2004, Side 4
4 29. maí 2004 LAUGARDAGUR
Á að heimila tryggingafélagi að
eiga apótek?
Spurning dagsins í dag:
Ætlarðu að fylgjast með EM í Portú-
gal?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
80%
20%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
ESB snertir íslenska hagsmuni, segir ráðherra:
Ekki má útiloka aðild
EVRÓPUSAMBANDIÐ „Gagnstætt því
sem segir í einu kaflaheiti bók-
arinnar, er lífið á Íslandi ekki
lengur saltfiskur,“ sagði Hall-
dór Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra og verðandi forsætisráð-
herra, á málþingi sem haldið
var í gær í tilefni af útgáfu bók-
arinnar „Iceland and European
Integration: On the Edge“. Vís-
aði hann til þess að hingað til
hefði aðaláhersla í aðkomu Ís-
lands að Evrópumálum verið
lögð á að tryggja íslenskum
sjávarafurðum hagstæð mark-
aðsskilyrði.
Í bókinni um Ísland og Evr-
ópusamrunann leitast Baldur
Þórhallsson stjórnmálafræð-
ingur við að skýra hvaða þættir
hafa valdið tregðu ráðamanna
gagnvart aðild að ESB. Benti
hann á í erindi sínu, að tengsl ís-
lenskra þingmanna við sjávar-
útveg væru mun meiri en
tengsl þeirra við landbúnað og
iðnað, sem skýrði hugsanlega
afstöðu þeirra til ESB að hluta
til. „Það sem stendur upp úr við
lestur bókarinnar,“ bætti utan-
ríkisráðherra við, „er að við Ís-
lendingar eigum val um það
hvernig samskiptum okkar við
Evrópu verður háttað. Þetta er
okkur mikilvægt að ræða og
hef ég reynt að hvetja til þess
og vil sjálfur ekkert útiloka í
þessum efnum.“ Þá tók Halldór
fram að íslenskum ráðmönnum
hafi alltaf verið ljóst að Evr-
ópusamruninn muni hafa áhrif
á íslenska hagsmuni. ■
Vöruverð helmingi
hærra en í ESB
Landsmenn greiddu þriðja hæsta vöruverð í Evrópu árið 2001.
Íbúar Sviss og Noregs skipuðu efstu sætin. Hægt er að greina sex
grundvallarástæður fyrir verðmuninum.
MATVÆLAVERÐ Verð á matvöru var
að meðaltali um 50 prósentum
hærra hér á landi árið 2001 en í
löndum Evrópusambandsins.
Fiskur var eina vörutegundin sem
reyndist álíka dýr í löndunum á
þessum tíma. Þetta kemur fram í
skýrslu forsætisráðherra sem
Rannveig Guðmundsdóttir óskaði
eftir á Alþingi fyrir einu og hálfu
ári. Hún fjallar um samanburð á
matvælaverði á Íslandi, Norður-
löndunum og ríkjum Evrópusam-
bandsins sem hagstofan Eurostat
vann.
Verðmunurinn er misjafn milli
flokka og var verðið um 30 til 70
prósentum hærra hér en í Evrópu-
sambandslöndunum. Landsmenn
greiddu þó ekki mest fyrir matinn
því bæði Norðmenn og Svisslend-
ingar greiddu að jafnaði meira.
Þau lönd eru ekki í Evrópusam-
bandinu.
Rekja má verðmuninn til tolla,
gengisþróunar, flutningskostnað-
ar sem og skatta og innflutnings-
verndar, smæð markaðarins og
skort á samkeppni. Stjórnvöld
geta samkvæmt skýrslunni farið
tvær leiðir til að lækka vöruverð.
Þau geta tryggt samkeppni og
opnað fyrir viðskipti við útlönd og
aðskilið ýmis pólitísk markmið
um viðhald byggðar og búsetu í
dreifbýli. Þau geta einnig tekið
ákvarðanir um verð og fram-
leiðslu í landbúnaði. Þar hafa
stjórnvöld stigið mörg rétt skref
segir í skýrslunni. Veigamikill
þáttur í verðmuninum er að
virðisaukaskattur er einungis
hærri í tveimur löndum í Evrópu.
Kostnaður við flutning er á bilinu
sjö til 25 prósent ofan á matvöru-
verðið og stuðningur neytenda við
bændur er á bilinu fimm til tíu
prósent samkvæmt skýrslunni.
Jón Björnsson, forstjóri Haga
sem rekur meðal annars Bónus,
Hagkaup og 10-11 á matvöru-
markaði, er sammála skýringum
skýrslunnar. „Ég tel að skýring-
arnar séu þær sömu í dag en ég
efast um að verðmunurinn sé sá
sami því matvara hefur vissulega
lækkað í verði síðan 2001. Það er
ekki aðeins einn þáttur sem hefur
áhrif á mismun vöruverðs heldur
hefur fjöldi liða þessi áhrif,“ segir
Jón.
gag@frettabladid.is
Viðskiptajöfnuður:
Viðskipta-
hallinn eykst
EFNAHAGSMÁL Í aprílmánuði voru
fluttar út vörur fyrir tæpa 16,8 millj-
arða króna og inn fyrir 20,0 milljarða
króna fob. Vöruskiptin í apríl voru
því óhagstæð um 3,3 milljarða króna
en í apríl í fyrra voru þau óhagstæð
um 2,5 milljarða.
Fyrstu fjóra mánuði ársins voru
vöruskiptin við útlönd óhagstæð um
3,2 milljarða en á sama tíma árið áður
voru þau hagstæð um fjóra milljarða.
Vöruskiptajöfnuðurinn var því 7,2
milljörðum króna lakari en á sama
tíma árið áður. Aukning er í innflutn-
ingi fjárfestingarvara, auk þes sem
innflutningur neysluvara og bíla-
innflutningur hefur vaxið milli ára. ■
Nágrenni Najaf:
Skotið á
hermenn
NAJAF, AP Skotið var á bandaríska
hermenn og tveir særðir í borginni
Kufa, nálægt Najaf, í gær og varð
það til þess að veik-
ja vonir manna um
að samkomulag frá
í fyrradag um að
binda endi á bar-
daga Bandaríkja-
hers og stuðnings-
manna klerksins
Muqtada al-Sadr.
Að auki var skotið
úr sprengjuvörpu á
helstu herstöð
Bandaríkjahers á
svæðinu en þar
særðist enginn.
Mark Kimmitt hershöfðingi
sagði að svo virtist sem brotið væri
gegn ákvæðum samkomulagsins.
Þegar verið var að flytja fanga
úr Abu Ghraib fangelsi í gær-
morgun heyrðist skothríð og héldu
menn í fyrstu að verið væri að skjó-
ta á bílalestina. Fljótlega kom í ljós
að skotið var upp í loftið til að fagna
lausn fanganna. ■
Hryðjuverkarannsókn:
Leitað að
Alsírbúa
SPÁNN, AP Spænskur dómari hefur
gefið út alþjóðlega handtökuheimild
á hendur Alsírbúa vegna hryðju-
verkaárásanna í Madríd. Fingraför
sem fundust á poka sem innihélt
sprengiefni hafa verið rakin til
mannsins. Áður hafði bandarískur
lögmaður verið handtekinn vegna
sömu fingrafara en var síðar látinn
laus.
Auk fingrafaranna notaðist lög-
regla við lífsýni sem fundust þar
sem sprengjur sem voru notaðar í
árásunum voru búnar til. Hvort
tveggja er rakið til manns sem bjó á
Spáni fyrir hryðjuverkaárásirnar. ■
Tyrkland og ESB:
Vilja hefja
viðræður
BRETLAND, AP Recep Erdogan,
forsætisráðherra Tyrklands, vill
hefja aðildarviðræður við Evrópu-
sambandið áður en árið er úti.
Í ræðu sem Erdogan hélt í
Oxford-háskóla í Bretlandi hvatti
hann Evrópusambandið til að
hefja viðræður sem fyrst og meta
Tyrki út frá því hversu mikla
áherslu þeir legðu á lýðræði.
Tyrkir hafa lagt mikla vinnu í
það síðustu tvö ár að uppfylla þær
kröfur sem Evrópusambandið
gerir til ríkja svo hægt sé að hefja
aðildarviðræður. Dauðarefsingin
hefur verið afnumin og Kúrdar
fengið aukin réttindi. ■
EKKI Í NATÓ Möguleikarnir á því að
Bosnía fái aðild að Atlantshafs-
bandalaginu á næstunni eru því sem
næst engir sagði
Jaap de Hoop
Scheffer, fram-
kvæmdastjóri
bandalagsins
bosnískum stjórn-
völdum. Meðal þess sem Bosnía
þarf að gera áður en af því verður
er að handtaka stríðsglæpamennina
Radovan Karadzic og Ratko Mladic.
MÓTMÆLI TAKMÖRKUÐ Rússneska
þingið samþykkti í gær með 310 at-
kvæðum gegn 120 að vísa frum-
varpi til þriðju umræðu sem gerir
það ólöglegt að efna til mótmæla
við aðsetur forsetans. Í upphaflegri
útgáfu frumvarpsins mátti ekki
mótmæla við neinar stjórnarbygg-
ingar.
DÝRARI MJÖÐUR Eins lítra kanna af
bjór mun kosta andvirði rúmra 600
króna á Októberhátíðinni í
München í haust og hækkar nokk-
uð í verði frá fyrra ári. Í fyrra
gerðist það í fyrsta skipti frá árinu
1969 að mjöðurinn hækkaði ekki í
verði milli ára. 6,3 milljónir gesta
sóttu hátíðina í fyrra.
www.netsalan.com
Knarravogur 4, - 104 Reykjavík - Sími 517 0220
OPIÐ LAUGARDAG KL. 13.00 - 16.00 LOKAÐ SUNNUD. OG MÁNUD.
Sýning í dag!
Flottustu bílar sem
sést hafa á Íslandi
CHRYSLER 300C,
árg. 2005
CHRYSLER CROSSFIRE,
sportbíllinn sem slegið hefur í gegn
KNAUS
húsbílarnir eru komnir.
Langflottastir og best útbúnir.
Kostnaður við
skýrslugerð:
„Ekki mín
ósk“
ALÞINGI „Sú skýrsla sem ég bað
um kostar ekki 22 milljónir. Það
myndi taka vanan mann þrjár til
fjórar vikur að vinna hana, segir
Mörður Árnason þingmaður
Samfylkingarinnar. Í svari
forsætisráðuneytisins við fyrir-
spurn um fjölda skýrsla sem
kosta yfir fimm milljónir,
kemur fram að það standi til að
vinna skýrslu um áhrif hval-
veiða á ímynd Íslands sem
ferðamannalands, að beiðni
Marðar og að áætlaður kostnað-
ur sé 18 til 22 milljónir. „Ég,
ásamt öðrum þingmönnum bað
vissulega um að skýrsla þess
efnis yrði gerð í október síðast-
liðnum, en það umfang sem ég
hafði í huga var annað en fram
kemur í svari forsætisráðu-
neytisins.“ Mörður segir að það
hafi verið hugmynd Sturlu
Böðvarssonar, samgönguráð-
herra, og Magnúsar Oddssonar,
ferðamálastjóra að ráðast í svo
umfangsmikla skýrslugerð.
Hann tekur fram að hann geri
ekki athugasemdir við hug-
myndina og umfang hennar sem
slíkrar, en „hún er bara ekki frá
mér komin.“ ■
SAMBÆRILEGT OG Á NORÐURLÖNDUNUM
Þjár stærstu verslunarkeðjunar hér á landi eru með 80 til 90 prósenta markaðshlutdeild.
Það er ekki ósvipað því sem er annars staðar á Norðurlöndum þótt þróunin hafi orðið
mun seinna hér á landi. Verslunarálagning virðist vera sambærileg hér á landi og í Bret-
landi segir í skýrslunni.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON UTANRÍKIS-
RÁÐHERRA
Segir Íslendinga þurfa að kanna hvernig
samskiptum við Evrópu verði háttað.
■ EVRÓPA
UNGUR VÍGA-
MAÐUR
Sumir stuðnings-
menn al-Sadrs
tóku því rólega í
gær.
MÖRÐUR ÁRNASON ALÞINGISMAÐUR
Segir sína hugmynd ekki hafa verið jafn umfangsmikla og forsætisráðuneytið gerir ráð fyrir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA