Fréttablaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 64
48 29. maí 2004 LAUGARDAGUR
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
15 % SUMARTILBOÐ
Á ÖLLUM KJÓLUM,
SÍÐASTI TILBOÐSDAGUR
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ ROCKY
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Martin Kellerman
Eftir Frode Överli
Stundum hræðist ég tækninýj-
ungar og nánast undantekninga-
laust tek ég þeim með fyrirvara.
Ég hugsa með mér: „Þetta er nú
bara eitthvað drasl sem er verið
að reyna að pranga inn á mann,“
og sný mér undan, stoltur yfir
staðfestu minni.
Þessi saga hófst fyrir sjö árum
þegar gemsar fóru að verða vin-
sælir. Ég lét mér fátt um finnast og
fannst ég ekkert þurfa á þeim að
halda. Árin liðu og þrýstingurinn á
mig jókst. „Af hverju færðu þér
ekki gemsa?“ var ég spurður hvað
eftir annað og raddirnar neituðu að
þagna: „Á ekkert að stíga skrefið
inn í 21. öldina?“ Loksins lét ég
undan en samt með nokkurri reisn,
því ég fór ekki sjálfur út í búð og
keypti mér gemsa heldur fékk
hann í afmælisgjöf. „Fín lausn,“
hugsaði ég með mér en lét samt
engan vita af því.
Smám saman fór ég að sætta
mig við notagildið og núna er
gemsinn orðinn nauðsyn í mínu lífi.
Lítið gat ég samt slakað á því fljótt
komst ég að því að ekki var nóg að
eiga gemsa heldur þurfti maður
líka að eiga handfrjálsan búnað.
„Úff,“ hugsaði ég með mér. „Þetta
þarf ég sko ekki. Þetta er líka svo
ljótt.“ Get ég stoltur lýst því yfir að
ég hef aldrei notað
svoleiðis tól og mun
örugglega aldrei
gera. Aðalástæðan
er samt ekki vantrú mín á nota-
gildið eða útlitið heldur ákveðin
fóbía. Ég vil ekki líta út eins og
pesóna úr vísindaskáldsögu með
undarlegt tól á hausnum, talandi
við sjálfa sig. Ég hræðist svoleiðis
fólk. „Framtíðin er núna,“ segi ég
þá við sjálfan mig í hugreystingar-
tón, en það dugir ekki til. Ég er
bara ekki tilbúinn. Kannski eftir 30
ár þegar fljúgandi bílar verða sjálf-
sagt mál og fólk gengur um í silfur-
lituðum samfestingum. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
FREYR BJARNASON HRÆÐIST TÆKNINÝJUNGAR OG ÓSKAR ÞESS STUNDUM AÐ TÍMINN STANDI Í STAÐ.
■ Í silfurlituðum samfestingi með handfrjálsan búnað
Solla, það er alveg nóg
að fá fimm gesti í af-
mælisveisluna.
En það voru
tíu krakkar
í fyrra!
Veislan í fyrra var hræðileg!
Manstu eftir hávaðanum?
Ruslinu? Ruglingnum? Af
hverju myndir þú vilja slíkt
aftur?
Af því það var
gaman!
Allt í lagi...
tíu gestir.
Veiiiiiii!
Hey Lalli - hvar
er litli vinur
þinn, Mjási?
Aaaahh -
Æi, hann er í
einhverri fýlu.
Kettir.
Þú
sagðir
það.
Ég vil
vera
einn.
Kalli, hvernig líst þér á að
leika í kvikmynd?
Er það klámari?
Nei, svona vegamynd!
Ég hef verið að pæla í
þessu drullulengi!
Maður þarf ekkert núna
nema digitalkameru!
Og hver á að leika í í
þessu?
Ég var að spá í að setja þig
og Ingó í aðalhlutverkin!
Ertu að meina þetta?
Þetta er ekkert mál! Það vers-
ta sem gæti gerst er að þetta
virki ekki og þá erum við alla-
vega með fína heimildarmynd
um að slæpast í sumarfríinu!
Nei, það versta sem gæti gerst
væri að við yrðum frægir fyrir
að vera hálfvitar!
Bíddu, skýlan horfin? Hvar
setti ég handklæðið mitt?
Nú, og King Kong-bjórinn fæst í
stökum flöskum, kippu og kassa!
Ef keyptir eru tveir kassar
fylgir með þessi glæsilegi
netabolur!