Fréttablaðið - 29.05.2004, Page 64

Fréttablaðið - 29.05.2004, Page 64
48 29. maí 2004 LAUGARDAGUR Engjateigi 5, sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00. 15 % SUMARTILBOÐ Á ÖLLUM KJÓLUM, SÍÐASTI TILBOÐSDAGUR Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ ROCKY ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Martin Kellerman Eftir Frode Överli Stundum hræðist ég tækninýj- ungar og nánast undantekninga- laust tek ég þeim með fyrirvara. Ég hugsa með mér: „Þetta er nú bara eitthvað drasl sem er verið að reyna að pranga inn á mann,“ og sný mér undan, stoltur yfir staðfestu minni. Þessi saga hófst fyrir sjö árum þegar gemsar fóru að verða vin- sælir. Ég lét mér fátt um finnast og fannst ég ekkert þurfa á þeim að halda. Árin liðu og þrýstingurinn á mig jókst. „Af hverju færðu þér ekki gemsa?“ var ég spurður hvað eftir annað og raddirnar neituðu að þagna: „Á ekkert að stíga skrefið inn í 21. öldina?“ Loksins lét ég undan en samt með nokkurri reisn, því ég fór ekki sjálfur út í búð og keypti mér gemsa heldur fékk hann í afmælisgjöf. „Fín lausn,“ hugsaði ég með mér en lét samt engan vita af því. Smám saman fór ég að sætta mig við notagildið og núna er gemsinn orðinn nauðsyn í mínu lífi. Lítið gat ég samt slakað á því fljótt komst ég að því að ekki var nóg að eiga gemsa heldur þurfti maður líka að eiga handfrjálsan búnað. „Úff,“ hugsaði ég með mér. „Þetta þarf ég sko ekki. Þetta er líka svo ljótt.“ Get ég stoltur lýst því yfir að ég hef aldrei notað svoleiðis tól og mun örugglega aldrei gera. Aðalástæðan er samt ekki vantrú mín á nota- gildið eða útlitið heldur ákveðin fóbía. Ég vil ekki líta út eins og pesóna úr vísindaskáldsögu með undarlegt tól á hausnum, talandi við sjálfa sig. Ég hræðist svoleiðis fólk. „Framtíðin er núna,“ segi ég þá við sjálfan mig í hugreystingar- tón, en það dugir ekki til. Ég er bara ekki tilbúinn. Kannski eftir 30 ár þegar fljúgandi bílar verða sjálf- sagt mál og fólk gengur um í silfur- lituðum samfestingum. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA FREYR BJARNASON HRÆÐIST TÆKNINÝJUNGAR OG ÓSKAR ÞESS STUNDUM AÐ TÍMINN STANDI Í STAÐ. ■ Í silfurlituðum samfestingi með handfrjálsan búnað Solla, það er alveg nóg að fá fimm gesti í af- mælisveisluna. En það voru tíu krakkar í fyrra! Veislan í fyrra var hræðileg! Manstu eftir hávaðanum? Ruslinu? Ruglingnum? Af hverju myndir þú vilja slíkt aftur? Af því það var gaman! Allt í lagi... tíu gestir. Veiiiiiii! Hey Lalli - hvar er litli vinur þinn, Mjási? Aaaahh - Æi, hann er í einhverri fýlu. Kettir. Þú sagðir það. Ég vil vera einn. Kalli, hvernig líst þér á að leika í kvikmynd? Er það klámari? Nei, svona vegamynd! Ég hef verið að pæla í þessu drullulengi! Maður þarf ekkert núna nema digitalkameru! Og hver á að leika í í þessu? Ég var að spá í að setja þig og Ingó í aðalhlutverkin! Ertu að meina þetta? Þetta er ekkert mál! Það vers- ta sem gæti gerst er að þetta virki ekki og þá erum við alla- vega með fína heimildarmynd um að slæpast í sumarfríinu! Nei, það versta sem gæti gerst væri að við yrðum frægir fyrir að vera hálfvitar! Bíddu, skýlan horfin? Hvar setti ég handklæðið mitt? Nú, og King Kong-bjórinn fæst í stökum flöskum, kippu og kassa! Ef keyptir eru tveir kassar fylgir með þessi glæsilegi netabolur!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.