Fréttablaðið - 29.05.2004, Blaðsíða 63
FÓTBOLTI Allir leikmenn og þjálf-
arar Landsbankadeildarinnar í
knattspyrnu hefðu þurft að vera
viðstaddir leik FH og Keflavíkur í
Kaplakrika í gærkvöld og sjá
hvernig almennileg knattspyrna
er spiluð. Bæði lið sýndu fína
takta, Keflvíkingar voru betri í
fyrri hálfleik en FH-ingar sterk-
ari aðilinn í þeim síðari.
Í fyrri hálfleik sást að það er
engin tilviljun að Keflvíkingar
höfðu unnið tvo fyrstu leiki sína í
Landsbankadeildinni. Þeir spiluðu
boltanum oft á tíðum frábærlega
á milli og áttu FH-ingar, sem léku
án fyrirliða síns Heimis Guð-
jónssonar, fá svör við skemmti-
legri spilamennsku leikmanna
Keflavíkur.
Þeir komust yfir á 33. mínútu
þegar Sreten Djurovic skallaði
boltann í netið eftir að Haraldur
Guðmundsson hafði skallað bolt-
ann fyrir markið úr hornspyrnu
Scotts Ramsey. Sanngjörn forysta
gestanna sem réðu miðjunni
algjörlega með þá Stefán Gíslason
og Hólmar Örn Rúnarsson sem
bestu menn. Einu færi FH-inga
komu eftir misheppnuð úthlaup
Magnúsar Þormar, markvarðar
Keflvíkinga, en hann var vægast
sagt mjög óöruggur í leiknum og
missti boltann hvað eftir annað í
glórulausum úthlaupum. FH-
ingum tókst þó ekki að nýta sér
þetta og því leiddu gestirnir í
hálfleik, 1–0.
Heimamenn komu hins vegar
mjög sterkir til leiks í síðari
hálfleik og hófu strax skothríð að
marki Keflvíkinga. Atli Viðar
Björnsson var nálægt því að skora
strax í byrjun en þeir uppskáru
laun erfiðisins á 62. mínútu þegar
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson jafnaði
metin með þrumuskoti af rúmlega
25 metra færi í bláhornið. Það
sem eftir lifði leiks virtust FH-
ingar vera líklegri til að skora en
allt kom fyrir ekki. Jafntefli var
niðurstaðan og sennilega sann-
gjörn úrslit.
Bæði lið eiga hrós skilið fyrir
að spila góðan fótbolta á löngum
köflum í leiknum. Leikmenn
liðanna sýndu að íslenskum
knattspyrnumönnum er ekki alls
varnað þegar kemur að því að
spila fótbolta og bæði lið sóttu á
fleiri mönnum heldur en tveimur
til þremur sem hefur verið
sjaldgæf sjón í leikjum deildar-
innar í sumar.
oskar@frettabladid.is
ÚRSLIT Í 1. DEILDINNI Í GÆR
Völsungur–Stjarnan 4–2
Njarðvík–Fjölnir 3–2
HK–Þór Ak. 0–0
Þróttur–Breiðablik 1–0
Haukar–Valur 0–1
STAÐAN Í 1. DEILDINNI
Njarðvík 3 3 0 0 8–2 9
Valur 3 2 1 0 7–2 7
–––––––––––––––––––––––––––––––
Þór Ak. 3 1 2 0 3–1 5
Völsungur 3 1 1 1 5–4 4
Haukar 3 1 0 2 5–5 4
Þróttur 3 1 1 1 1–2 4
HK 3 1 1 1 2–5 4
Stjarnan 3 1 0 2 5–6 3
–––––––––––––––––––––––––––––––
Breiðablik 3 1 0 2 2–6 3
Fjölnir 3 0 0 3 3–8 0
47LAUGARDAGUR 29. maí 2004
n
n
n
n
A-landslið kvenna í körfubolta:
Íslenska landsliðið tapaði
stórt fyrir því enska
KÖRFUBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í körfubolta tapaði 101-77
fyrir Englendingum í Keflavík í
gærkvöld. Englendingar tóku
strax frumkvæðið og leiddu 25-17
eftir fyrsta leikhluta. Gestirnir
juku forskotið í öðrum leikhluta
og var staðan orðin 49-34 fyrir
Englendinga eftir hann. Þriðji
leikhlutinn var besti kafli Íslend-
inga en þá skoruðu þeir 26 stig
gegn 19 stigum. Staðan var því 68-
60 fyrir Englendinga fyrir fjórða
leikhluta en þá sótti aftur í sama
farið og gestirnir sigruðu með 24
stiga mun.
Erla Þorsteinsdóttir og Hildur
Sigurðardóttir voru með 22 stig í
gær og Erla tók einnig átta frá-
köst. Signý Hermannsdóttir ski-
laði 16 stigum og tók tólf fráköst
og Birna Valgarðsdóttir var með
sex stig og varði sex skot. Erla
Reynisdóttir var með fjögur stig,
Rannveig K Randversdóttir þrjú
og María Ben Erlingsdóttir og Sól-
veig Gunnlaugsdóttir tvö hvor.
Caroline Ayers halaði inn 23
stig fyrir Englendinga og
Christine Lavin 20. Liðin leika í
Grindavík í dag og hefst viður-
eignin klukkan 17. ■
HILDUR SIGURÐARDÓTTIR ÁTTI FÍNAN LEIK
Var með 22 stig gegn enska landsliðinu í Grindavík í gærkvöld.
■ Staðan í deildinni
■ Staðan í 1. deildinni
FH–KEFLAVÍK 1–1 (0–1)
0–1 Sreten Djurovic 33.
1–1 Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 62.
DÓMARINN
Garðar Örn Hinriksson Í meðallagi
BESTUR Á VELLINUM
Hólmar Örn Rúnarsson Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 17–12 (3–7)
Horn 6–5
Aukaspyrnur fengnar 12–12
Rangstæður 1–0
Spjöld (rauð) 0–1 (1–0)
MJÖG GÓÐIR
Atli Viðar Björnsson FH
Hólmar Örn Rúnarsson Keflavík
Stefán Gíslason Keflavík
Sreten Djurovic Keflavík
GÓÐIR
Tommy Nielsen FH
Sverrir Garðarsson FH
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson FH
Haraldur Guðmundsson Keflavík
Jónas Guðni Sævarsson Keflavík
Zoran Daníel Ljubicic Keflavík
■ Það sem skipti máli
Kennslustund
í Kaplakrika
FH-ingar og Keflvíkingar skildu jöfn í
gærkvöld í besta leik sumarsins.
LANDSBANKADEILD KARLA
Keflavík 3 2 1 0 6–3 7
Fylkir 3 2 1 0 4–1 7
ÍA 3 1 2 0 3–1 5
ÍBV 3 1 2 0 3–2 5
Fram 3 1 1 1 4–3 4
FH 3 1 1 1 2–2 4
KA 3 1 0 2 2–3 3
KR 3 1 0 2 3–5 3
Grindavík 3 0 2 1 1–3 2
Víkingur 3 0 0 3 1–6 0
MARKAHÆSTIR
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Fram 2
Sævar Þór Gíslason, Fylki 2
Þorbjörn Atli Sveinsson, Fylki 2
Magnús Már Lúðvíksson, ÍBV 2
Nýr þjálfari hjá New Orleans Hornets:
Byron Scott
aftur í slaginn
KÖRFUBOLTI Byron Scott er nýr
þjálfari NBA-liðsins New Orleans
Hornets. Hann er fyrrverandi
leikmaður Los Angeles Lakers og
var ein besta skytta deildarinnar
um árabil. Scott varð meistari
með Lakers 1985, 1987 og 1988 en
innanborðs voru leikmenn eins og
Kareem Abdul Jabbar, Magic
Johnson og James Worthy. Hann
sneri sér síðan að þjálfun og tók
við liði New Jersey Nets og gerði
góða hluti þar.
Undir stjórn hans komst liðið í
NBA-úrslitin tvö ár í röð, 2002 og
2003, en tapaði í fyrra skiptið
gegn sínu gamla félagi, Los Ang-
eles Lakers og síðan gegn San
Antonio Spurs. Síðan fór að halla
undan fæti og Scott var látinn
taka pokann sinn á miðju síðasta
tímabili. Scott átti í útistöðum við
betsa leikmann New Jersey Nets,
Jason Kidd og það hafði sitt að
segja um þegar hann var rekinn
frá félaginu.
Hann verður þriðji þjálfari
Hornets eftir að liðið flutti sig frá
Charlotte til New Orleans og bíð-
ur væntanlega ærinn starfi.
Hornets þurfa á þjálfara að
halda sem hlustað er á og virðing
er borin fyrir, því Baron Davis,
besti leikmaður þeirra, átti það til
að hunsa skipanir Tim Floyd, fyrr-
verandi þjálfara Hornets.
Hornets voru með 50% sigur-
hlutfall á síðustu leiktíð en töpuðu
fyrir Miami Heat í oddaleik í
fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Næsta leiktíð verður mögulega
liðinu talsvert erfiðari því með
nýrri deildarskipan flytur liðið
sig um set í Vesturdeildina, sem
af flestum er talin öllu sterkari
sterkari en Austurdeildin. ■
TVEIR GÓÐIR
FH-inguirnn Atli viðar Björnsson og
Keflvíkingurinn Hólmar Örn
Rúnarsson berjast hér um boltann.