Fréttablaðið - 29.05.2004, Síða 30
Fótbolti. Ísland - England. Völlurinn er iða-
grænn og stendur við West Florida-háskóla í
Flórída. Tveir leikmannanna eiga að minnsta
kosti tvennt sameiginlegt þótt báðir komi frá
sitt hvorri eyjunni í norðri. Annað er ást á Ís-
landi. Hitt að vera á skólastyrk vegna leikni
með knöttinn. Út frá sparkíþróttinni myndast
ævilöng vinátta og háleitar hugsjónir. Fram-
tíðin gefur fögur fyrirheit og eftir sameigin-
legan kúrs í auglýsingafræði stefna þeir
markvisst að því að vinna saman þótt síðar
verði. Sú staðfesta, og svo örlög framtíðar,
hafa getið af sér Íslands mestu hugsuði á sviði auglýsinga-
sköpunar; Garðbæinginn Jón Árnason og Englendinginn
Gary M. Wake. Saman vinna þeir á auglýsingastofunni
Góðu fólki, en undir þeirra hugmyndastjórn hafa tvær aug-
lýsingar frá Góðu fólki verið tilnefndar meðal athyglis-
verðustu auglýsinga Norðurlanda af tímaritinu Shots.
Shots er helsta fagtímarit auglýsingagerðar í heiminum,
eins konar biblía auglýsingabransans úti um allan heim,
þar sem fagfólk velur það athyglisverðasta sem gerist á
sviði sjónvarpsauglýsinga. Í fyrra skiptið var vegsemdin
vegna Thule-auglýsingarinnar „Beautiful Women“, en nú
er það „Flashmob“-auglýsing Símans. Þetta eru einu ís-
lensku auglýsingarnar fyrr eða síðar sem tilnefndar hafa
verið af Shots, en þess má geta að á síðustu auglýsingahátíð
AAÁ fékk Gott fólk sjö lúðra af tíu mögulegum og alls
nítján tilnefningar.
Skapandi fóstbræðralag
„Foreldrar Jóns líta reyndar á mig sem fósturson,“ seg-
ir Gary brosandi og vísar til húsnæðisvandræða á dögun-
um þegar „fósturforeldrar“ hans skutu yfir hann skjóls-
húsi, líkt og um eigið barn væri að ræða. „Ég hafði útskrif-
ast sem byggingarfræðingur í Englandi áður en ég fór til
Flórída í blaðamannanám, og áður en ég flutti hingað til
lands hafði ég komið til Íslands í sumarfrí þegar ég heim-
sótti Jónsa og fleiri íslenska vini úr háskólanum. Um leið
og ég steig fæti á íslenska grund fannst mér ég hafa verið
hér áður. Ég var loksins kominn heim. Það var svo þegar ég
lauk náminu í Flórída 1992 að mér fannst rómantísk til-
hugsun að eyða eins og einu ári við líf og störf á Íslandi en
síðan hef ég búið hér utan fjögurra ára sem ég eyddi í
London og New York.“
Gary var á undan Jónsa í náminu við West Florida-
háskólann, en þegar Jónsi lauk gráðu sem grafískur hönn-
uður þar hélt hann áfram til Atlanta og stundaði frekara
nám í auglýsingagerð til ársins 1994, er hann kom heim og
hóf störf hjá auglýsingastofunni Nonna og Manna. Þeir
Gary gerðust fljótt meðleigjendur hér heima, en Gary var
þá í föstu starfi sem blaðamaður hjá Iceland Review og
með millilendingu á auglýsingastofunni Hinu opinbera
endaði Jónsi á Góðu fólki og fann fljótt að hann væri kom-
inn á stað þar sem hann gæti vaxið sem bæði fagmaður og
skapandi hugmyndasmiður.
„Ég fór fljótlega að undirbúa komu Gary yfir í auglýs-
ingabransann, sem varð að veruleika 1998. Fyrsta herferð-
in sem við unnum saman var fyrir Thule og féll í góðan
jarðveg. Við náðum strax vel saman sem vinnudúett og höf-
um sameinað krafta okkar síðan.“
Hlúa að vináttunni á miðvikudagskvöldum
Á Gott fólk er gaman að koma. Auglýsingastofan er í
sama húsi og Kauphöll Íslands; bogahúsinu á horni
Kringlumýrarbrautar og Laugavegs. Það er reyndar svolít-
ið alvarlegt að koma inn í anddyri hússins þar sem form-
legar vísbendingar gefa til kynna virðulega íbúa hússins,
en þegar inn til Jónsa og Garys er komið verður andrúmið
létt og innlitið framúrstefnulegt eins og auglýs-
ingastofa er von og vísa. Meira að segja gosflask-
an í hendi Jónsa fær fegurri merkingu í rauðri og
svartri umgjörðinni. Bak við hálfglæra veggi
deila þeir skrifstofu og stilla skrifborðunum sam-
an á móti hvor öðrum.
„Nei, við höfum enn ekki fengið leið á hvor
öðrum og reyndar gætt þess að hlúa vel að vinátt-
unni,“ segir Gary og nefnir miðvikudagskvöld
sem vinakvöld þegar vinnan er ekki til umræðu
heldur allt annað sem vinir gera saman. „Ég held
okkur gangi svona vel að vinna saman vegna þess
að við berum gagnkvæma virðingu hvor fyrir öðrum og
erum meðvitaðir um kosti og galla hvors annars. Við erum
vissulega ólíkir einstaklingar, en treystum dómgreind
hvors annars í starfinu.“
Jónsi tekur undir orð Garys og segir þá báða hafa metn-
að og yndi af auglýsingagerð. „Það felst mikil áskorun í því
að gera góðar auglýsingar og tveir heilar hugsa betur en
einn. Góður vinskapur virkar best þegar menn treysta hvor
öðrum og geta krufið verkefnin saman í góðu trausti. Ef ég
fæ hugmynd sem kannski er 98 prósent góð kemur Gary
með tvö prósentin sem gera gæfumuninn og auglýsinguna
150 prósent skothelda. Við skiljum gjörla hvað hinn hugsar
og látum vináttuna ekki hafa áhrif á vinnuna.“
Freistuðu gæfunnar í New York
Þegar Gary og Jónsi höfðu unnið um hríð á Góðu fólki
ákváðu þeir að freista gæfunnar og leita hófanna í New
York, þar sem þeir fengu fljótlega atvinnutilboð frá hinni
frægu auglýsingastofu Bozell.
„Þetta var á hápunkti dot.com-tímabilsins og við unnum
þarna í tvö ár við góðan orðstír og að verkefnum fyrir New
York Times, bandaríska mjólkuriðnaðinn (hina frægu Got
Milk?-herferð), Datek Online, FEMA, Verizon Wireless og
fleiri stórfyrirtæki ytra. Þetta var góður skóli og maður
lærði fagmannlegri vinnubrögð en tíðkast hér heima,“ seg-
ir Jónsi og Gary bætir við að eftir tvö ár hafi þeir verið
farnir að hugsa sér til hreyfings. „Þarna úti eru menn
aldrei lengi á sama staðnum því þá skapast hætta á því að
30 29. maí 2004 LAUGARDAGUR
HUGS HUGS HUGS ... Jónsi og Gary eru hugsuðirnir á bak við margar skemmtilegustu auglýsingarnar sem sjást í íslensku sjónvarpi.
Tveir heilar
hugsa betur en einn
Auglýsingamennirnir Jón Árnason og Gary Wake vekja
athygli á heimsvísu fyrir frumlegar auglýsingar hjá Góðu fólki:
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T