Fréttablaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 1
▲
SÍÐA 29
Fylkismenn
sluppu
● 50 ára í dag
Örnólfur Thorsson:
▲
SÍÐA 22
Veisluhöld ekki í anda
heimastjórnarafmælis
Harry Potter:
▲
SÍÐA 26
Radcliffe er
ekki í dópi
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
ÞRIÐJUDAGUR
STÓRLEIKUR Í KVÖLD Í kvöld eig-
ast við stórlið KR og ÍBV í Landsbanka-
deild kvenna. Leikurinn fer fram á KR-
vellinum og hefst klukkan 20.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HÆGVIÐRI OG BJART Búast má
við skýjuðu veðri með köflum eða léttskýj-
uðu í dag víða um land. Stöku síðdegis-
skúrir. Sjá síðu 6.
8. júní 2004 – 154. tölublað – 4. árgangur
FYLGI RÍKISSTJÓRNARINNAR
EYKST Ríkisstjórnin bætir heldur við sig
fylgi. Sjá síðu 4
VONBRIGÐI MEÐ SKÝRSLU
HAFRÓ Skýrsla Hafró var kynnt í gær. Um-
hverfisskilyrði hér við land breytast hratt og
hafa ófyrirsjáanleg áhrif á lífríkið sem Hafrann-
sóknarstofnun gerði ekki ráð fyrir. Sjá síðu 6
NEFND SKIPUÐ Í DAG Davíð Odds-
son formaður Sjálfstæðisflokksins vonast til
að nefnd sem leggur drög að fyrirkomulagi
þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin
verði skipuð ekki seinna en í dag. Sjá síðu 8
FÆÐINGARLÆKNIR ÁMINNTUR
Settur landlæknir hefur formlega áminnt
lækninn sem gaf móður á Heilbrigðisstofn-
un Suðurnesja deyfiefni í legháls meðan á
fæðingu stóð. Lögreglurannsókn í málinu
er lokið. Sjá síðu 14
Sa
m
kv
æ
m
t f
jö
lm
i›l
ak
ön
nu
n
Ga
llu
ps
m
ar
s
'0
4
48%65%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
SÞ, AP Bandaríkjamenn og Bretar
lögðu í gærkvöld fram sína fjórðu
tillögu á tveimur vikum að Íraksá-
lyktun öryggisráðsins. Sam-
kvæmt henni myndi verða náið
samráð milli Íraksstjórnar og fjöl-
þjóðahersins í Í landinu en stjórn
landsins fengi ekki neitunarvald
yfir hernaðaraðgerðum.
Verði tillagan samþykkt hefur
fjölþjóðaherinn „vald til að grípa
til allra nauðsynlegra ráðstafana
til að stuðla að og viðhalda öryggi
og stöðugleika í Írak,“ segir í til-
lögu Breta og Bandaríkjamanna.
Tillagan gengur ekki jafn langt
og sum önnur ríki í öryggisráðinu
hafa krafist í að veita Írökum
sjálfum völd. Frakkar og Þjóð-
verjar hyggjast leggja fram við-
bót við tillöguna þess efnis að
íraska bráðabirgðastjórnin geti
beitt neitunarvaldi á allar meiri-
háttar hernaðaraðgerðir fjölþjóð-
aliðsins.
Mjög deildar skoðanir eru um
það í öryggisráðinu hversu mikil
áhrif Írakar hafi á starf fjölþjóða-
hersins sem verður áfram undir
forystu Bandaríkjanna. ■
Bandaríkjamenn og Bretar leggja fram fjórðu tillögu sína:
Samráð en ekki neitunarvald
SKATTRANNSÓKN Helstu athuga-
semdir skattrannsóknarstjóra í
frumskýrslu skattrannsóknar
Baugs á tímabilinu 1998 til 2002
lúta að því hvernig staðið var að
verðmati fyrirtækja sem lögð
voru inn í félagið við stofnun þess.
Verðmatið hefur áhrif á skatt-
greiðslur og lúta athugasemdirn-
ar að því að opinber gjöld hafi
verið vantalin í kjölfarið, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Fyrirtækin eru Gaumur, sem var
eigandi helmings hlutar í Bónus,
og Hagkaup, en saman mynduðu
þessi félög ásamt sameiginlegu
innkaupafyrirtæki þeirra Baug
við stofnun félagsins.
Skattrannsóknin á rætur sínar
í rannsókn efnahagsbrotadeildar
lögreglunnar sem staðið hefur
yfir í hátt á annað ár. Efnahags-
brotadeildin sendi skattyfirvöld-
um ábendingar um að rökstuddur
grunur væri um að viðskipti milli
Gaums og Baugs væru með þeim
hætti að tilefni væri til rannsókn-
ar. Skattrannsóknarstjóri gerði í
kjölfarið húsleit hjá Baugi og
Gaumi í nóvember síðastliðnum.
Skattrannsóknarstjóri og aðilar
málsins hafa ekki viljað tjá sig um
innihald frumskýrslunnar, en
Hreinn Loftsson, lögmaður Baugs,
sagði andmælafrestinn, sem er til
25. júní, verða nýttan til að fara
yfir frumskýrsluna og leiðrétta og
svara því sem þar kemur fram.
Ekki hafa fengist upplýsingar
um umfang málsins og þær upp-
hæðir sem athugasemdirnar snú-
ast um. Rannsóknin náði yfir fimm
ára tímabil. Velta Baugs yfir þetta
tímabil nam nærri 150 milljörðum
króna. Gera má ráð fyrir að virðis-
aukaskattur af starfsemi Baugs
yfir tímabilið hafi numið um 30
milljörðum króna. Sjá síðu 2.
MEÐ MJÓLKURHRISTING Í BLÍÐUNNI Veðrið ætlar að leika við landsmenn næstu daga. Hitinn á landinu verður víðast hvar yfir tíu
stiga mörkunum og fer sums staðar nálægt 20 stigunum í dag og næstu daga. Það var ekki annað að sjá en fólkið á myndinni nyti veð-
ursins meðan það skoðaði myndir úr síðasta ferðalagi en hundurinn virðist hafa séð sér þann kost vænstan að leggjast í skugganum.
HANDTEKNIR AL-KAÍDALIÐAR
Pakistanar handtóku þessa þremenninga
og sökuðu þá um að starfa með al-Kaída.
Al-Kaída hótar:
Ráðast á
flugvélar
EGYPTALAND, AP Vestrænar flugvél-
ar verða helsta skotmark hryðju-
verkamanna á næstunni ef marka
má yfirlýsingu sem birtist á ís-
lömskum vef og er sögð vera frá
hryðjuverkasamtökum sem tengj-
ast al-Kaída. Ekki tókst þó að fá
staðfest að yfirlýsingin væri
raunverulega frá al-Kaída.
„Allt sem tengist þessum
krossförum - byggingar, herstöðv-
ar og samgöngutæki, einkum
vestrænar og bandarískar flug-
vélar, verða skotmörk næstu að-
gerða okkar í þessu heilaga stríði
sem, með guðs hjálp, við verðum
ekki hindraðir í að heyja í náinni
framtíð,“ sagði í yfirlýsingunni. ■
Rannsókn beinist
að stofnun Baugs
Samkvæmt frumskýrslu skattrannsóknarstjóra hefur vanmat á verðgildi
fyrirtækja við stofnun valdið því að skattgreiðslur hafi verið lægri en lög
segja til um. Frestur er til 25. júní til þess að svara frumskýrslunni.
● ekkert rugl á galdrastráknum
Kalli Lú:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Vildi lyfta
bumbunni
● heilsa o.fl.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Landsbankadeild karla:
● fjórir leikir í deildinni í gærkvöld
GEORGE W. BUSH
Beðinn um að draga úr takmörkunum við
stofnfrumurannsóknum.
Stofnfrumurannsóknir:
Dregið verði
úr hömlum
WASHINGTON, AP 58 bandarískir öld-
ungadeildarþingmenn hafa ritað
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta bréf þar sem þeir biðja hann
um að slaka á takmörkunum við
stofnfrumum.
Þingmennirnir segja að barátta
Ronalds Reagans, fyrrum forseta,
við Alzheimer undirstriki mikil-
vægi þess að auka rannsóknir á
fósturvísum. Bréf sitt sendu þing-
mennirnir þó á föstudag, degi
áður en Reagan lést.
Stofnfrumur eru alla jafna
teknar úr nokkurra daga gömlum
fósturvísum og ræktaðar í rann-
sóknastofum. Fósturvísunum er
eytt þegar frumurnar eru teknar
úr þeim og jafna sumir íhalds-
menn því við fóstureyðingu. ■