Fréttablaðið - 08.06.2004, Side 40

Fréttablaðið - 08.06.2004, Side 40
■ ■ TÓNLEIKAR  20.00 Kristín Björg Ragnarsdóttir fiðluleikari og Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanóleikari flytja verk eftir Bach, Beethoven, Brahms, Saint-Saëns og Jónas Tómasson á tónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. ■ ■ SKEMMTANIR  21.00 Hlín Agnarsdóttir, Ólafur Gunnarsson, Ágústína Jónsdótt- ir, Guðmundur Andri Thorsson, Anna Pálína Árnadóttir, Bene- dikt S. Lafleur og Gunnar Dal lesa úr verkum sínum á Skálda- spirukvöldi á Kaffi Reykjavík. ■ ■ ÚTIVIST  19.30 Í fyrstu kvöldgöngu sumars- ins í Viðey fjallar Örvar B. Eiríks- son sagnfræðingur um Viðey frá 10. öld alveg fram á þá 20. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð- ar en sólarhring fyrir birtingu. 32 8. júní 2004 ÞRIÐJUDAGUR Á góðum bíl í fríið með Avis Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað – Það borgar sig Hringdu til AVIS í síma 591-4000 Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og flugvallargjald. (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga). Ekkert bókunargjald - Gildir til 31. mars 2005. Verð háð breytingu á gengi. Verona kr. 2.400,- á dag m.v. B flokk Bologna kr. 2.400,- á dag m.v. B flokk Milano kr. 2.400,- á dag m.v. B flokk www.avis.is Við gerum betur Ítalía AVIS Knarrarvogi 2 - 104 Reykjavík - Sími 591 4000 Fax 591 4040 - Netfang avis@avis.is Munið Visa afsláttinn Klukkan hálfátta í kvöld legg-ur Viðeyjarferjan úr höfn áleiðis til Viðeyjar. Um borð verða þátttakendur í fyrstu kvöldgöngu sumarsins. „Þetta er árvisst hjá okkur í eyjunni. Þessar göngur hafa ver- ið á þriðjudagskvöldum í mörg ár, en við ætlum reyndar að hafa göngurnar í sumar þematengdari en oft áður,“ segir Örvar B. Ei- ríksson, sagnfræðingur og verk- efnisstjóri Viðeyjar. Hann verður einnig leiðang- ursstjóri fyrstu göngunnar, en síðar í sumar má eiga von á fuglagöngu með Einari Þorleifs- syni, jarðfræðigöngu með Ástu Þorleifsdóttur og svonefndri Serragöngu með Kristni Hrafnssyni, sem fjallar um úti- listaverkið eftir Richard Serra. Sjálfur er Örvar sagnfræð- ingur og ætlar því að fjalla í kvöld um sögu eyjunnar alveg frá tíundu öld og fram á þá tutt- ugustu. „Þetta er þúsund ára saga, svo það er meira en nóg um að tala.“ Sérstaka áherslu ætlar hann að leggja á klaustrið sem var í Viðey 1224-1550 og einnig á veru Skúla Magnússonar og Stephensenættarinnar í Viðey. Í því sambandi verða Viðeyjar- stofa og Viðeyjarkirkja skoðuð ásamt uppgreftrinum á klaust- urrústunum. Þá verður Þórir Stephensen, prestur og fyrrverandi staðar- haldari í Viðey, með eina göngu og sömuleiðis Örlygur Hálfdan- arson, sem er fæddur og uppal- inn í Viðey. Ein gangan verður svokölluð maraþonganga, þar sem gengið verður allan hringinn í kringum eyjuna, og svo verður eitt kvöld- ið siglt umhverfis eyjuna svo hægt verði að skoða hana frá sjó. „Alls verða þetta tólf göngur og síðan verðum við líka með fjölskyldusunnudaga þar sem siglt verður frá Reykjavíkur- höfn klukkan 13.30 og siglt aftur til baka klukkan 16.30. Einnig verða tvær messur, sem Dóm- kirkjuprestarnir sjá um.“ Gangan tekur u.þ.b. tvær klukkustundir og kostar 500 kr. fyrir fullorðna en 250 kr. fyrir börn. Ef þátttaka er nægileg verður kaffisala í Stofunni í lok göngunnar. ■ DAVID BOWIE Gamla goðið mun heiðra hátíðina með framkomu sinni í ár. Rás 2 býður á Hróarskeldu Forseti Popplands, Ólafur PállGunnarsson á Rás 2, hefur ákveðið að veita 10 tónlistará- hugamönnum styrk til þess að fara á Hróarskelduhátíðina í ár. Þetta gæti verið gott fyrir tónlist- arþyrsta námsmenn sem langar að fara en eiga erfitt með að gal- dra fram peninga fyrir miðum. Til þess að sækja um styrkinn geta þegnar Popplands sent inn SMS-skeytið „JA POPPLAND“ á númerið 1900. Til baka verða sendar spurning um Hróarskeldu og þeim skal svarað með SMS- skeytunum JA A, B, C, eftir því sem við á hverju sinni. Þátttak- endum verður tilkynnt um hæl hvort þeir hafa unnið eður ei. Ní- undi hver þátttakandi sem svarar rétt, vinnur miða. Auk þeirra 10 sem fá flug og miða inn á Hróarskeldu er glás af aukavinningum. Þar á meðal flug- miðar, geisladiskar, glaðningar frá 66˚ norður, Hróarskeldubolir, húfur og margt fleira. ■ CSI-sjónvarpsþættirnir eru átak-anlega hallærislegir en um leið er eitthvað svo ómótstæðilegt við þá að maður horfir á þátt eftir þátt. Það er því eitthvað verulega bogið við að nú virðist komin í gang blóm- leg útgáfa á myndasögum byggðum á þáttunum. Það er svo enn undar- legra að Max Allan Collins, höfund- ur myndasögunnar Road to Perdition, skuli skrifa þessar CSI myndasögur - og finnast það bara hið besta mál. Myndasagan er nefnilega frum- legasti og svalasti miðill afþreying- armenningarinnar á meðan mest af því hallærislegasta og útvatnaðasta á sér öruggt skjól í sjónvarpinu. Báðir eru þessir miðlar þó vissu- lega sjónrænir og það verður að segjast eins og er að yfirfærslan á CSI hefur heppnast býsna vel. Það breytir því þó ekki að CSI-mynda- sagan er hallærisleg en rétt eins og þættirnir er hún ágætisskemmtun þó hún skilji minna en ekki neitt eft- ir sig. Bad Rap hefst á því að heitasti pönkrapparinn í Las Vegas verður manni að bana. Grissom og félagar á næturvakt glæparannsóknadeild- arinnar þurfa þó ekki að reyna mik- ið á sig til að leysa málið þar sem morðið var tekið upp á eftirlits- myndband. Öllu verra er að rappar- inn er sjálfur skotinn til bana áður en Grissom og löggan Brass hafa hendur í hári kauða. Og þá byrjar ballið. Undirmenn Grissoms rannsaka allt í bak og fyrir en morðalda virð- ist skyndilega ganga yfir tónlistar- bransann í Las Vegas þar sem um leið og ný sönnunargögn benda á líklegan morðingja finnst sá hinn sami dauður. Bad Rap lýtur öllum lögmálum CSI-þáttanna og er fyrirsjáanleg en þó ekki leiðinleg. Teiknistíllinn er tilþrifalítill og skýr þannig að það þekkja allir Grissom, Catherine, Warrick, Nick og Söru - þau eru eig- inlega alveg eins og í sjónvarpinu. Sögunni er síðan gefin smá stíll með því að láta annan teiknara sjá um endurlit og framburð vitna. Þær teikningar eru grófari og óskýrari en meginsagan og eiga að virka sem kúl stílbrot rétt eins og sambærileg myndskeið í sjónvarpsþáttunum. Þetta er ekkert spes en virkar vel fyrir sinn hatt og ég gæti vel hugsað mér að lesa næstu CSI-bók ef hún verður á vegi mínum. Þórarinn Þórarinsson ■ TÓNLEIKAR ■ VIÐEYJARFERÐ ÖRVAR B. KRISTINSSON Fjallar um sögu Viðeyjar á fyrstu kvöld- göngu sumarsins. Þúsund ára saga Viðeyjar HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 5 6 7 8 9 10 11 Þriðjudagur JÚNÍ Teiknaður sjónvarps- þáttur [ MYNDASÖGUR ] UMFJÖLLUN CSI: BAD RAP VIÐEY Gönguferðir verða um eyjuna á þriðjudagskvöldum í allt sumar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.