Fréttablaðið - 11.08.2004, Síða 8
8 11. ágúst 2004 MIÐVIKUDAGUR
BRUSSEL, AP Evrópusambandið
lýsti því yfir í gær að það væri
undir Sameinuðu þjóðunum kom-
ið að ákvarða hvort óöldin í Darf-
ur-héraði í Súdan jafngilti þjóðar-
morði.
Bandaríska þingið og nokkur
mannúðarsamtök hafa sakað súd-
önsk stjórnvöld um þjóðarmorð í
Darfur en ríkisstjórn Bandaríkj-
anna hefur þó ekki viljað ganga
svo langt.
Sérstök sveit á vegum ESB
sem heimsótti héraðið á dögunum
sagði að grimmdarverk væru þar
framin í stórum stíl en vildi þó
ekki fella þau undir þjóðarmorð.
Foringi sveitarinnar, Pieter Feith,
lagði þó áherslu á að heimsókn
sveitarinnar hefði aðeins varað í
fimm daga og byggði ekki á sér-
fræðirannsóknum.
Arabar sem njóta stuðnings
ríkisstjórnar Súdan hafa farið
með ófriði á hendur svörtum íbú-
um Darfur-héraðs í eitt og hálft
ár. Um 30 þúsund manns hafa fall-
ið og ein milljón manna er á hrak-
hólum vegna grimmdarverkanna.
Sveitin sem ESB sendi til Darf-
ur mælir með því að sambandið
sendi hóp lögregluforinga til að
aðstoða yfirvöld í Súdan við að ná
tökum á ástandinu. ■
Útlánaeftirlit stóraukist
Samkeppni um hag hluthafa bankanna hefur orðið til þess að útlánaeftirlit hefur stóraukist í
bankakerfinu. Bankarnir hafa tekið upp nýjar innri reglur. Eftirlit með innheimtu hefur einnig
verið aukið. Afskriftahlutfall sagt of hátt hér á landi.
BANKAR Viðskiptabankarnir hafa
stóraukið útlánaeftirlit og endur-
skoðað innri reglur varðandi útlán
í því skyni að draga úr afskriftum.
Ein helsta ástæðan er samkeppni
milli bankanna um fjárfesta.
Sigurjón Árnason, bankastjóri
Landsbankans, segist sannfærður
um mikilvægi þess að auka út-
lánaeftirlit því með því megi með
tiltölulega litlum tilkostnaði spara
gífurlegar upphæðir. Reynslan á
Íslandi sé sú að afskriftir séu um
eitt prósent af útlánum. Sem
dæmi eru útlán Landsbankans um
430 milljarðar og tapist því um 4,3
milljarðar árlega vegna afskrifta.
„Með því að auka við mann-
skap og bæta vinnubrögð við eft-
irlit, eins og Landsbankinn hefur
gert, má lækka prósentutöluna.
Það þarf ekki mikla prósentu-
lækkun til þess að skila miklum
sparnaði,“ segir Sigurjón.
Hann segir að íslenskir bankar
eigi að geta komist niður í 0,7 til
0,8 prósenta afskriftahlutfall.
Björn Björnsson, aðstoðarfor-
stjóri Íslandsbanka, segir að með
stækkun bankanna hafi vinnu-
brögð orðið faglegri.
„Aukin samkeppni milli bank-
anna er þó ekki síst ástæðan fyrir
auknu útlánaeftirliti og skiptir
hagur hluthafa þar miklu máli,“
segir Sigurjón.
Sigurjón segir að aukið útlána-
eftirlit hagnist þó ekki síður við-
skiptavinum því hagræði skiptist
ávallt milli neytenda og eigenda.
„Minna tap skili sér jafnframt í
hagstæðari vaxtarkjörum. Það
gerir bankann að vænlegri val-
kosti fyrir neytendur og um leið
ákjósanlegri kost fyrir fjárfesta,“
segir Björn.
Afskriftir stóru viðskiptabank-
anna þriggja, Íslandsbanka, Lands-
bankans og KB banka hafa dregist
saman að undanförnu eftir að hafa
náð hámarki á síðasta ári.
Pers Matt Henje, fram-
kvæmdastjóri lögfræðisviðs KB
banka, segir að afskriftir bankans
hafi verið hærri undanfarið en
ákjósanlegt þykir. Það mesta sé
þó yfirstaðið og verulega muni
draga úr afskriftum útlána það
sem eftir er af árinu. Hinir bank-
arnir taka í sama streng og búast
við því að þróunin verði áfram já-
kvæð.
sda@frettabladid.is
Bandarískir lögmenn:
Fordæma
illa meðferð
ATLANTA, AP Stærstu lögmanna-
samtök Bandaríkjanna fordæma
meðferð bandarískra stjórn-
valda á föngum sem haldið er í
Írak og á Kúbu. Segir í ályktun
samtakanna að framganga
bandarískra stjórnvalda sé vatn
á myllu hryðjuverkasamtaka,
því hún gefi þá mynd af Banda-
ríkjunum að þau virði lög að
vettugi.
Meðlimir í samtökunum eru
rúmlega 400 þúsund. Mikill
meirihluti meðlima studdi álykt-
unina en sumir sögðu rangt af
samtökunum að taka pólitíska
afstöðu með þessum hætti. ■
Dæmdur
fyrir að
nauðga
dóttur
vinahjóna
sinna
– hefur þú séð DV í dag?
Sagðist of feitur
til að nauðga
SRI RAHMAWATI
Farið verður fram á framlengingu gæslu-
varðhalds yfir Hákoni Eydal, banamanni
Sri, í dag.
Sri Rahmawati:
Lést af völd-
um höfuð-
áverka
LÖGREGLA Ljóst er að Sri Rahmawati
lést vegna höfuðáverka samkvæmt
bráðabirgðaniðurstöðum krufning-
ar sem framkvæmd var fyrir síð-
ustu helgi að sögn Harðar Jóhann-
essonar, yfirlögregluþjóns í Reykja-
vík. Hann segir endanlegar niður-
stöður ekki liggja fyrir en rannsókn
málsins sé á lokastigi.
Gæsluvarðhald yfir Hákoni
rennur út í dag og segist Hörður
gera ráð fyrir að farið verði fram á
framlengingu þess. En Hákon játaði
að hafa orðið fyrrverandi sambýlis-
konu sinni og barnsmóður, Sri Ra-
hmawati, að bana sunnudagsmorg-
uninn fjórða júlí, um þremur vikum
eftir að hann banaði henni. Hann
var fyrst úrskurðaður í tveggja
vikna gæsluvarðhald þann sjöunda
júlí. Síðar var farið fram á þriggja
vikna gæsluvarðhald sem rennur út
í dag. ■
Langt verkfall náist ekki að semja fyrir 20. september:
Eiga 801 milljón
í verkfallssjóði
MENNTAMÁL Um 801 milljón er í
vinnudeilusjóði Kennarasam-
bands Íslands. Allir kjarasamn-
ingar félaga innan sambandsins
eru lausir og hafa grunnskóla-
kennarar ákveðið að fara í verk-
fall náist ekki samningar fyrir 20.
september. Kennarasambandið og
launanefnd sveitarfélaganna
funda eftir sumarleyfi hjá ríkis-
sáttasemjara í dag.
Eiríkur Jónsson, formaður KÍ,
segir að náist ekki samkomulag
um kjaramál kennara fyrir
tuttugasta næsta mánaðar eigi
hann von á löngu verkfalli.
„Sagan kennir okkur það að ef
okkur tekst ekki að afstýra verk-
falli áður en það brestur á eru all-
ar líkur á að það geti skipt mörg-
um vikum,“ segir Eiríkur.
Verkfallsbætur kennara eru
þrjú þúsund krónur fyrir hvern
verkfallsdag fyrir félagsmann í
fullu starfi en greitt er hlutfalls-
lega fyrir hlutastarf, samkvæmt
vefsíðu Kennarasambandsins.
Eiríkur segir að þar sem fleiri
félög séu innan sambandsins en
Félag grunnskólakennara hafi
ekki verið tekin ákvörðun um
hvernig greitt verði úr sjóðnum
dragist verkfall á langinn. ■
ÓNÝT LEIÐSLA
Leiðslan sem fór í sundur í kjarnorkuverinu
í Mihama í Japan.
Slys í kjarnorkuveri:
Varað við
fyrir ári
JAPAN, AP Vanræksla í viðhaldi er
talin orsök slyssins sem kostaði
fjóra menn lífið í japönsku kjarn-
orkuveri í fyrrdag. Leiðsla með
kælivökva fór í sundur og hleypti
út brennandi heitri gufu. Varað
hafði verið við hættu af leiðslunni
í fyrra en hún hafði ekki verið yf-
irfarin síðan 1996.
Rannsókn stendur nú yfir á til-
drögum slyssins en málið hefur
vakið mikinn ugg í Japan. Starf-
rækt eru 52 kjarnorkuver í Japan
sem sjá fyrir þriðjungi af orku-
þörf Japana. Líklegt er að kæli-
leiðslur verði yfirfarnar í öllum
kjarnorkuverum landsins í kjöl-
far slyssins. ■
BEÐIÐ EFTIR LÆKNISHJÁLP
Lítill drengur bíður eftir að komast til
læknis í flóttamannabúðum í Darfur. Hann
er einn af milljón sem eru á hrakhólum í
héraðinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
PESB horfir til Sameinuðu þjóðanna vegna Darfur:
Meta hvort þjóðar-
morð eigi sér stað
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
EIRÍKUR JÓNSSON
Formaður Kennarasambands Íslands býst
við löngu verkfalli náist ekki að tryggja
kennurum kjarasamning fyrir 20. septem-
ber. Eignir í verkfallssjóði kennara voru
tæplega 801 milljón um áramótin. Megnið
af fénu er laust með mánaðar eða
skemmri fyrirvara.
PENINGAR
Afskriftir stóru viðskiptabankanna hafa dregist saman að undanförnu eftir að hafa náð
hámarki á síðasta ári.
SVONA ERUM VIÐ
Landsmenn unnu 42,2 klukkustundir á
viku frá apríl til júlí.
Konur: 36,0 klst
Karlar: 47,4 klst
Meðaltal: 42,2 klst
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS