Fréttablaðið - 11.08.2004, Page 11
11MIÐVIKUDAGUR 11. ágúst 2004
■ VIÐSKIPTI
Snillingar á öllum svi›um
JEVA skólatöskur. Leikfimi-
poki, nestisbox, flaska.
Tvær stær›ir: 8.990 kr.
Urban Team skólalínan.
Einnig miki› úrval af
ö›rum ritfangalínum.
Beckmann skólatöskur.
Me› blikkljósi og mittisól.
Margar ger›ir: 8.990 kr.
Bakpoki. Me› leikfimipoka.
firír litir: 3.990 kr.
FÍ
TO
N
/
S
ÍA
F
I0
10
25
3
Úrvali›, gæ›in og fljónustan eru hjá okkur, enda höfum vi› fljóna› snillingum á öllum svi›um frá 1872.
MANNSKÆÐ ÁRÁS
Þeir sem létust voru á öðru hótelanna sem
ráðist var á.
Hryðjuverk:
Sprengt á
þrem stöðum
TYRKLAND, AP Tveir létust og ell-
efu særðust þegar sprengjur
sprungu á tveimur hótelum í
Istanbúl og á eldsneytisbirgða-
stöð í útjaðri borgarinnar.
„Þetta virðist vera hryðju-
verkaárás,“ sagði Celalettin
Cerrah lögreglustjóri. Skömmu
síðar lýstu íslömsku samtökin
Abu Hafs al-Masri ábyrgð á
hendur sér. Þetta er ekki í fyrs-
ta sinn sem samtökin gera slíkt
en sumir sérfræðingar telja
samtökin eigna sér fleiri verk
en þau geti með sanni gert til-
kall til. Samtökin segja þetta
upphafið að blóðugu stríði í Evr-
ópu. ■
ERU MEÐ Á NOR-FISHING Fimm
íslensk fyrirtæki taka á vegum
Útflutningsráðs þátt í sýningunni
Nor-Fishing í Þrándheimi í Nor-
egi sem hófst í gær og lýkur á
föstudag. Í Fréttaskoti Útflutn-
ingsráðs kemur fram að þetta séu
fyrirtækin Skaginn, Marorka,
Neptúnus, Hafnarfjarðarhöfn og
NAS. Þá verða á sýningunni fleiri
íslensk fyrirtæki sem taka þátt á
eigin vegum eða með umboðsað-
ila.
VERKEFNI FYRIR BYRJENDUR Í
haust býður Útflutningsráð í
fimmtánda sinn til verkefnisins
Útflutningsaukning og hagvöxtur.
Verkefnið er ætlað fyrirtækjum
sem hyggja á útflutning eða vilja
efla þá starfsemi sína. Haldnir
verða tveggja daga mánaðarlegir
vinnufundir í níu mánuði sam-
fleytt, auk mánaðarlegs vinnu-
dags með ráðunautum, markaðs-
rannsóknum, kynnisferðum og
fleiru.
NÁMSDAGSKRÁ Í FÆÐINGU Verið
er að leggja lokahönd á dagskrá
námskeiða og fræðslu hjá Út-
flutningsráði, að því er fram
kemur í fréttariti ráðsins, Frétta-
skoti. Boðið verður upp á lengri
og styttri námskeið, námsstefnur,
fræðslufundi um ákveðin lönd og
fleira. Nánari upplýsingar er að
finna á vef ráðsins, utflutnings-
rad.is.
VEÐURBLÍÐA
Fjöldi fólks sat utandyra á kaffihúsum mið-
borgar Reykjavíkur í gær enda var þetta
einn hlýjasti dagur sumarsins.
Viktoría Áskelsdóttir:
Fyrst allra yfir Breiðafjörð
SUNDAFREK „Mér líður furðuvel,
enda búin að koma við í heita
pottinum,“ sagði Viktoría Ás-
kelsdóttir sem lauk í gær sundi
yfir Breiðafjörð, fyrst allra.
Bæjarbúar tóku vel á móti
Viktoríu þegar hún steig upp á
bryggjuna í Stykkishólmi að
sundinu loknu. Hún lagði af
stað frá Lambsnesi við Barða-
strönd hinn 24. júlí en sundleið-
in er rúmir 60 kílómetrar.
Vegna kuldaáhrifa gat hún ekki
synt lengur en um tvo tíma á
dag.
Viktoría er ekki óvön sjó-
sundi. Í fyrra synti hún úr Hrís-
ey yfir að Árskógsströnd og
hún stundar reglulega sjóböð,
jafnvel að vetrarlagi, með fé-
lögum sínum. Með sundinu yfir
Breiðafjörðinn vildi Viktoría
vekja athygli á starfi Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Hún hafði aldrei áður tekið
virkan þátt í því starfi. „Mér
fannst þetta verðugur málstað-
ur. Þetta er starf í þágu barna
og Sameinuðu þjóðanna og með
því að styðja það trúi ég að
heimsmálin komist smám sam-
an í bærilegt lag.“
Söfnunarsími Barnahjálp-
arinnar er 575 1520 og heima-
síða samtakanna er www.un-
icef.is. ■
VIKTORÍA ÁSKELSDÓTTIR
Synti til styrktar Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.