Fréttablaðið - 11.08.2004, Side 24
Opið hús verður hjá Nýja tölvu- og
viðskiptaskólanum í Kópavogi á
laugardaginn frá 13-16. Þar munu
kennarar og starfsfólk skólans
kynna þau námskeið sem í boði eru
á haustönn og svara spurningum
gesta um þau. Um ýmsar greinar
er að ræða í skólanum og má þar
nefna námskeið í auglýsingatækni,
myndbandavinnslu, vefsíðugerð
og myndvinnslu. Auk þess er boðið
upp á almennt tölvunám, bæði fyr-
ir byrjendur og lengra komna,
meðal annars sérhæfð námskeið
fyrir eldri borgara. Ýmsar
starfstengdar námsbrautir eru á
dagskránni hjá skólanum, þar geta
menn spreytt sig á sölu- og mark-
aðsnámi, skrifstofunámi og hönn-
un og áfram mætti telja. Þeir sem
mæta á opna húsið geta dottið í
lukkupott þar sem 10 heppnir fá
gjafabréf að verðmæti 25.000 kr. ■
Önnur söluhæsta fartölvan í Evrópu
tækni
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
WWW.SVAR.IS
tækniACERFARTÖLVUR
Eftir samræmdu prófin í grunn-
skóla skiptast námsmennirnir oft
í tvær þyrpingar; þeir sem halda
áfram í skóla og þeir sem fara út
á vinnumarkaðinn. Þeir sem
ákveða að feta námsbrautina
áfram þurfa allt í einu að hugsa
um bókakaup. Áður en skólinn
byrjar fá námsmenn bókalista í
hönd og þá er vissara að drífa sig
út á skiptibókamarkaði til að fá
bækurnar sem ódýrastar. Þeir
sem eru ekki að byrja í fram-
haldsskóla geta einnig farið með
gömlu bækurnar sínar og skipt
þeim út fyrir nýjar og borga þá
yfirleitt lítið á milli.
„Við erum bæði með nýjar og
gamlar bækur á markaðinum. Við
höfum yfirleitt þær eldri ofan á
þeim nýju þannig að þeir fyrstu
sem koma að kaupa bækur fá þær
ódýrustu. Krakkarnir koma með
bækurnar á kassann og þær bæk-
ur sem hægt er að taka inn eru
teknar inn. Þau fá síðan innleggs-
nótu sem gildir í ár fyrir allar vör-
urnar í búðinni. Þau koma næst og
skoða sig um á markaðinum,
kaupa þær bækur sem þær þurfa
og nota svo innleggsnótuna við
kassann,“ segir Nína Hjaltadóttir,
starfsmaður á skiptibókamarkaði
Griffils.
„Það er mismunandi eftir skól-
um en yfirleitt fá krakkar um tíu
til fimmtán þúsund krónur fyrir
gömlu bækurnar. Það dugir yfir-
leitt fyrir um
sextíu pró-
sent af kostn-
aði nýju
b ó k a n n a
þannig að
þetta marg
borgar sig.
Það er reynd-
ar endalaust verið að búa til nýjar
útgáfur og kenna nýjar bækur.
Það er ákveðin tíska í því eins og
öðru og við ráðum ekkert við það.
Auðvitað getum við ekki tekið inn
bækur sem ekki eru kenndar það
árið eða eru úreltar. Við fáum lista
frá skólunum um hvaða bækur
eru kenndar hverju sinni og verð-
um að fara alfarið eftir þeim,“
segir Nína og bætir við að þau í
Griffli byrji að taka inn bækur
strax á vorin. „Fólk kemur stund-
um á vorin en það er ekki mikið.
Þá tökum við inn þær bækur sem
við vitum að erum kenndar. Við
stoppum samt svolítið á því að við
getum ekki tekið inn allar bækur.
Mesta örtröðin byrjar náttúrulega
þegar um það bil vika er í skólann.
Við tökum bara inn það sem við
seljum og endum árið yfirleitt á
því að eiga eitthvað aðeins fram á
næsta ár. Nýjum bókum skilum
við aftur til útgefanda. Það eina
sem vantar eru bækur fyrir há-
skóla. Það er líklega vegna þess að
í háskólanum vill fólk yfirleitt
eiga bækurnar. Mjög fáir kaupa
bækur í menntaskóla með það í
huga að eiga þær um ókomna
framtíð. Þess vegna eru skipti-
bókamarkaðir svona sniðugir og
hagkvæmir í leiðinni.“
Nína hvetur námsmenn til að
koma sem fyrst með bækurnar á
skiptibókamarkaðinn. „Þó að
krakkar séu ekki komnir með
bókalista í hendurnar þá geta þeir
samt lagt inn gömlu bækurnar og
fengið innleggsnótuna. Við hjá
Grifli veitum ekki peninga fyrir
bækur þar sem við trúum því að
bækur ættu að vera keyptar fyrir
bókapeninga. Það er ákveðið
skynsemisatriði. Við tökum allar
bækur sem við þorum. Það er vilji
bókasölumannsins að sem flestir
fái bækurnar sem ódýrastar. Við
höfum það að markmiði að það fá-
ist allt hér og því fyrr sem krakk-
arnir koma því ódýrari bækur fá
þeir.“
lilja@frettabladid.is
Elín Hjaltadóttir hvetur krakka að koma sem fyrst á skiptibókamarkaðinn með gömlu bækurnar.
Hagkvæm leið í skólabyrjun:
Bækur ganga
manna á milli
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L
Bækur eru teknar inn á skiptibókamarkað
ef …
… þær eru í þannig ástandi að þú myndir kaupa þær.
… þær eru tiltölulega heilar.
… ekki vantar í þær neinar blaðsíður.
Ekki er verra ef bækurnar eru vel glósaðar fyrir komandi kynslóð.
Margmiðlun kynnt á opnu húsi:
Hagnýtt nám fyrir
nútímafólk
„Fyrir mér eru kennslustundirnar hjá Jóni Böðvarssyni ógleymanlegar því hann hafði
mikla ánægju af að kenna og lifði sig inn í það,“ segir Valgerður.
Eftirminnilegur kennari:
Kenndi af innlifun og
hreif alla með sér
„Mér dettur strax í hug tveir fyrrverandi kennarar mínir, annars
vegar Jón Böðvarsson sem kenndi mér sögu í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og hins vegar Rachel, leiklistakennari minn í San Diego í
Kaliforníu þar sem ég var eitt sinn skiptinemi,“ segir Valgerður Matthí-
asdóttir, arkitekt og sjónvarpskona á Skjá einum, þegar hún er spurð út
í eftirminnilegan kennara. „Fyrir mér eru ógleymanlegar kennslustund-
irnar hans Jóns Böðvarssonar. Hann hafði svo mikla ánægju af að kenna
og lifði sig svo inn í það að hann hreif alla með þannig að allir hlustuðu
á hann með athygli. Mér fannst ég meira að segja einu sinni sjá tár
renna hjá honum, þvílík var innlifunin,“ segir hún.
Þegar Valgerður var 17 ára gömul fór hún sem skiptinemi til San
Diego í Kaliforníu og segir hún dvölina þar hafa verið ógleymanlega
reynslu. „Þar hafði ég mjög skemmtilegan leiklistarkennara, hana
Rachel en hún var flippaður, skemmtilegur og hress hippi og mikil
listakona. Kennsluaðferðir hennar voru mjög nýstárlegar og allt öðru-
vísi en maður hafði vanist hér heima. Hún var náttúrulega að kenna
okkur leiklist og fyrir vikið var allt miklu frjálslegra heldur en í hefð-
bundnu fagi. Hún fór til dæmis í ferðalag með bekkinn um Kaliforníu
að skoða leikhús, sem mér fannst mér auðvitað mjög sérstakt og gam-
an,“ segir Valgerður. ■