Fréttablaðið - 11.08.2004, Page 45
33
[ MYNDBÖND ]
VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
Along Came Polly
GAMAN
Runaway Jury
SPENNA
Gothika
SPENNA
The Whole Ten Yards
GAMAN
Out of Time
SPENNA
Something¥s Gotta Give
GAMAN
Cheaper By the Dozen
GAMAN
Mystic River
SPENNA
Lost in Translation
DRAMA
Timeline
SPENNA
Missing, The
SPENNA
Dickie Roberts: Former Child Star
GAMAN
Freaky Friday
GAMAN
Monster
DRAMA
Stuck On You
GAMAN
Anything Else
GAMAN
Uptown Girls
GAMAN
Secondhand Lions
GAMAN
Big Fish
GAMAN
Beyond Borders
DRAMA
Topp 20
- Vinsælustu leigumyndböndin -
31. vika
MIÐVIKUDAGUR 11. ágúst 2004
„Hún er greinilega mikill verslun-
armaður,“ segir Bragi Halldórs-
son, kaupmaður í versluninni Rani-
mosk á Klapparstíg um Pink, sem
hélt hér tónleika í gærkvöld. Áður
en kom að tónleikunum skrapp hún
þó í smá verslunarleiðangur í mið-
bænum og kom við í tveimur búð-
um, Ranimosk og Nonnabúð sem
er þar við hliðina. „Það komu tveir
bílar, fullir af öryggisvörðum sem
hún hoppaði út úr. Fyrst kom hún
hingað, fór svo í Nonnabúð og svo
var hún farin.“
Bragi segist þó ekki hafa þekkt
hana, því hún hafi verið svo róleg
og hógvær. „Það var ekki fyrr en
einhverjar smástelpur fóru að
biðja hana um eiginhandaráritun
að ég uppgötvaði hver þetta væri.“
Þó svo að framkoman hafi ekki
komið upp um hana, með því að
vera svolítið villt eins og hún er
þekkt fyrir úr tónlistinni, mátti
frekar sjá þá hlið á henni af því
sem hún keypti. „Hún keypti boli
eftir okkur hérna sem eru skreytt-
ir með hauskúpum, póstkort, hand-
gerða skyssubók með hauskúpum
og meira en handfylli af barm-
merkjum. Í Nonnabúð keypti hún
svo nokkra boli og Dead-jakka með
kvensniði.“ Það er ekki annað að
sjá en að Pink hafi líkað vel við ís-
lenska hönnun. ■
MARÍA PÉTURSDÓTTIR OG BRAGI
HALLDÓRSSON
Pink leyst greinilega vel á úrvalið hjá þeim
í Ranimosk.
Pink í verslunartúr
■ DÁLEIÐSLA
■ FÓLK
Tónleikaferðalag Madonnu um
Bretland fer nú að hefjast og dag-
blaðið The Sun segir frá þeim kröf-
um sem poppstjarnan gerir varð-
andi búningsherbergi og fleira. Eitt
af því sem Madonna vill er að sér-
stakt „hvíldarherbergi“ verði byggt
fyrir hana. Hún vill hljóðeinangrað
svæði þar sem hún getur hugleitt og
fallið í trans áður en hún fer á svið.
Hugleiðslan er hluti af trú hinnar 45
ára ofurstjörnu sem er fylgjandi
hinnar dulúðlegu gyðinglegu
Kabbalah-trú. Nýlega var sagt frá
því að Madonna ætli að reiða fram
um einn og hálfan milljarð króna
fyrir stofnun Kabbalah-skóla í New
York, the Kabbalist Grammar
School For Children, þar sem krökk-
um á grunnskólaaldri verður kennd
iðkun gyðingatrúar.
Blaðið segir jafnframt að vegg-
ir herbergisins verði að vera huld-
ir grænum efnisströngum og hafa
mjúka púða á gólfinu. Haft er eftir
innherja að hún vilji ekki heyra
títuprjón falla og að herbergið
verði að vera grænt til að hjálpa til
við hugleiðsluna. Það er verið að
innrétta herbergið í Manchester,
þar sem Madonna heldur tvenna
tónleika nú um helgina. ■
Algjör þögn
MADONNA
Leitast eftir frið og ró.
■ TÓNLIST
Miðasala á dávaldinn Sailesh
hefst í dag klukkan 10 en hann
mun dáleiða Íslendinga á
skemmtistaðnum Broadway 24.
september. 1000 sæti verða í boði
fyrir áhugasama á sýninguna sem
stendur í tvær og hálfa klukku-
stund.
Miða má nálgast í verslunum
Skífunnar á Laugavegi en athygli
er vakin á því að sýningin er
bönnuð fólki innan 18 ára aldurs.
Miðaverð er 2.500 krónur.
Á sýningunni mun plötu-
snúðurinn Greg Kusiak gæta þess
að rétta tónlistin sé spiluð til að
halda uppi stemningunni.
Sailesh býr í Bandaríkjunum,
þar sem hann ferðast um með
sýningu sína, auk þess sem hann er
með nýjan sjónvarpsþátt í bígerð
fyrir sjónvarpsstöð þar vestra.
Hann hefur gráðu í dáleiðslu eftir
tveggja ára nám. Þá hafði hann
ferðast í um áratug með þekktum
dávaldi og lært ýmis brögð af þeim
gamla meistara.
Sýningin hans í dag miðast við
að fá áhorfendur til að hlægja,
sérstaklega þegar þeir horfa upp
á vini og vandamenn fara á kos-
tum á sviðinu undir dáleiðslu
Sailesh. ■
Dáleiðslan nálgast
SAILESH
Hann hefur meðal annars verið nefndur
fyndnasti gríndávaldurinn á jörðinni á MTV.
DIESEL OG DAVALOS
Bandaríski leikarinn Vin Diesel og meðleikkona hans Alexa Davalos úr kvikmyndinni The
Chronicles of Riddick voru glaðbeitt á frumsýningu myndarinnar í London á dögunum.