Fréttablaðið - 11.08.2004, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Þjóð í álögum
Hitamet ágústmánaðar varslegið í gær og víða um land
var heitara en nokkru sinni áður
hefur mælst. Á slíkum dögum
breytist allt. Það er eins og verði
til einhver galdur. Fólk rýkur út á
götur og myndar mannmassa í
miðbænum og á helstu útivistar-
svæðum. Þeir sem eiga þess kost
taka sér frí í vinnunni eða hætta
að minnsta kosti fyrr en vanalega.
Fólk vill eðlilega reyna þetta nátt-
úruundur á eigin skinni.
OG ALLIR TALA um veðrið.
Jafnvel þeir sem eru ókunnugir
fyrir geta ekki orða bundist og
skiptast á nokkrum orðum um
blessaða blíðuna. Í útvarpi og
sjónvarpi er líka talað um veðrið
og í blöðunum er skrifað um það.
Staðreyndir eru raktar og farið út
í mannmassann til að ræða við
fólk um veðrið. Og allir, eða að
minnsta kosti nánast allir, eru
himinlifandi og lukkulegir með
sólina og hitann, merkilegt nokk.
Einhugurinn er mikill og veðrið
verður eins og sameiningartákn,
öll dýrin í skóginum eru vinir af
því að sólin skín svo fallega og
þeyrinn er svo undurhlýr og
mjúkur.
VENJULEGT góðviðri er þó orð-
ið alvanalegt á síðustu árum þan-
nig að nú orðið þarf meira til en
áður til að gott veður hafi jafn-
kynngimögnuð áhrif á þjóðarsál-
ina eins og það hafði í gær. Eigin-
lega má segja að fólk sé hætt að
kippa sér upp við það þótt sólin
skíni dag eftir dag og og köld
gjóna víki fyrir mildum þey. En
fyrr má nú rota en dauðrota og á
degi eins og í gær bresta allar
stíflur.
FYRIR LÖNGU hafði ég horfst í
augu við það að örlög mín væru
að eiga heima í landi þar sem hug-
takið gott veður hefði lítillega
aðra merkingu en meðal vel
flestra annarra þjóða. Gott veður
getur nefnilega merkt svo margt
á íslensku, til dæmis fallegt veður,
milt veður, stillt veður og þannig
mætti áfram telja. Hins vegar
hefur lítið reynt á að við höfum
þurft að nota hugtakið gott veður
um mikinn hita. Kannski að komið
sé að því að taka verði þetta til
endurskoðunar. Það getur nefni-
lega orðið heitt, meira að segja í
Reykjavík. Það sem einu sinni
hefur gerst getur nefnilega hæg-
lega gerst aftur.
BAKÞANKAR
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR