Fréttablaðið - 19.08.2004, Blaðsíða 40
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Gíslína S. Gísladóttir
(Didda Gísla)
áður á Brunnstíg 7, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 20. ágúst kl. 13.30.
Stefán Jónsson, Edda Magnúsdóttir, Jón Örn Stefánsson,
Hildur S. Guðmundsdóttir, Linda M. Stefánsdóttir,
Víðir Stefánsson, Hulda Ólafsdóttir,
Hulda Björg Stefánsdóttir og langömmubörn.
„Ég er eiginlega ekki búinn að
ákveða hvað ég mun gera,“ segir
Kristinn H. Gunnarsson alþingis-
maður, sem er 52 ára í dag. „Ég
ætla að reyna að vera í fríi meðal
minna nánustu og reyna að gera
eitthvað skemmtilegt í hvers-
dagsleikanum.“ Hann segist jafn-
framt gjarna vilja vera farinn
vestur á firði, en aðstæður leyfi
það ekki. „Ég er að mestu leyti að
dóla mér í fríi en það er mikil um-
ræða innan flokksins um ráð-
herraskipan og ég tek þátt í því.“
Konur innan Framsóknarflokks-
ins hafa ályktað að gæta þurfi að
jafnréttisstefnu flokksins þegar
uppstokkunin verður í ráðherra-
liðinu og tekur Kristinn undir
þær raddir.
„Það er fín umræða þegar
menn koma fram opinberlega
undir nafni og segja sína skoðun.
Þetta er miklu betra en þegar ráð-
herrar og aðrir eru að láta hafa
eftir sér í fjölmiðlum undir nafn-
leynd. Þetta kallar fram rök-
stuðning fyrir ráðherravali, að
það séu skýrar málefnalegar
ástæður til að velja á milli manna.
Núna er helmingur þingmanna
ráðherrar og þá geta þeir ráðið
niðurstöðunni með því að standa
saman og þingmenn utan ráð-
herrastóla hafa því minni áhrif.“
Kristinn segist sammála því að
jafnræði þurfi á milli kynja og
segir það fráleita niðurstöðu ef
ein kona og fjórir karlmenn verða
ráðherrar flokksins. „Konur hafa
ákveðna eiginleika sem er mikill
fengur í pólitíkinni. En þær þurfa
þá að halda þeim fram en ekki til-
einka sér stjórnunarhætti karl-
anna.“ Sjálfur segist hann vera
tilbúinn að verða ráðherra en
ekki skilyrðislaust. „Ég læt undan
flokksviljanum og flokkssam-
þykktum, þótt ég hafi verið þeim
ósammála. En ég er ekki tilbúinn
að láta segja mér að gera eitthvað
sem ég tel ekki rétt. Ég er ekki til-
búinn að ganga á ákveðin réttindi
eins og mannréttindi því það er
ekki hægt að stíga á slíkar línur á
grundvelli þess að meirihluti
flokks eða Alþingis ákveði að það
megi gera.“ ■
28 19. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR
BILL CLINTON
Fyrrverandi Bandaríkjaforseti er 58 ára í dag.
ANDLÁT
Anna Pálína Jónsdóttir, frá Sauðhús-
um, Ögurási 3, Garðabæ, lést sunnu-
daginn 15. ágúst.
Gunnar S. Þorleifsson bókbandsmeist-
ari, Fögrubrekku 47, Kópavogi, lést
mánudaginn 16. ágúst.
Haraldur S. Jónsson, Hólabergi 58,
Reykjavík, lést fimmtudaginn 5. ágúst.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Stefán Borg Reumart, Traneholmen 11,
3460 Birkeröd, Danmörku, lést fimmtu-
daginn 5. ágúst. Útför hefur farið fram.
JARÐARFARIR
3.00 Sesselja Kristín Kristjónsdóttir,
Hvassaleiti 56, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík.
13.30 Karla Stefánsdóttir, Kópavogs-
braut 1b, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju.
13.30 Ólöf Aldís Breiðfjörð Guðjóns-
dóttir verður jarðsungin frá
Vídalínskirkju í Garðabæ.
15.00 Ingibjörg Andrésdóttir, Grjótási
2, Garðabæ, verður jarðsungin frá
Vídalínskirkju í Garðabæ.
15.00 Finnbogi Sigmarsson, Garðavegi
15, Hafnarfirði, verður jarðsung-
inn frá Víðistaðakirkju.
Adolf Hitler, kanslari Þýskalands,
var á þessum degi árið 1934 kos-
inn forseti landsins og hafði þá
sölsað undir sig meiri völd en
áður þekktist í sögu landsins.
Árið 1932 var þáverandi for-
seti, Paul von Hindenburg, orðinn
gamall, þreyttur og dálítið kalkað-
ur. Hann hafði þó náð endurkjöri
en missti talsvert fylgi yfir til
Nasistaflokksins. Nánustu sam-
starfsmenn forsetans vildu vinna
nánar með nasistum og Hinden-
burg féllst á að gera Franz von
Papen að kanslara en sá var tilbú-
inn til að gefa liði Hitlers meira
svigrúm. Hitler vildi meira og
hætti ekki fyrr en hann fékk sjálf-
ur kanslaratignina með von Papen
til vara. Papen lofaði forsetanum
á móti að hann myndi hafa hemil á
verstu tilhneigingum Hitlers en
allir vita hvernig það gekk.
Þegar gengið var til forseta-
kosninga í ágúst 1934 vann Hitler
með 90% atkvæða og munaði þar
mest um ótta þjóðarinnar við
kommúnista og hræðslu við
Hitler sjálfan sem var farinn að
taka andstæðinga sína föstum tök-
um. Eftir sigurinn slakaði hann
hvergi nærri á klónni enda búinn
að ná því takmarki sínu að verða
einræðisherra. ■
ÞETTA GERÐIST
HRIFSAÐI ALLA VALDATAUMA Í ÞÝSKALANDI TIL SÍN MEÐ STÓRSIGRI Í FORSETAKOSNINGUM
19. ágúst 1934
„Ég hef ekki borðað á McDonald´s frá því að
ég varð forseti.“
– Afmælisbarnið Clinton veit greinilega að stórir forseta-
strákar verða að huga vel að mataræði sínu.
Hitler verður forseti Þýskalands
Kallar á rökstuðning
AFMÆLI: KRISTINN H. GUNNARSSON ER 52 ÁRA
Óperuverkið Sweeney Todd eftir
Stephen Sondheim verður frum-
sýnt í Íslensku óperunni þann 8.
október en það er í fyrsta sinn
sem sýningin er sett upp á Íslandi.
Ráðið hefur verið í öll hlutverk en
leikstjórnin er í höndum Magnús-
ar Geirs Þórðarsonar. Fyrst ber
að nefna Ágúst Ólafsson, sem
þreytir frumraun sína í Íslensku
óperunni í hlutverki rakarans
morðóða. Hann tekur þá upp fyrri
iðju sem bartskeri, en nú sker
hann fleira en hár og skegg og
eiga ekki allir viðskiptavinir aft-
urkvæmt úr stólnum hans. Í sama
húsi hefur frú Lovett nú loks
fengið úrvals hráefni í gómsætar
kjötbökur sínar sem seljast hrað-
ar en nokkru sinni fyrr. Blóðug og
grimm sagan einkennist þó af
húmor og litríkum persónum.
Maríus Sverrisson er snúinn aftur
frá glæstum ferli í Þýskalandi þar
sem hann sló í gegn í söngleiknum
Titanic og varð að stjörnu í þýsk-
um leikhúsheimi. Hann fer með
skemmtilegt hlutverk í Sweeney
Todd en aðrir leikendur eru Hulda
Björk Garðarsdóttir, Davíð Ólafs-
son, Þorbjörn Rúnarsson og
Snorri Wium. Örn Árnason leikari
tekur einnig þátt í uppsetningunni
og fer með sitt fyrsta hlutverk í
Íslensku óperunni. Hljómsveitar-
stjóri er Kurt Kopecky en Gísli
Rúnar Jónsson vinnur nú að ís-
lenskri þýðingu verksins.■
ÓPERA: SWEENEY TODD SÝNT Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI
Maríus í óperunni
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
kristjana ágústsdóttir
áður Suðurgötu 39, Akranesi
verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 20. ágúst kl. 14.00.
Sigríður I. Söebeck Kristjánsdóttir, Einar Már Einarsson, Guðrún Ágústa
Kristjánsdóttir, Sveinn M. Sveinsson, Þröstur Kristjánsson, Rósa Þórisdóttir,
Rakel Kristjánsdóttir, Guðmundur Haraldsson, Arnfríður Kristjánsdóttir Bhasker,
Ravi Bhasker, Kristján Söebeck Kristjánsson, Inga Dögg Steinþórsdóttir,
Valgerður Kristjánsdóttir, Pálmi Hannesson, Jón Ágúst Gunnlaugsson,
Margrét Sigurðardóttir, Kolbrún Kristjánsdóttir, Hjálmar Guðmundsson,
Ásdís Söebeck Kristjánsdóttir, Benedikt Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
KRISTINN H. GUNNARSSON
Hafði vonast til að komast vestur á sinn
uppáhaldsstað en kemst líklega hvergi.
SÖNGLEIKJASTJARNAN Maríus Sverris-
son er snúinn aftur frá Þýskalandi og mun
fara með hlutverk í Sweeney Todd í Ís-
lensku óperunni.