Fréttablaðið - 19.08.2004, Blaðsíða 55
43FIMMTUDAGUR 19. ágúst 2004
■ TÓNLEIKAR
Vinnuvélanámskeið
Flest verkalýðssfélög styrkja nemendur á vinnuvélanámskeið, einnig atvinnuleysistryggingasjóður.
Námskeiðsstaður, Þarabakki 3.
109 Reykjavík (Mjódd).
Verð 39.900.-
Næsta námskeið byrjar
20. ágúst 2004
Upplýsingar og innritun í
síma: 894 2737
Bikinihaldari 3.790,- 1.137,-
Bikinibuxur 2.390,- 717,-
Brjóstahaldari 3.490,- 1.047,-
G-strengur 1.990,- 597,-
Toppur 4.290,- 1.287,-
Nærbuxur 2.390,- 717,-
ÚTSÖLULOK
÷50-70%
ÁÐUR NÚ
S M Á R A L I N D
Sími 517 7007
Tríó Ómars Guðjónssonar verður
með djasstónleika á Café Kulture
gegnt Þjóðleikhúsinu í kvöld.
Bandið skipa auk Ómars þeir Þor-
valdur Þór Þorvaldsson, fyrrum
trommuleikari Í svörtum fötum,
og Þorgrímur Jónsson sem spilar
á kontrabassa. Djassgítarleikar-
inn Ómar Guðjónsson sendi frá
sér fyrstu sólóplötu sína, Varma-
land, í fyrra og var tilnefndur til
Íslensku tónlistarverðlaunanna
fyrir vikið, en Þorvaldur og Þor-
grímur stunda djasstónlistarnám
á Flórída og í Haag og þetta ku
vera eina skiptið sem tríóið kem-
ur saman í sumar. Á tónleikunum
í kvöld, sem hefjast klukkan níu,
koma tónlistarmennirnir með að
klæða uppáhaldsdjasslögin sín í
nýjan og nútímalegan búning. ■
Djassinn dunar á Café Kulture
TRÍÓ ÓMARS GUÐJÓNSSONAR
Þorgrímur, Ómar og Doddi klæða uppáhaldsdjasslögin sín í nýjan búning á tónleikum í kvöld.
Árlega kvikmyndahátíðin Nordisk
Panorama fer fram á Íslandi í lok
september en hún flakkar á milli
Reykjavíkur, Árósa, Málmeyjar,
Björgvinjar og Oulu.
Hátíðardagskráin er nú orðin
skýr en alls bárust dómnefndinni
450 myndir. 64 voru valdar út, þar
af 41 stuttmyndir og 23 heimildar-
myndir. Íslensku myndirnar sem
komust inn á hátíðina í ár eru Síð-
ustu orð Hreggviðs, Peningar, Síð-
asti bærinn, Vín hússins og Hver er
Barði? auk heimildarmyndarinnar
Love is in the Air.
Norðurljós verðlauna bestu
stuttmynd og heimildarmynd með
hálfri milljón króna styrk, Ríkis-
sjónvarpið veitir áhorfendaverð-
laun og Channel plus gefur birtingu
á verðlaunuðum myndum. Eva
María Jónsdóttir er skipuleggjandi
Nordisk Panorama þetta árið en há-
tíðin er sú fimmtánda frá upphafi.
Fjöldi heimsþekkts kvikmynda-
gerðarfólks hefur fyrst komið fram
á sjónarsviðið á Nordisk Panorama
sem haldið er af Filmkontakt Nord,
óháðum samtökum fólks í heimild-
ar- og stuttmyndagerð. Auk
bíógláps fer einnig fram fjölmenn-
ur kynningarfundur á hátíðinni þar
sem kvikmyndagerðarfólki gefst
kostur á að kynna verkefni sín fyrir
innkaupendum sjónvarpsstöðva,
framleiðendum og framleiðslufyr-
irtækjum. ■
EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR
Dagskrárgerðarkonan sagði skilið við Kast-
ljósið og skipurleggur nú Nordisk
Panorama í Reykjavík.
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
NORDISK PANORAMA
■ fer fram í Reykjavík
24.-28. september.
Dagskrá Panorama skýr
Síðustu sýningar á verkinu Dýrð-
legt fjöldasjálfsmorð verða á
Nýja sviði Borgarleikhússins í
kvöld, annað kvöld og á sunnu-
dag. Það er áhugaleikhópurinn
Landsleikur sem stendur á bak
við uppsetninguna en hópinn
prýða fyrrverandi og núverandi
nemendur í Menntaskólanum í
Reykjavík.
Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð er
grátbroslegt verk sem fjallar um
tvo menn sem hafa ákveðið að
binda enda á líf sitt en fá þá
óvenjulegu hugmynd að auglýsa
eftir fólki sem er í sjálfsmorðs-
hugleiðingum.
Leikritið er byggt á vinsælli
skáldsögu finnska höfundarins
Arto Paasilinna en Ólafur Egill
Egilsson vann leikgerð upp úr
skáldsögunni fyrir Landsleik og
Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir
hópnum. ■
■ LEIKLIST
Sýningum á Dýrðlegu
fjöldasjálfsmorði lýkur
LANDSLEIKUR
Hefur ferðast með Dýrðlegt fjöldasjálfs-
morð um landið en nú eru síðustu forvöð
að sjá sýninguna í Borgarleikhúsinu.