Fréttablaðið - 19.08.2004, Síða 56

Fréttablaðið - 19.08.2004, Síða 56
Ein frumlegasta uppákoma sem prýðir dagskrá Menningarnætur að þessu sinni er tilfinningaflóðið sem haldið verður í Víkurkirkjugarði. Þá gefst fólki loksins tækifæri til að bera tilfinningar sínar óheftar á borð almennings en öllum er frjálst að halda reiðilestur, fara með ástar- játningu eða taka gott afbrýðisem- iskast í pontu. Þjóðþekktar persón- ur tjá sig um tilfinningar, rökræður fara fram í felum í tjaldi og einnig má finna sérstakan stað fyrir til- finningalega lokaða einstaklinga. Guðfinna Svavarsdóttir heldur mínútulestra um hina dularfullu hegðan tilfinninga og Alexandra Kjuregej kennir áhugasömum list- ina að veita faðmlög. Tilfinninga- torgið er ein verðlaunahugmynda úr hugmyndasamkeppni Lands- bankans um miðbæ Reykjavíkur og verður framkvæmd á torginu við Aðalstræti 9 kl. 11 á menningar- laugardag. ■ 19. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR Söluhæsta fartölvan í Evrópu ACER tækni SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 WWW.SVAR.IS tækni FARTÖLVUR Torg tilfinninganna Dagskrá Borgarbókasafns á Menningarnótt verður fjölbreytt í ár en þar geta gestir meðal annars skoðað Artótek safnsins sem er ný þjónusta í samstarfi við Samband íslenskra myndlistarmanna og felst í útlánum á íslenskri sam- tímalist. Klukkan 14 hefst Draugagangur í barnadeildinni í umsjón barnabókavarða safnsins. Deildin verður þá skreytt í viðeig- andi búning og á hálftíma fresti verða lesnar skemmtilegar og skuggalegar draugasögur. Hugleikur Dagsson stjórnar pallporði um myndasögur klukkan fimm þar sem getraun um mynda- sögur fer fram og veitt verða veg- leg bókaverðlaun. „Við Bára Magnúsdóttir, Bára Hlín Krist- jánsdóttir, Neptúnus Egilsson og Pétur Yngvi Yamagata ætlum að tala um myndasögur í klukkutíma, ímynd myndasagna á Íslandi, inni- hald þeirra og frásagnaformið sjálft. Einnig verður rætt um það hvort myndasögur flokkist til myndlistar, bókmennta eða hvort tveggja. Ísland hefur verið lítil myndasöguþjóð hingað til og ræð- um við örlítið um viðhorfið sem virðist vera að breytast. Í Borgar- bókasafninu er stærsta mynda- sögusafnið á landinu en undanfar- in ár hefur áhugi almennings á myndasögum aukist til muna með- al allra aldurshópa. Við stöndum fyrir voðalega afslöppuðu spjalli, svörum spurningum fólks og hvetjum alla áhugasama að mæta,“ segir Hugleikur. Hann hefur sent frá sér fjórar mynda- sögubækur sem seljast líkt og heitar lummur í versluninni Nex- us á Hverfisgötu. Hugleikur ætlar einnig að troða upp með hljóm- sveit sinni, Útburðir, í Nýlista- safninu á Menningarnótt. ■ Myndasögur á Menningarnótt MENNINGARNÓTT MYNDASÖGUR ■ og draugagangur í Borgarbókasafn- inu. HUGLEIKUR DAGSSON Myndasöguhöfundurinn verður í Borgar- bókasafni með nýjustu bók sína Our Prayer. FÁÐU ÚTRÁS Á laugardaginn verður öllum frjálst að tjá sig um tilfinningar sínar á torginu við Aðalstræti.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.