Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.08.2004, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 21.08.2004, Qupperneq 11
11LAUGARDAGUR 21. ágúst 2004 ■ FRAMKVÆMDIR SÉRSVEIT Sérsveit Ríkislögreglu- stjóra var kölluð út fimmtán sinn- um á síðasta ári í lögregluaðgerð- ir þar sem þörf var á vopnaburði. Því til viðbótar tóku vopnaðir sér- sveitarmenn þátt í 24 öryggis- gæsluverkefnum. Að sögn Jóns Bjartmarz, yfir- manns sérsveitarinnar, var fjöldi útkalla þar sem þörf er á vopna- burði svipaður í fyrra og árið á undan. Jón segir talsvert um það að sérsveitarmenn séu kallaðir út í verkefni sem þeir fari í óvopnað- ir eða með léttvæpni: „Útköllin geta verið þannig að tveir menn eru sendir með sína skammbyss- una hvor á meðan verið er að kanna hvort ástæða sé til að kalla út liðsauka.“ Stærsta útkall sér- sveitarinnar var vegna vopnaðs manns á Vatnsleysuströnd en hann gafst upp án þess að til átaka kæmi. Vopn sérsveitarinnar eru aðal- lega skammbyssur af Glock-gerð, MP-5 hríðskotabyssur, sérsmíðað- ir rifflar, sem ætlaðir eru sér- þjálfuðum skyttum, og haglabyss- ur. Þá hefur sérsveitin yfir einum brynvörðum bíl að ráða en sá er kominn til ára sinna og er ekki mikið notaður. Aðspurður segir Jón að vopn sveitarinnar, sem skipuð er 21 manni, séu aldrei í vörslu sérsveitarmanna: „Vopnin eru öll geymd hjá lögreglunni þegar þau eru ekki í notkun.“ ■ FJÁRMÁL Ríkir eftirlaunaþegar í Danmörku nýta sér til hlítar ákvæði í skattalögum sem upp- haflega var ætlað til hjálpar minna efnuðum. Geta þeir eins og fátækari einstaklingar fengið hjá dönskum sveitarfélögum vaxtalítil lán sem ætluð eru til að greiða eignaskatta og gera fólki kleift að búa heima við eins lengi og mögulegt er. Lánin nema í heild um fjórum millj- örðum króna en vaxtaprósentan er aðeins eitt prósent og því margir sem áhuga hafa á slíkum lánum. ■ Í FULLUM HERKLÆÐUM Sérsveitarmenn á æfingu í Elliðaárdal í fyrra. Á myndinni má sjá tvö helstu vopna sveitar- innar, MP-5 hríðskotabyssu og Glock-skammbyssu. Sérsveit Ríkislögreglustjóra: Öryggisgæsla helsta verkefni sveitarinnar FRÁ ABU GHRAIB Fangelsið varð alræmt þegar upp komst um pyntingar þar fyrr á árinu. Herlæknar í Írak: Gróf mann- réttindabrot ■ ASÍA MYRTI ÁTTA MEÐ EXI Kínverskur karlmaður á fertugsaldri hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa myrt átta manns með exi. Fólkið er allt úr sömu fjölskyldu og var á aldrinum frá fjögurra ára aldri til áttræðs. Maðurinn hafði verið í fangelsi fyrir að nauðga konu sem var meðal þeirra sem hann myrti. HERMENN SAKFELLDIR Ellefu indónesískir hermenn hafa verið sakfelldir fyrir að skjóta rúmlega 20 mótmælendur til bana árið 1984. Hver og einn hermannanna fékk tveggja ára fangelsisdóm, nema yfirmaður þeirra sem var dæmdur til þriggja ára fangelsis- vistar. AL-KAÍDALIÐAR HANDTEKNIR Pakistanskar öryggissveitir handtóku tvo erlenda vígamenn eftir skotbardaga í Peshawar í norðvesturhluta landsins. Fullyrt er að mennirnir tengist al-Kaída. Það sem af er mánuðinum hafa 70 Pakistanar og útlendingar ver- ið handteknir sakaðir um tengsl við al-Kaída. LOKAÐ Í SUND Sundmiðstöðin í Keflavík lokar 30. ágúst vegna framkvæmda og óvíst hvenær opnar aftur. Á vef bæjarins segir að skipta þurfi um yfirborð á sund- laugarbakkanum auk þess sem gert verði við þak. Handhöfum korta verður boðið að fara í laug- arnar í nágrannabæjarfélögum. Ríkir Danir: Notfæra sér skattalög LONDON, AP Læknar sem störfuðu fyrir Bandaríkjamenn í Írak tóku þátt í misþyrmingum á föngum í Abu Ghraib-fangelsinu, rufu læknaeið sinn og brutu mannrétt- indalög að sögn bandarísks lífsið- fræðings. Steven Miles, prófessor í lífsið- fræði við háskólann í Minnesota, segir umbóta þörf meðal banda- rískra herlækna og rannsaka þurfi til hlítar framferði þeirra í Abu Ghraib. Hann segir sönnunargögn meðal annars benda til þess að læknar hafi falsað dánarvottorð og þannig hylmt yfir morð. ■ 10-11 20.8.2004 19:47 Page 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.