Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.08.2004, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 21.08.2004, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 21. ágúst 2004 SPURNING: Getið þið sagt mér eitthvað um Stóradóm? SVAR: Stóridómur er samþykkt um siðferði sem gerð var á alþingi sumarið 1564 að frumkvæði begg- ja lögmanna og æðsta fulltrúa konungs á Íslandi, Páls Stígssonar hirðstjóra. Konungur staðfesti dóminn árið eftir. Skammt var frá siðaskiptum og stemningin sú að herða á viðurlögum við hvers kyns lauslæti í samfélaginu. Það var viðkvæði í öllum löndum sem gengu kenningum Lúthers á hönd og raunar víðar í Evrópu. Oft er talað líkt og Stóridómur hafi kveð- ið á um dauðarefsingu fyrir hvern þann sem hélt framhjá eða eign- aðist barn utan hjónabands, en það er orðum aukið. Hann tók á svonefndum legorðsbrotum, með öðrum orðum barneignum fólks sem ekki mátti eigast. Samræði fólks í náinni frændsemi Höfundar Stóradóms, 24 karlar, ætluðu sér hvorki meira né minna en að setja lög sem áttu að gilda „um aldur og ævi fyrir allt fólk á Íslandi, alna og óborna, karlmenn og konur“. Það gekk reyndar ekki eftir. Þeir flokkuðu legorðsbrot eft- ir því hversu alvarleg þau voru í augum guðs og manna. Mestu varð- aði samræði fólks í náinni frænd- semi eða mægðum, því þá taldist fólk verðskulda líflát. Innblástur var sóttur í 3. Mósebók þar sem taldar eru konur sem karlar máttu alls ekki leggjast með. Í kirkjulög- um íslenskum frá lokum 13. aldar voru þær hafðar 17 að tölu og í Stóradómi var látið nægja að vísa til þeirrar upptalningar. Karla átti að höggva á háls en drekkja kon- um. Hér fylgir listinn: 1. móðir 2. systir 3. dóttir 4. stjúpmóðir 5. sonarkona 6. bróð- urkona 7. sonardóttir 8. stjúpdótt- ir 9. bróðurdóttir 10. systurdóttir 11. dótturdóttir 12. móðurmóðir 13. föðurmóðir 14. móðursystir 15. föðursystir 16. móðir konu manns 17. systir konu manns Fimmtíu líflátnir Af varðveittum gögnum að dæma voru 25 karlar og 25 konur teknar af lífi á Íslandi samkvæmt þessu ákvæði, síðast árið 1762. Al- gengustu brot af þessu tagi voru á milli systkina, stjúpfeðgina og að karl eignaðist barn með systur eig- inkonu sinnar. Minni skyldleiki eða mægðir vörðuðu vægari refsingu, háum fjársektum eða hýðingu. Til dæmis áttu þremenningar sem eignuðust barn að greiða þrjár merkur, sem jafngiltu hálfu kýr- verði, en tvöfalda þá upphæð yrðu þau uppvís að sama athæfi aftur og átti þá annað þeirra að fara úr hér- aði. Í Stóradómi er mestu rúmi var- ið í brot af þessu tagi, enda þótt þau hafi verið mun fátíðari en framhjá- hald og barneignir ógifts fólks. Ef litið er til árabilsins 1590-1736 er ljóst að einungis 6 af hundraði allra legorðsbrota vörðuðu skyldleika og mægðir. Hórdóms- eða framhjá- haldsbrot voru 13 af hundraði leg- orðsbrota og nam sektin sam- kvæmt Stóradómi einum sex mörk- um, sem var umtalsvert fé fyrir fá- tæka alþýðumenn. Karlar og konur borguðu jafnmikið og konan jafn- vel þótt hún væri ekki gift, sem al- gengast var í hórdómsbrotum. Fyrir þriðja hórdómsbrot átti fólk að missa lífið, en aldrei var dæmt samkvæmt því ákvæði heldur var fólk sent í útlegð eða til fangavist- ar í Kaupmannahöfn. Langalgengustu brotin voru barneignir ógifts fólks og segir Stóridómur nákvæmlega til um það hvað skyldi borga fyrir fyrsta, ann- að, þriðja, fjórða og fimmta brot. Sektin var 18 álnir eða þriðjungur úr mörk fyrir fyrsta brot og þrjár merkur fyrir þriðja brot. Yrðu brotin fimm gat fólk valið á milli þess að þola hýðingu eða giftast! Veraldlegir eftirlitsmenn Fyrir utan hert viðurlög við al- varlegustu brotunum var það ný- mæli í Stóradómi að veraldlegir embættismenn konungs, það er sýslumenn, skyldu nú sjá um fram- kvæmd refsinga og innheimtu sekta. Næstu aldir var eftir- grennslan í þessum málum eitt helsta verkefni þeirra allan ársins hring. Fyrir siðaskipti hafði kirkj- an annast legorðsbrot og sett saka- mönnum skriftir, misharðar eftir alvöru máls. Kirkjan sleppti reynd- ar ekki alveg tökunum á siðferði landsmanna, því eftir sem áður var sakamönnum gert að standa opin- bera aflausn í kirkju með afsökun- arbeiðni í viðurvist sóknarmanna við messu. Það kerfi var við lýði fram undir lok 18. aldar og sektir fyrir barneign ógifts fólks fyrst afnumdar árið 1812 en sektir fyrir framhjáhald litlu síðar. Blóð- skömm varðar enn við lög en tekur einungis til samræðis náskyldra; systkina, foreldra og barna. Már Jónsson, sagnfræðingur. Heimildir: Inga Huld Hákonardóttir, Fjarri hlýju hjóna- sængur. Öðruvísi Íslandssaga. Reykjavík 1992. Már Jónsson, Blóðskömm á Íslandi 1270-1870. Reykjavík 1993. Útgáfur Stóradóms: Íslenzkt fornbréfasafn. Kaupmannahöfn og Reykjavík 1857-1972: XIV, bls. 271-276. Jónsbók. Lögbók Íslendinga. Útgefandi Már Jónsson. Reykjavík 2004, bls. 319-323 (væntanleg). Miskunnarlaus Stóridómur VÍSINDAVEFUR HÁSKÓLA ÍSLANDS Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefnast. Meðal spurninga sem þar hefur verið glímt við undanfarið eru til dæmis: „Geta ljón verið hvít?“ og „Hver er lengsti tími sem stríð hefur tekið?“ Svörin er að finna á visindavefur.hi.is Á Menningarnótt geta gestir og gangandi komið við í Öskju í Vatnsmýrinni kl. 17.30 og 18.30 og spurt spekinga Vísindavefs- ins spjörunum úr. Pallborðs- menn undir stjórn Þorsteins Vilhjálmssonar sitja þar fyrir svörum með gagnasjóð Vís- indavefsins að bakhjarli og reyna að svara spurningum um hvaðeina sem varðar vísindi. FRÁ ÞINGVÖLLUM Konum sem höfðu haft samræði við menn í náinni frændsemi eða mægðum, var drekkt í Drekkingarhyl (myndin sýnir ekki þann stað). 26-39 (26-27) Helgarefni 20.8.2004 15:20 Page 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.