Fréttablaðið - 17.09.2004, Síða 44
32 17. september 2004 FÖSTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús.
Sunnudagur 19. september, kl.15.00,
Guðbergur Bergsson flytur fyrirlestur
um Kenjarnar eftir Francesco de Goya
og leggur út frá túlkun sinni á mynda-
flokknum, sem samanstendur af átta-
tíu myndum.
Salurinn, Tónlistarhús Kópavogs. Í
kvöld kl. 20.30 kynna Yolngu-frum-
byggjar frá Ástralíu tónlist sína á tón-
leikum. Einnig
koma íslenskir
tónlistarmenn
fram, t.d. Sig-
urður Rúnar
Jónsson, Hilmar Örn Hilmarsson og
Steindór Andersen.
Paris at Night, kabarett með söngv-
um eftir Jacques Prévert í Borgarleik-
húsinu. Sýnt í kvöld klukkan 20.00
Ljósmyndasýning Fókuss, fé-
lags áhugaljósmyndara,
stendur yfir í Tjarnarsal Ráð-
húss Reykjavíkur. Á sýning-
unni má sjá hvað 25 meðlim-
ir félagsins eru að fást við í
ljósmyndun. Þetta er sjötta
ljósmyndasýning Fókuss.
Fókus, félag áhugaljós-
myndara, var stofnað 11.
apríl 1999 og hélt því upp á
5 ára afmæli sitt fyrr á árinu.
Félagið er með aðsetur í
Reykjavík og er opið öllu áhugafólki um ljós-
myndun, jafnt byrjendum sem lengra komn-
um.
Í félaginu eru um 60 félagsmenn og er
markmið þess að virkja ljósmyndun sem
áhugamál hjá fólki og skapa um leið öflugan
vettvang fyrir félagsmenn til að sinna þessu
áhugamáli sínu. Eitt af markmiðum félagsins er
að standa fyrir ljósmyndasýningum. Félagið
heldur úti öflugri vefsíðu fokusfelag.is þar sem
hægt er að nálgast allar nánari upplýsingar um.
Sýningin er opin á opnunartíma Ráðhúss-
ins frá kl. 8-19 virka daga og frá kl. 12-18 um
helgar. Henni lýkur 21. september.
Kl. 22.20
Sjónvarpið sýnir fyrri hluta sjónvarps-
myndarinnar Synir og elskhugar. Myndin
er byggð á einni frægustu skáldsögu D.
H. Lawrence, Sons and Lovers.
!
menning@frettabladid.is
Áhugaljósmyndarar sýna
Fýkur yfir hæðir
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON Í hlutverki Jacks Rance í La Fanciulla dell West eftir Puccini í Opera Holland Park.
Í Gallerí 101 sýnir Steingrímur Ey-
fjörð fjögur verk þar sem rómantísk-
ir undirtónar ráða ríkjum. Hvort
þessi fjögur verk myndi eitthvað eitt
er ég ekki viss um en ýmislegt teng-
ir þau saman. Þessi sýning þarfnast
þess að áhorfandinn gefi sér tíma.
Hún virðist flókin við fyrstu sýn en
við nánari skoðun verður ýmislegt
ljósara. Munurinn á hinu flókna og
hinu einfalda er oftast falinn í skiln-
ingnum. Allt verður einfalt þegar
menn öðlast skilninginn. En auðvit-
að þarf ekki að skilja allt til að njóta
– upplifunin er það sem skiptir máli.
Fáir íslenskir listamenn hafa sýnt
meiri vilja en Steingrímur til að feta
lítt þekktari slóðir hugans en það er
ein helsta dyggð listamanna og ótrú-
lega fáir hafa hana í hávegum. Ferð-
ir sínar skrásetur hann og fer stund-
um yfir aftur og aftur þannig að
verkin eru oft marglagskipt. Fer hann
fram sem landnámsmaður og skipar
sér hiklaust á bekk meðal lista-
manna listamannanna.
„Annarlegt ástand“ er róluverk
sem gæti alveg eins verið upphafs-
verkið. Hjálpartæki til að komast í
það ástand að eitthvað svipað fari í
gang hjá áhorfandanum – hann fari
á flug. Munurinn á notkun mynd-
máls hjá listamönnum og öðrum er
sá að listamenn þurfa ekki endilega
að sjá merkinguna fyrr en eftir á.
Ferðalög um lönd hins óþekkta
þurfa aðeins ljóstýru rétt eins og bíl-
ljós í myrkri. Til að komast eitthvað
þarftu ekki endilega að sjá áfanga-
staðinn.
Lykilverk sýningarinar er verkið
„Fýkur yfir hæðir“ sem er samvinnu-
verk Steingríms og Ásmundar Ás-
mundssonar myndlistarmanns. Hér
er um um að ræða tilvísanir í nítj-
ándu aldar rómantík, kvæði Jónasar
Hallgrímssonar Móðurást og verk
Ásgríms Jónssonar þar sem hann
sviðsetur ljóðmyndina í málverki frá
1905. Þar liggur barnið ómeðvitað
um lát móður sinnar sem gaf því allt
og þú sem áhorfandi átt erfitt með
að standa hjá aðgerðarlaus. Litljósrit
af teikningum eða undirbúnings-
skissum fyrir málverk Ásgríms hang-
ir við hlið verksins sem einhvers
konar inngangur að myndviðbrögð-
um sem hanga þar – sjö tilfinninga-
ríkar tússteikningar á gulum fleti þar
sem orðið Mamma er endurtekið í
forgrunni móðurteikninganna. Í for-
grunni sitja skúlptúrar á tveim vögn-
um þar sem hausinn fremst á drátt-
arvagninum er útbrunnið eldfjall
sem mun vera verk Ásmundar. Í
dráttarvagninum eru líka skúlptúrar
sem minna bæði á móðurina látna
hjá Ásgrími og peðin 16. Í eftirdragi
er neysluvörunæring, kakómjólk
með sinnepi og tómatsósu, Sun-
Lolly djús, sykurskertur sveskju-
grautur og Ora humarsúpa í dós,
öllu vöfðu inn í þunnt eldhúsplast.
„Filling the holes“ er málverk með
setubekk fyrir framan þar sem þörf
er á að setjast niður og lesa textann,
gefa sér tíma til að njóta verksins
sem er marglagskipt. Bakgrunnur
verksins er rauðbrún skipamálning
sem er hönnuð fyrir snertiflöt við
sjó. Málning sem þarf m.a. að hafa
þá eiginleika að hrinda frá sér öllu
lífrænu. Svört línuteikning er í setn-
ingum sem eru hólfaðar og myndar
það svæði sem línan nær ekki yfir
einskonar fjörð. Setningarnar eru
bútar úr munni spákvenna sem m.a.
spá fyrir þessari sýningu. Ofan á
verkið er límdur texti úr hugrenning-
um Margrétar Blöndal um verkið.
Litirnir, rauðbrúnn og svartur, eru lit-
ir melankólíunnar.
En umfangsmesta verkið á sýning-
unni er verkið „Sextán peð“. Það
samanstendur af tveim skúlptúrum
og tveim teikningum. Peðin eru með
blýfyllingum, þau virka karlkyns og
varða landám hugans. Verkið er m.a.
unnið sem samtal við 16 manns,
flestir ef ekki allir listamenn sem
líkaleggja verkinu lið sem einskonar
spegill og gefa þeim nöfn. Viðbrögð
flestra liggja sem lýsingar á mörkum
hins raunverulega eins og draugar,
útfrymi, geimverur, grænt slím,
drullumalli úr blíðfinni, múmínálfar,
veran í Eyju dauðans eftir Böchlin,
Frankenstein, kynjamyndir úr hlaupi
Mjallhvítar um skóginn eða frosin
geysisgos – allt bullandi rómantík.
Yfir peðunum hanga verkfærin sam-
anlímd í strúktúrum og er þeim
varpað sem upphöfnum skugga-
myndum innrömmuðum á veggn-
um.
Steingrímur er ekkert einn um
rómantíkina þessa daganna. Hún er
víða í samtímanum, Gabríela til
dæmis, múm, barney. Hjá Steingrími
hefur hún rætur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
„Ég var að frumsýna Rígólettó
síðastliðinn föstudag hjá Mid-
Wales Opera, hlutverk
Rígólettós,“ segir Ólafur Kjartan
Sigurðarson óperusöngvari, sem
hefur haft í nógu að snúast frá því
að samningstíma hans hjá Ís-
lensku óperunni lauk. En hvernig
gekk með Rígólettó?
„Það gekk allt upp. Fyrir mig
var þetta mögnuð stund. Rígólettó
hefur verið handan við sjóndeild-
arhringinn hjá mér í talsverðan
tíma og fyrir þá týpu af baritón
sem ég er, er þetta allra stærsta
hlutverkið. Ég hef aldrei reynt við
aðra eins rullu. Þetta er ein af
þessum topprullum sem mig hef-
ur dreymt um að fá.“
Hvernig kom það til að þú
fékkst rulluna?
„Það var hringt í mig um miðj-
an síðasta vetur frá þessu kom-
paníi. Þeir voru að leita að
Rígólettó og höfðu fundið einn en
vantaði annan. Það voru áætlaðar
þrjátíu sýningar sem er of mikið
fyrir einn söngvara, þannig að
aðalhlutverkin eru tvísetin. Stað-
reyndin er sú að Rígólettóar eru
ekkert á hverju strái. Menn sér-
hæfa sig í hlutverkinu og ég hef
lengi verið að stefna á þetta hlut-
verk. Þegar ég fór í prufuna var
kollegi minn, sem ég hef unnið
með áður, í prufu fyrir sama hlut-
verk. Hann er kominn yfir sex-
tugt, sem sýnir að Rígólettóarnir
eru ekki á hverju strái.
Ég skellti mér í prufuna og það
gekk það vel að þeir buðu mér
hlutverkið. Þetta er afar þýðing-
armikið fyrir mig og framtíðina í
þessu fagi, því núna er ég kominn
með Macbeth og Rigólettó á verk-
efnalistann – og vonandi bætast
fleiri Verdi-rullur við í framtíð-
inni.“
Verður þú ekki bara fastur í
Rígólettó?
„Ja, ég er alveg tilbúinn til þess
að syngja hann í tuttugu ár í við-
bót. Það mundi alveg nægja mér
en það sem er magnað við þær
Verdi-rullur sem ég er að reyna að
sérhæfa mig í á næstu árum, ef
vel gengur, er að þær er hægt að
syngja langt fram eftir aldri.“
Rígólettó er að vísu ekki fyrsta
hlutverk Ólafs Kjartans í Bret-
landi þetta árið, því í júní síðast-
liðnum söng hann hlutverk lög-
reglustjórans Jacks Rance í La
Fanciulla dell West eftir Puccini í
Opera Holland Park.
„Það gekk vonum framar,
þannig að sú rulla í sumar og
Rígólettó í framhaldi eru vonandi
að opna mikla möguleika fyrir
mig í framtíðinni.“
En hvað er í farvatninu hjá
þér?
„Í kjölfarið á þessum óperu-
hlutverkum eru fram undan
þrennir stórir tónleikar hjá mér í
Bretlandi – og von á fleirum. Með-
al annars Sea Symphony eftir
Vaughan Williams, The Bells eftir
Rachmaninoff og einsöngstón-
leikar hjá mér og frænda mínum,
Vovka Ashkenazy, í London 8. des-
ember, svo eitthvað sé nefnt.
Síðan bíður annar stór karl
eftir mér, sem er Scarpia í Toscu
hjá Íslensku óperunni hér heima –
og ég get alveg lofað góðri sýn-
ingu þar.“
Og víst er að gaman verður að
fylgjast með Ólafi Kjartani næstu
misserin, ef marka má viðbrögð
gagnrýnenda í Bretlandi. Enn eru
ekki komnir dómar um Rígólettó
en um frammistöðu Ólafs í hlut-
verki Jacks Ranch segir Tim Ash-
ley hjá The Guardian: „… en Sig-
urðarson var sannarlega stórkost-
legur Rance, sexý og hættulegur í
senn.“ Tom Vallance hjá What’s
On segir: „Oli Sigurdarson var
frábær, með sína voldugu, fylltu
baritónrödd, og grimmdarlega
ástríðufullur.“ David Blewitt hjá
The Stage segir um Ólaf: „Hin
dimma og agaða baritónrödd hans
er göfugt hljóðfæri.“ ■
Topphlutverk sem mig
hefur alltaf dreymt um
Ólafur Kjartan Sigurðarson syngur hlutverk Rígólettós í Mid-Wales Opera í Bretlandi
og ljóst af viðbrögðum að Bretar eiga eftir að fá meira í honum að heyra.
MYNDLIST
GUÐMUNDUR ODDUR MAGNÚSSON
Steingrímur Eyfjörð.
101 GALLERY HVERFISGATA 18A
SÝNINGUNNNI LÝKUR 30. OKTÓBER