Fréttablaðið - 17.09.2004, Blaðsíða 56
44 17. september 2004 FÖSTUDAGUR
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Skúli Sverrisson bassaleikari
og vinir mæta í 12 Tóna og spila
fyrir gesti og gangandi. Boðið
verður upp á léttar veitingar.
19.00 Hljómsveitin I adapt heldur
útgáfutónleika í Norðurkjallara
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Hljómsveitirnar Innvortis, Zero
Tolerance, Fighting Shit og
Hryggjandi sannleikur sjá um
upphitun.
20.00 Sopranos flytja bæði óperu-
aríur og klassísk dægurlög á tón-
leikum í Seltjarnarneskirkju.
Sopranos skipa þær Svana Berg-
„Þetta er svona hratt og melódískt
hardcore-pönk,“ segir Birkir Við-
arsson, söngvari hljómsveitarinn-
ar I adapt. „Þetta er ekkert tónlist
sem fer beint inn á X-ið eða Rás
tvö.“
I Adapt var að senda frá sér
breiðskífuna No Pasanar, og í til-
efni þess ætlar sveitin að efna til
útgáfutónleika bæði í kvöld og
annað kvöld. Með þeim koma
fram ýmsar valinkunnar pönk-
sveitir, þar á meðal belgíska
hljómsveitin Zero Tolerance.
„Pönkið lifir góðu lífi,“ segir
Birkir. „Við erum búnir að vera
svona fjögur ár í þessu og það er
mikil gróska núna. Það er allt að
gerast.“
Tónleikarnir í kvöld verða
haldnir í Norðurkjallara Mennta-
skólans við Hamrahlíð og hefjast
klukkan sjö. Þar verða með þeim
hljómsveitirnar Innvortis, Zero
Tolerance, Fighting Shit og
Hryggjandi sannleikur.
Seinni tónleikarnir, sem verða
annað kvöld klukkan níu, verða
haldnir í De Palace og þar koma
meðal annars fram hljómsveitirn-
ar Jan Mayen, Zero Tolerance,
Isodor og ESP.
I Adapt hefur verið að spila
víða, bæði hér á landi og erlendis,
og plötur sveitarinnar hafa fengið
rífandi dóma í tónlistartímaritum.
„Við erum samt ekkert í þessu
til að meika það. Það hefur aldrei
verið metnaður okkar. Við gerum
allt sjálfir og erum ekki á mála
hjá neinu fyrirtæki.“
Textar sveitarinnar hafa vakið
athygli fyrir að vera beinskeyttir
og þeir félagar eru óhræddir við
að láta skoðanir sínar í ljós. ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
14 15 16 17 18 19 20
Föstudagur
SEPTEMBER
Föstudagur 17/9
PARIS AT NIGHT Kabarett með
söngvum
e. Jacques Prévert kl. 20
Laugardagur 18/9
CHICAGO
e Kander, Ebb og Fosse
Tvenn Grímuverðlaun
kl 20
Sunnudagur 19/9
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
kl 14
KYNNINGARVEISLA - OPIÐ HÚS
Við kynnum leikárið: Stutt atriði,
dans, söngur, gleði og grín
Allir velunnarar velkomnir!
Su 19/9 kl 20 - Aðgangur ókeypis
Miðasa la á net inu:
www. borgar le ikhus. is
Miðasala, sími 568 8000
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
ÁSKRIFTARKORT
Á 6 SÝNINGAR
KR 10.700
(þú sparar 5.500)
TÍU MIÐA
AFSLÁTTAKORT
KR 18.300
(Þú sparar 8.700)
BESTI KOSTURINN FYRIR LEIKHÚSROTTUR
„Venjulega fer fólk að hlæja þegar
það heyrir þetta mafíulega nafn, en
það er bara það sem við viljum.
Markmið okkar er að fá fólk til að
hlæja og skemmta sér,“ segir
Svana Berglind Karlsdóttir, ein
þriggja sópransöngkvenna í
Sopranos.
Félagar hennar eru þær Hörn
Hrafnsdóttir, sem er reyndar
mezzósópran, og Margrét Grétars-
dóttir.
Sopranos verður með tónleika í
Seltjarnarneskirkju í kvöld, þar
sem fluttar verða bæði erfiðar óp-
eruaríur og laufléttar perlur úr
söngleikjum og óperettum auk
klassískra dægurlaga á borð við
Besame mucho.
Gestur þeirra á tónleikunum
verður tenórinn Gissur Páll Giss-
urarson, en við flygilinn situr
Hólmfríður Sigurðardóttir.
„Við vorum rosalega heppnar að
fá hann Gissur Pál með okkur.
Hann er í námi úti á Ítalíu, en ég
lýg því ekki að hann verður súper-
stjarna,“ segir Svana og lofar
miklu stuði á þessum tónleikum.
„Fyrir hlé verðum við reyndar
bara með stórar óperuaríur, en eft-
ir hlé er þetta bara fjör og læti.“ ■
I ADAPT Útkomu nýrrar breiðskífu verður fagnað með tvennum tónleikum, í MH í kvöld og De Palace annað kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Pönkið lifir góðu lífi
■ TÓNLEIKAR
■ TÓNLEIKAR
Sopranos ekki mafía
SOPRANOS ÁSAMT GESTI SÍNUM OG PÍANÓLEIKARA Sönghópurinn Sopranos
verður með eldfjöruga tónleika í Seltjarnarneskirkju í kvöld.
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Tríóið Flug spilar á Café
Cultura við Hverfisgötu.
23.00 Dj Valdi spilar á Hressó.
Hljómsveitin Egó verður með tón-
leika í Sjallanum á Akureyri.
Gulli Ósóma verður uppi á Lauga-
vegi 22, en þeir Gústi og Einar
Sonic niðri.
Addi M. spilar á Catalinu.
Dúettinn Halli og Kalli skemmta í
Ara í Ögri.
DJ Áki Pain og Atli skemmtana-
lögga á Pravda.
Spilafíklarnir leika í kjallaranum á
Celtic Cross, á efri hæðinni spilar
trúbadorinn Garðar. Frítt inn.
Hljómsveitin Sex Volt spilar á Barn-
um, Sauðárkróki.
Milljónamæringarnir skemmta á
Players í Kópavogi.
Danshljómsveitin Gvendólína spilar
á Ránni, Keflavík.
■ ■ FUNDIR
12.00 Sagnfræðingafélag Íslands
boðar til fundar um meinta kosti
og galla forsætisráðherrabókar-
innar nýju í Reykjavíkurakademí-
unni, Hringbraut 121. Frummæl-
endur verða Ólafur Teitur
Guðnason, ritstjóri bókarinnar,
Hilma Gunnarsdóttir sagnfræð-
ingur og Jón Þór Pétursson sagn-
fræðingur.
■ ■ SAMKOMUR
20.00 Fjölmenningarkvöld á opnu
húsi í Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu
18.
■ ■ NÁMSKEIÐ
09.00 Bætt menntun - betri við-
brögð Námstefna um menntun
fagfólks og meðferð kynferðis-
brotamála verður haldin í
Kennnaraháskólanum við Stakka-
hlíð. Engin skráning, enginn að-
gangseyrir, en hádegisverður og
kaffi kosta 750 krónur.
hvar@frettabladid.is
lind Karlsdóttir, Hörn Hrafns-
dóttir og Margrét Grétarsdóttir
ásamt tenórnum Gissuri Páli
Gissurarsyni og píanóleikaranum
Hólmfríði Gissurardóttur.
21.00 Hljómsveitin Glymskrattarn-
ir verður með tónleika í Pakkhús-
inu á Selfossi. Hljómsveitin Veð-
urguðirnir skemmtir síðan frá
klukkan 23.30.
21.00 Orgelkvartettinn Apparat
heldur tónleika í húsnæði Klink
og Bank í Brautarholti.
23.30 Worm is Green, Þórhallur
og Exos koma fram á Grand
Rokk.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Beisk Tár Petru von Kant
eftir Rainer Werner Fassbinder í
uppsetningu Leikfélags Hafnar-
fjarðar í gamla Lækjarskóla.
■ ■ LISTOPNANIR
16.00 Alþýðulistamaðurinn Sigurð-
ur Einarsson opnar sýningu í
Boganum, Gerðubergi. Gerðu-
bergskórinn syngur nokkur lög við
opnunina undir stjórn Kára Frið-
rikssonar.