Fréttablaðið - 17.09.2004, Page 51

Fréttablaðið - 17.09.2004, Page 51
FÖSTUDAGUR 17. september 2004 29 í Grafarholti Leikin er punktakeppni, hámarksforgjöf 18. Ræst er út á öllum teigum kl. 10.00. Mæting í Bása kl. 8.30 þar sem keppendur hita upp fyrir mótið. Veitingar að loknu móti. Innifalið í mótsgjaldi. Vegleg verðlaun í boði fyrir 3 efstu sætin. Nándarverðlaun á öllum par 3 brautum. Mótsgjald kr. 3.500.- 18. sept. 2004 Opna Polignac Cognac Tímaritið ÚTIVERA Nýtt tölublað komið í verslanir Ný heimasíða www.utivera.is Síðasta blað seldist upp hjá útgefanda, tryggðu þér því eintak strax! Ungbarnasund Ungbarnasund er að hefjast í Árbæjarlaug á laugardögum kl. 09.00 og 09.40 Upplýsingar og skráning í síma: 510 7600 eða 866 0122 Sundskóli Ármanns Mikill dómaraskortur Hannes Jónsson, varaformaður KKÍ og formaður dómaranefndar, auglýsir eftir körfuboltaáhugafólki sem er tilbúið að gerast dómarar. Héðinn Gilsson, aðstoðarþjálfari HK sem er spáð titlinum í efstu deild karla: Menn verða að þola pressu í toppbaráttu HANDBOLTI Eftir ansi dapurt gengi á síðasta tímabili í Remax-deildinni í handknattleik hefur lið HK bætt í leikmannasarpinn og er stefnt að betri árangri í vetur. HK hefur ráðið til sín litháíska þjálfarann Miglius Astrauskas en kappinn sá er þaulmenntaður á sviði íþrótta og gerði m.a. lið Kaunas Lusis að meisturum í heimalandi sínu þrjú ár í röð. Þá hafa A-landslið karla og kvenna fengið að njóta krafta hans. Nýlega voru formenn, þjálf- arar og fyrirliðar liða í Remax- deildinni fengnir til að spá fyrir um gang mála í vetur. Þar var HK spáð titlinum og kom valið nokk- uð á óvart. Spáin kom HK-mönn- um sjálfum í opna skjöldu, þó að á toppbaráttuna sé stefnt. „Já, þetta kom töluvert á óvart,“ sagði Héðinn Gilsson, aðstoðarþjálfari HK-manna. „Sérstaklega í ljósi þess að við spiluðum þrjá leiki hér heima fyrir mótið og það var ekkert sérstakt að sjá þar held ég. En að öðru leyti er þetta allt í lagi. Við ætlum okkur að vera í toppbaráttu og ef það kemur titill út úr því þá er það bara mjög gott.“ Að tilheyra liði sem fyrir fram er spáð góðu gengi getur reynt á taugarnar og það veit Héðinn full- vel. „Ef það kemur einhver pressa á menn, þá er það allt í lagi. Ef menn ætla að vera í toppbaráttu þá verða þeir að þola smá pressu. Ég sé ekki fyrir mér að það muni breyta neinu og finn ekki fyrir því sjálfur, enn sem komið er.“ „Þetta byggist meira á liðs- heildinni og spilinu. Við erum ekki með neinn mjög stóran og sterkan skotmann sem getur skotið fyrir utan.“ HK fékk það erfiða verkefni að sækja Íslandsmeistara Hauka heim á Ásvelli í fyrrakvöld og náði að vinna á sterkum heima- velli Hafnfirðinga, 25-29. Héðinn segir leikinn hafa verið ágætis prófraun fyrir liðið. „Þetta var í heildina séð nokkuð gott. Það voru kaflar sem okkur líkaði ekki við og sérstaklega þegar við fórum að flýta okkur í seinni hálfleik, þegar við vorum komnir með gott for- skot. Við munum leitast við að betrumbæta leik okkar og var ánægjulegt að hefja tímabilið með sigri á Haukum,“ sagði Héðinn Gilsson. smari@frettabladid.is KÖRFUBOLTI „Við tökum öllum fagn- andi eins og staðan er í dag. Það er nóg af verkefnum í boði og það er það mikill skortur á dómurum að áhugasamir og efnilegir dómarar munu fá mikið af verkefnum í vetur,“ segir Hannes Jónsson, vara- formaður KKÍ og formaður dóm- aranefndar, en nú stendur yfir átak hjá sambandinu til þess að fjölga körfuboltadómurum, en þeim hefur farið fækkandi undanfarin misseri þrátt fyrir að leikjum og verkefn- um þeirra sé alltaf að fjölga. „Þetta er það mikið vandamál að við munum ekki treysta okkur til þess að manna alla leiki í vetur og það byrjar því miður að bitna fyrst á grasrótinni. Það þarf að taka á þessum málum,“ segir Hannes, sem hefur ekki auð- veldasta verkefnið í hreyfingunni – að raða allt of fáum dómurum niður á allt of marga leiki. Dómaranefnd KKÍ og stjórn KKDÍ auglýstu í vikunni eftir dómurum til þess að dæma í körf- unni í vetur því það vantar sár- lega nýja dómara. Lítil endurnýjun „Það var mjög lítil endurnýjun á dómarahópnum síðastliðinn vetur og við fengum mjög fáa til að taka þátt í þeim dómaranám- skeiðum sem voru haldin. Eins og ástandið var síðasta vetur þá voru dómararnir sem voru starfandi að dæma allt of mikið. Það er ekki hægt að leggja annan eins vetur á þessa dómara. Þeir geta ekki dæmt svona mikið annan veturinn í röð,“ segir Hannes, sem vill fá meiri hjálp frá félögunum. „Við höfum verið að reyna að benda félögunum á að það sé dómara- skortur en það hefur ekkert kom- ið til baka frá þeim um hvað sé hægt að gera í þessum málum. Fé- lögin þurfa að hjálpa okkur við að búa til dómara. Með því að aug- lýsa eftir dómurum vonumst við til að við náum bæði að vekja félögin sem og að ná til hins al- menna körfuboltaáhugamanns sem er kannski ekki í beinum tengslum við félögin. Við erum að vonast eftir að ná með þessu til fólks sem hefur áhuga fyrir að starfa áfram við körfuboltann. Það má heldur ekki gleyma því að þetta er aukavinna og ef menn hafa spilað körfubolta og þurfa á aukavinnu að halda þá er það al- veg ljóst að þetta gefur smá pen- ing,“ segir Hannes, en það er ekki bara aukapeningurinn sem heillar því dómarar hafa myndað með sér sterkan félagsskap. Góður hópur „Dómarar hafa myndað með sér sitt sérsamband sem er KKDÍ og allur dómarahópurinn vinnur alltaf mjög vel saman. Þetta er góður hópur, þeir bakka hver ann- an upp og það er mikil samheldni í hópnum. Þessir nýju dómarar munu fá mikla aðstoð frá reyndari dómurum og við stefnum á það að reyndari dómararnir taki nýlið- ana í fóstur og hjálpi þeim í gegn- um fyrstu skrefin,“ segir Hannes, sem bendir á að félagsstarfið í dómarasamtökunum hafi alltaf verið í góðu formi. Hannes segir haustþing dóm- ara vera tilvalinn byrjunarreit fyrir verðandi dómara. „Menn geta komið inn þótt þeir mæti ekki á þingið því það verða dómara- námskeið í október en okkur fannst upplagt að reyna að fá sem flesta til að byrja á því að mæta á dómaraþingið því þar er miklu meiri möguleiki á því að menn kynnist betur og geti spjallað betur um þessa hluti. Þetta eru æf- ingabúðir dómaranna og þarna fá þeir heila helgi þar sem þeir eru saman og fara yfir öll þau mál sem þarf að hafa í huga fyrir veturinn. Þarna fá nýir menn gott tækifæri til þess að komast strax inn í hóp- inn,“ segir Hannes um haustþing dómara sem verður haldið að Laugarvatni um næstu helgi. ooj@frettabladid.is VILTU DÆMA KÖRFUBOLTA? Hannes Jónsson, varaformaður KKí og formaður dómara- nefndar, segir þörfina eftir nýjum körfuboltadómurum vera mikla. Fréttablaðið/E.Ól. FYLGST MEÐ GANGI MÁLA Miglius Astrauskas, þjálfari HK, kallar til sinna manna gegn Haukum og Héðinn Gilsson, aðstoðarþjálfari fylgist með. Fréttablaðið/Stefán

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.