Fréttablaðið - 11.11.2004, Qupperneq 42
Eitt best varðveitta leyndarmál Reykja-víkur er Ostabúðin við Skólavörðustíg8, á ská á móti Mokka. Jóhann Jóns-son matreiðslumeistari hefur rekið
búðina í tæp fimm ár en hann tók við henni
af Osta- og smjörsölunni sem hugðist leggja
búðina niður.
„Við breyttum strax um áherslur þegar
við tókum við búðinni og fórum að selja
meira en osta – til dæmis þurrkað kjöt og
pylsur,“ segir Jóhann. „Síðari ár höfum við
síðan lagt meiri áherslu á veisluþáttinn og
fyrir ári síðan opn-
aði ég veitinga-
staðinn á neðri
hæðinni.“
Veitingastaður
Ostabúðarinnar
hefur notið gríð-
arlegra vinsælda á
þeim stutta tíma
sem hann hefur
verið opinn en
vinsælasti réttur-
inn þar er fiskur
dagsins. „Við erum aldrei með sama réttinn. Það fer eftir því
hvaða fisk við fáum á hverjum tíma – allt frá þorski og upp í
skötusel,“ segir Jóhann en skammturinn
kostar 890 krónur.
Jóhann lærði til kokks á Hótel Holti
en hann hefur jafnframt unnið á Lækjar-
brekku og í Iðnó. Reynsla hans hefur því
nýst vel í Ostabúðinni. „Við leggjum
áherslu á að framleiða okkar eigin vörur.
Ég bý til dæmis til mikið úr kjöti og þá
sérstaklega villibráð. Svo framleiðum við
einnig forrétti úr fiski og kjöti og sósur
og dressingu. Við bökum meira að segja
okkar eigin brauð,“ segir Jóhann, sem
leitar mikið til Ítalíu og Frakklands að
hugmyndum. „Það eina sem við bíðum
eftir er að léttvínssala verði leyfð. Þá för-
um við að selja rautt og hvítt og munum
væntanlega leggja
áherslu á eitthvert
hérað eða álíka
sérhæfingu,“ segir
Jóhann í Osta-
búðinni.
Ostabúðin Skólavörðustíg
Vel varðveitt
leyndarmál
Ævintýraskemmtan fyrir unga
og aldna Bókmenntir Abarat er fyrsta
barnabók bandaríska hryllings- og æv-
intýrasagnahöfundarins Clives Barker.
Hann varð fyrst frægur fyrir smásagna-
safnið Dreyrabækurnar (Books of
Blood) þar sem hann tvinnaði saman
hryllingssögur sem þóttu nýstárlegar
bæði fyrir ímyndunarafl og opinskáan
og blóðugan hrylling. Barker sló svo í
gegn þegar skáldsagan Hellraiser var
kvikmynduð, en hún þótti líka teygja sig
nokkuð langt í ógeðinu.
Óhugnaðurinn er heldur ekki fjarri í
Abarat þó að ekki sé gengið fram af les-
endum líkt og í fyrri verkum Barkers.
Söguhetjan, ung stúlka að nafni Candý
Quackenbush, hverfur inn í töfraveröld-
ina Abarat úr litlausum og leiðinlegum
smábæ í Bandaríkjunum miðjum, frá sí-
fullum föður og þunglyndri móður.
Í Abarat er ímyndunaraflinu gefinn
laus taumurinn og Candý leikur lykil-
hlutverk í baráttu góðs og ills, ljóss og
myrkurs. Bókin er sú fyrsta í röð fjög-
urra bóka og ætti að gleðja jafnt unga
sem aldna, hafi þeir á annað borð gam-
an af ævintýralegri baráttu góðs og ills.
Clive Barker myndskreytir bókina sjálf-
ur með fjölda litfagurra og skemmti-
legra málverka.
F2 6 11. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
„Karl Jóakim Ros-
dahl vinur minn hef-
ur haft einna mest
áhrif á mig,“ segir
Sölvi Blöndal, höfuð-
paur rapprokksveitar-
innar Quarashi, um
áhrifavald sinn. „Við kynnt-
umst þegar við
vorum ellefu
ára í Mela-
skóla og höf-
um verið bestu vinir
síðan. Hann kenndi
mér meðal annars að
greina muninn á
réttu og röngu, sem
er frekar stór hluti af
því þroskast.“ Leið
þeirra félaga lá í gegnum
Melaskóla,
Hagaskóla og
síðar Mennta-
skólann í
Reykjavík. „Hann
hefur verið mér eins
og eldri bróðir í ein
sautján eða átján ár.
Við höfum alltaf ver-
ið vinir og gerðum
flesta ef ekki alla
hluti saman til að byrja með;
byrjuðum að
hlusta á
músik,
smakka
brennivín og gott ef
við fórum ekki á
fyrstu rokktónleikana
saman,“ segir Sölvi.
„Karl Jóakim er að
vísu ekki tónlistar-
maður en það er
bara betra, þeir eru hvort eð
er allir vit-
leysingar.“
20%
afsláttur
Af öllum vörum
verslanana
dagana
11. nóvember til
14. nóvember.
Komið og gerið
góð kaup hjá
okkur fyrir jólin.
Mikið úrval af
skóm, töskum,
buddum
og skarti.
Verið velkomin
Ath!
Nýtt
kortatímabil.
Sölvi Blöndal
Hann segir að Karl Jóakim
sé áhrifavaldur í lífi hans.
Karl Jóakim
Er eðlisfræðinemi en ekki
tónlistarmaður eins og Sölvi.
Áhrifavaldurinn
Jóhann Jónsson Hann er eigandi Ostabúðarinnar, sem er vel varðveitt leyndarmál í hjarta Reykjavíkur.
Ævintýraheimur Abarat
Í Abarat eru 25 eyjar þar sem hver
táknar eina stund sólarhringsins og
ein dularfull stendur í miðju utan
tíma.