Fréttablaðið - 11.11.2004, Síða 87
FIMMTUDAGUR 11. nóvember 2004 51
Kröftugar myndir Kristínar Eiríksdóttur
Sigurður Guðmundsson myndlistar-
maður hefur sagt að það sem ráði úrslit-
um um góða listamenn séu ekki bara
hæfileikar, kunnátta eða innblástur,
heldur öðru fremur óslökkvandi þörf
fyrir að tjá sig; ekkert getur stöðvað
löngun þeirra til að klæða sköpun sína í
listrænan búning. Og það ræður úrslit-
um um framtíð bókmenntanna að ungt
fólk klæði hugsun sína í orð – því far-
vegir listarinnar eru margir og misjafn-
lega fjölfarnir hverju sinni. Ljóðlistin er
algengasta upphaf bókmenntasköpunar
og góður mælikvarði á hvert hugurinn
stefnir. Á áttunda áratugnum var ungt
fólk að yrkja; tugir ljóðabóka komu út á
hverju ári í sjálfsútgáfu auk þeirra sem
forlögin gáfu út. Á tíunda áratugnum
virtist mun minna um að ungt listafólk
glímdi við kvæðagerð, kannski voru allir
búnir að fá nóg af of löngum ljóðlínum
og engum bragarhætti, einsog Nóbels-
skáldið orðaði það eitt sinn.
En það er aldrei óhætt að segja and-
látsfréttir af bókmenntagreinum: Á allra
síðustu árum hefur ungt fólkt aftur tek-
ið til við að semja ljóð; hist, lesið upp,
gefið út saman, stundað neðanjarðar-
starfsemi eins og Medúsu hópur Sjóns
og félaga forðum. Anga af þeirri sköpun
mátti sjá í ljóðasamkeppni Fréttablaðs-
ins og Eddu, þar sem margt skemmti-
legt leit dagsins ljós og víða hattaði fyrir
talenti. Sigurvegari keppninnar, Kristín
Eiríksdóttir (f. 1981), hefur nú sent frá
sér bók sem heitir Kjötbærinn og mynd-
skreytir hana sjálf. Þessa bók, eða kver,
er hins vegar allt eins hægt að kalla
sögu; eina kvæðið í bókinni með stutt-
um línum og bragarhætti er tilvitnun í
sjómannasöng eftir Magnús Eiríksson.
Kjötbærinn á brotakennda sýn og sterkt,
persónulegt myndmál sameiginlegt
með ljóðum, en þegar brotunum hefur
verið raðað saman hefur lesandinn þá
tilfinningu að það sé verið að segja
honum sögu: Sögu af heitu ástarsam-
bandi sem splundraðist, af vaxandi ein-
semd og ofsóknaræði, af þeirri óendan-
legu fjarlægð sem getur orðið milli
tveggja einstaklinga.
Þetta er saga Kötu og Kalvins og þó
mest Kötu sem segir um sig: „Ég heiti
Kata og er föl sökum inniveru, einræn
sökum einveru inniveru ímyndunarveik-
ur sendiboði sannleikans ung og ást-
fangin.“ Sagan er sögð með sterkum
myndum og kallast sumar skemmtilega
á við aðrar bækur. Þannig hélt sögumað-
urinn í Inferno eftir Strindberg, þessu nú-
tímalega og þó aldargamla meistaraverki
paranojunnar, líka að nágranni hans
væri að ofsækja hann með rafmagni.
Slíkar myndir hjálpa okkur lesendum að
skynja hvernig Kata missir tök á vitund
sinni; jakuxinn sem Kalvin er að ímynda
sér í upphafi nær yfirhöndinni áður en
yfir lýkur. Kannski var hún bara venjuleg
stelpa í venjulegri blokk sem djöflar hug-
arfylgsnanna náðu smám saman valdi á.
Það er kraftur í þessari yfirlætislausu bók
og lesandinn finnur að höfundurinn þarf
að segja þessa sögu – og það skiptir
öllu. Kristín hefur sjálf myndskreytt
bókina, einkum þóttu mér rafmagns-
snúrurnar og ónýtu innstungurnar flottar
en ég var meira efins um kápumyndina.
Kristín Eiríksdóttir hefur sýnt að hún var
verðugur verðlaunahafi og á að halda
áfram að skrifa. Og ef hún lætur ekkert
stöðva þörfina fyrir að tjá sig, bíður
hennar björt framtíð í listinni.
BÓKMENNTIR
HALLDÓR GUÐMUNDSSON
Kjötbærinn
Höfundur: Kristín Eiríksdóttir
Útgefandi: Bjartur
Vinningar fyrir
10 frumlegustu pakkana:
• 10 ársárskriftir að bókum frá Hugmyndabanka heimilanna
• 10 gjafabréf með úttektum í versluninni Föndru
Aukavinningar fyrir
heppna þátttakendur:
• Farseðill fyrir tvo til London með Iceland Express
• 100 bækur frá Hugmyndabanka heimilanna
Áskriftarsími 522-2100
Lestu meira um leikinn á klubbar.is
eða á heimasíðu Innlits-útlits á s1.is!
Hugmyndabanki heimilanna og verslunin
Föndra leita að frumlegasta jólapakkanum
2004. Öll fjölskyldan getur tekið þátt í þessum
skemmtilega leik og er fjöldi vinninga í boði.
Þátttakendur eru beðnir um að taka mynd af eigin pakka
og senda til okkar í tölvupósti á hugmyndabanki@edda.is
fyrir 5. desember nk. Einnig er hægt að senda útprentaðar
myndir á heimilisfangið:
Dómnefnd velur 10 frumlegustu pakkana og verða úrslit
tilkynnt 14. desember.
Einn heppinn þátttakandi verður dreginn út og fær
hann farseðil til London fyrir tvo með Iceland Express.
Ta
kt
u þ
át
t í
sk
em
m
til
eg
um
le
ik!
Dalvegi 18 • Kópavogi
s. 568-6500 • www.fondra.is
Hugmyndabanki heimilanna
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Skilafrestur til 5. desember nk.
edda.is
JPV útgáfa hefur sent frá sér skáld-söguna Dauðans óvissi tími eftir
Þráin Bertelsson.
Víkingur Gunnars-
son, yfirlögreglu-
þjónn hjá rann-
sóknardeild lög-
reglunnar í
Reykjavík, þarf að
upplýsa hrottaleg
morð, bankarán
og fleiri glæpi.
Blóði drifin slóð
þessara atburða liggur aftur til fortíð-
ar þegar íslenskur athafnamaður
stofnaði skipafélag sem fór á haus-
inn. Hér fjallar höfundur um alkunna
atburði sem öll þjóðin hefur velt fyr-
ir sér og talað um. Kveikja þess ófrið-
arbáls sem brennur á síðum þessar-
ar bókar er raunverulegir atburðir. En
sögupersónur sem logarnir umlykja
eru hugarfóstur höfundar og eiga sér
engar fyrirmyndir, lifandi eða dauðar.
Hjá Vöku-Helgafelli er komin útMálsvörn og minningar eftir
Matthías Johannessen.
Málsvörn og minn-
ingar er uppgjör
Matthíasar við sam-
tíma sinn. Hann var
í áratugi í eldlínu
þjóðfélagsumræð-
unnar sem ritstjóri
Morgunblaðsins .
Nú horfir hann á
vígvöllinn úr fjar-
lægð sem veitir honum færi á að
greina og túlka það sem hann sér.
Hér er fjallað um skáldskap og trú,
mennsku og list, stundlegan gróða
og varanleg gildi, uppruna, rætur,
tungumál og fjölmiðla nútímans.
Ljóð og sendibréf, samtöl og ádrep-
ur, allt fellur í einn farveg og mótar
áhrifaríka málsvörn skáldsins sem
hefur staðið af sér hryðjur og storma
og hefur margs að minnast.
Hjá Máli og menningu er kominút skáldsagan Fólkið í kjallaran-
um eftir Auði Jónsdóttur.
Klara ólst upp við
frjálslyndi hippa-
foreldra og átti
skrautlega æsku,
en er nú í sambúð
með ungum
manni á uppleið.
Ákveðin atvik
verða til þess að
hún gerir upp við
hugsjónir foreldr-
anna, jafnframt
því sem hún tekst á við gildismat eig-
in kynslóðar. Um leið uppgötvar hún
nýjar hliðar á sjálfri sér og eigin lífi.
Fólkið í kjallaranum er kraftmikil
skáldsaga sem brýtur til mergjar
ýmsar venjubundnar hugmyndir um
lífið og tilveruna og knýr lesanda til
afstöðu.
Hjá Máli og menningu er kominút bókin Fífl dagsins eftir Þorst-
ein Guðmundsson.
Þegar Siggi Tex,
frægasti Íslending-
ur samtímans, flyt-
ur inn í stigagang-
inn hjá sögumanni
með undurfagurri
konu sinni tekur líf
hans hamskiptum.
Hann gerbreytist.
Fífl dagsins er
fyndin, sárgrætileg
og algerlega raunsæ saga um okkar
tíma hér og nú. Hún er skemmti-
harmsaga sem kallast jafnt á við
Kafka sem Leiðarljós, Séð og heyrt
sem Being John Malkovich. Fífl
dagsins er fyrsta skáldsaga Þorsteins
Guðmundssonar.
NÝJAR BÆKUR