Fréttablaðið - 03.09.2004, Síða 16

Fréttablaðið - 03.09.2004, Síða 16
16 3. september 2004 FÖSTUDAGUR NEYTENDUR Tveir af þremur stærstu kjúklingaframleið- endum landsins hækkuðu verð hjá sér um 15 prósent um mán- aðamótin. Þá hefur verð á kjúklingakjöti verið að þokast upp á við núna síðsumars og virðist liðin tíð að kjúklinga- bringur fáist á sérstöku tilboði. Algengt kílóverð á kjúklinga- bringum er um þessar mundir tæpar 2.300 krónur, en í sumar fór kílóverðið á bringum allt nið- ur undir 1.500 krónur. Framkvæmdastjórar bæði Reykjagarðs og Matfugls (Móa) rekja ástæðu hækkunarinnar nú að mestu til fóðurverðs, sem hafi hækkað um meira en 20 prósent síðan í desember. Þá nefna þeir að ákveðin leiðrétt- ing sé að eiga sér stað, en kjötið hafi lækkað um 10 prósent fyrr á árinu og um ein 30 prósent í fyrra. „Kjúklingakjöt hefur verið mjög ódýrt og verður það áfram,“ segir Friðrik Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Matfugls og telur að samkeppni verði áfram virk meðal fram- leiðenda. „Umhverfið er bara á þessa leið. Borið hefur á nauta- kjötsskorti og bæði nauta- og svínakjöt hefur verið að hækka,“ bendir hann á. Matthías Hannes Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Reykjagarðs, segir ekki óeðlilegt að fyrirtæk- in sæti lagi og komi að nauð- synlegum hækkunum þegar einn fari af stað. Helga Lára Hólm, fram- kvæmdast jór i Ísfugls, segir að ákvörðun um verðhækkun hafi ekki enn verið tekin hjá fyrir- tækinu, en telur þó líklegt að af henni þurfi að verða til að mæta auknum fóður- kostnaði. Hún vildi ekki tjá sig um hvort Ísfugl ætlaði nú að sæta lagi og slá hinum við í sam- keppni með ódýrara kjöti. „Ég held hins vegar að Ísfugl sé í dag að borga framleiðendum besta skilaverðið og höfum ekki átt í sömu erfiðleikum og sum önnur fyrirtæki,“ segir hún. Tvö fyrirtæki sjá stærstu framleiðendum kjúklingakjöts fyrir fóðri, Mjólkurfélag Reykjavíkur og Fóðurblandan og mun verð vera mjög svipað hjá þeim báðum. Ástæður hækkana eru sagðar vera upp- skerubrestur sem átti sér stað erlendis, en í ár munu horfur vera betri og líkur á að jafnvægi náist í fóðurverð í vetur. olikr@frettabladid.is Evrópusambandsríkin: Níu prósenta atvinnuleysi ATVINNUMÁL Atvinnuleysi í þeim Evrópusambandslöndum sem nota evru-myntkerfið helst óbreytt milli mánaða. Þvert yfir er 9 prósenta atvinnuleysi en mikill munur er milli stakra ríkja. Þannig mældist aðeins 4,2 prósenta atvinnuleysi í Austur- ríki í júlí meðan Pólverjar bjuggu við 18 prósenta atvinnuleysi á sama tíma. Minna atvinnuleysi mældist í ellefu aðildarríkjum á ársgrundvelli en það hafði aukist í öðrum ellefu og í þremur ríkj- um var atvinnuleysi það sama. ■ ,,Kjúklinga- kjöt hefur verið mjög ódýrt og verður það áfram BÍÐA HÆLIS Mikill fjöldi erlends vinnuafls í Svíþjóð hefur ekki notfært sér velferðarkerfið eins og margir óttuðust. Erlent vinnuafl í Svíþjóð: Ástæðulaus ótti ATVINNUMÁL Ótti Svía við erlent vinnuafl og hugsanlega mis- notkun á sænska velferðarkerfinu hefur reynst ástæðulaus að mati Hans Karlsson, atvinnumálaráð- herra Svíþjóðar, í ræðu sem hann hélt á atvinnumálaráðstefnu Norðurlanda og Eystrasaltsríkj- anna í vikunni. Sagði hann að íbúar þeirra tíu nýju ríkja Evrópubandalagsins þar sem kjör eru víðast vel undir meðallagi í sambandinu hafi ekki flykkst til Svíþjóðar til að komast inn í félagslega kerfið sem þykir með þeim betri í Evrópu. ■                                                      ! ""# LYFJAVERÐ Greiðsluþátttöku í tveimur lyfjaflokkum var hætt nú um mánaðamótin með nýrri reglugerð frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Hér eft- ir verða bólgueyðandi og örvandi lyf aðeins niðurgreidd að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum. Annars vegar er cox-II lyf, sem er nýr lyfjaflokkur bólgueyðandi verkjalyfja sem er mun dýrari en eldri sambærileg lyf sem hafa verið á markaði í fjölda ára. Sam- kvæmt rannsóknum er árangur cox-II lyfjanna við meðhöndlun gigtarsjúkdóma ekki betri en eldri lyfjanna. Almannatryggingar munu hér einungis greiða niður coxíb-II lyf fyrir einstaklinga sem uppfylla ákveðin skilyrði. Til þess þarf staðfestingu læknis á lyfseðli og að val hans á lyfinu grundvallist á leiðbeiningum Landlæknis- embættisins. Undir lyfjaflokkinn örvandi lyf falla lyfin amfetamín, ritalin, ritalin uno, concerta og modiodal. Greiðsluþátttaka TR er háð fram- vísun lyfjaskírteinis. Læknir þarf að sækja um á þar til gerðu eyðu- blaði og fram verður að koma sjúk- dómsgreining og sjúkrasaga. ■ NIÐURGREIÐSLU HÆTT Greiðsluþátttöku í tveimur lyfjaflokkum var hætt nú um mánaðamótin, nema að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum. Um er að ræða örvandi lyf og bólgueyðandi lyf. TÖLVUR OG TÆKNI Tölvuormurinn Netsky trónir enn á toppi lista vírusvarnafyrirtækisins Central Command yfir fyrirferðamestu tölvuóværuna. Fyrirtækið gefur mánaðarlega út lista sem kallast „sóðatylftin“ en þar má sjá hvaða tölvuóværu vírusvarnir fyrir- tækisins hafa verið að fanga í liðnum mánuði. „Ágústmánuður hefur verið nokkuð rólegur, ólíkt í fyrra þegar fram komu alvarlegar sýkingar á borð við Lovsan-orminn [MsBlast- er], Sobig.F-orminn og MiMail- orminn,“ er í tilkynningu haft eftir Steven Sundermeier, varaforseta vöru- og þjónustudeildar Central Command. „Við vonum bara að framhald verði á þessari rólyndis- tíð. Hins vegar er líklegra að vírus- vandinn eigi eftir að versna áður en hlutirnir fara batnandi. Lykill- inn að lausn vandans er upp- fræðsla notenda um tölvuvarnir og -vinnulag,“ bætti hann við. ■ BORÐTÖLVA Tölvuormarnir Netsky.P og Netsky.Z tróna efstir á lista vírusvarnafyrirtækisins Central Command yfir fyrirferðarmestu tölvu- óværuna í liðnum mánuði. Á hæla þeirra kemur svo ormur að nafni Zafi.B. SÓÐATYLFTIN Í ÁGÚST Staða Vírus Prósenta 1. Worm/Netsky.P 28,4% 2. Worm/Netsky.Z 8,0% 3. Worm/Zafi.B 7,4% 4. Worm/Netsky.D 3,9% 5. Worm/Netsky.C 3,5% 6. Worm/MyDoom.M 2,6% 7. Worm/Netsky.Q 2,4% 8. Worm/Bagle.AA 2,1% 9. Worm/Netsky.B 2,0% 10. Worm/LovGate.AH 1,2% 11. Worm/Bagle.AI 0,9% 12. Worm/LovGate.AI 0.8% ... Önnur óværa 36,8% Heimild: Central Command, Inc. Sóðatylftin í ágúst: Netsky fyrirferðar- mesta tölvuóværan FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R G ÍS LA SO N Í KJÚKLINGABÚI REYKJAGARÐS Uppskerubrestur í kornrækt erlendis kallaði á verðhækkanir á fóðri hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur og Fóðurblöndunni, sem aftur skila sér í verðhækkun á kjúklingi. Verð á kjúklingi hækkar Tveir af þremur stærstu kjúklingaframleiðendum landsins hækkuðu hjá sér verð um 15 prósent um mánaðamótin. Líkur eru á að sá þriðji fylgi í kjölfarið. Hækkandi fóðurverði er kennt um hækkun á kjúklingakjöti undanfarið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /M YN D /A P Tryggingastofnun ríkisins: Niðurgreiðslu örvandi og bólgulyfja hætt EKKI PÓLITÍSKAN HER Efnt var til mótmæla í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, og þess krafist að áhrif hersins á stjórn landsins yrði minnkuð. „Her já, herstjórn nei“ stóð á einu spjaldanna sem mótmælendur báru. 16-17 2.9.2004 20:22 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.