Fréttablaðið - 03.09.2004, Qupperneq 47
FÖSTUDAGUR 3. september 2004 39
Lokakeppnin í Toyota-mótaröðinni í golfi
Icelandair-mótið á Hellu 4. og 5. september
Nánari upplýsingar og bókanir hjá
Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100.
Golfferð á Meistaramót meistaranna í Glasgow
30. september - 3. október
Golf á þremur völlum, Windy Hill, Hilton Park Hotel og Buchanan
Castle Gold Club, og kostur á morgumtíma á Balfron Golf Club. Gist á
Kirkhouse Inn.
*Innifalið í verði er flug, gisting í 3 nætur með morgunverði og 3ja rétta kvöld-
verður öll kvöldin, golf á þremur goldvöllum, flugvallarskattar og eldsneytisgjald.
Verð fyrir golfara 32.900 kr.* aðrir greiða 58.040 kr.*
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
25
72
9
0
9/
20
00
4
Glæsileg verðlaun
9 efstu í karlaflokki og 3 efstu í kvennaflokki tryggja
sér þátttökurétt í ferð með Icelandair á Meistaramót
meistaranna í Glasgow.
Síminn veitir viðurkenningu fyrir fæst pútt,
hittar brautir o.fl.
Hver verður Íslandsmeistari í golfi 2004?
FÓTBOLTI Ungir FH-ingar ætla ekki
að gefa þeim eldri neitt eftir á
þessu sumri og um síðustu helgi
tryggði 5. flokkur félagsins sér Ís-
landsmeistaratitilinn eftir úrslita-
leik við Skagamenn. Í 5. flokki
gilda samanlögð úrslit úr leikjum
A- og B-liða. FH-ingar unnu b-liðs-
leikinn 4-2 og a-liðsleiknum lauk
síðan með jafntefli, 2-2.
Bjarni Guðmundsson skoraði
þrennu fyrir b-liðið og Jakob
Sæternes bætti fjórða markinu
við en þeir Hjörtur Þórisson og
Viktor Smári Regatta skoruðu
fyrir a-liðið og komu í báðum til-
fellum liðinu yfir í leiknum.
Hjörtur, sonur Þóris heitins Jóns-
sonar, var í miklu stuði og skor-
aði 11 mörk í úrslitakeppninni.
Það er óhætt að segja að FH-
liðið hafi komið upp á réttum
tíma því liðið varð í 4. sæti í
deildarkeppninni en sló út öll
þrjú liðin fyrir ofan sig í úrslita-
keppninni sem skar úr um Ís-
landsmeistaratitlinn. FH vann
topplið Fylkis í átta liða úrslitum,
sló út lið Fram, sem varð í 3. sæti,
í undanúrslitunum og lagði loks
Skagamenn í úrslitaleiknum en
lið ÍA endaði í 2. sæti í deildar-
keppninni. FH-ingar unnu 5.
flokk karla nú í sjötta sinn en það
var einmitt í þessum flokki sem
fyrsti Íslandsmeistaratitill
félagsins vannst fyrir 18 árum.
„Það má kannski segja að við
höfum lagt línurnar fyrir meist-
araflokkinn og þeir hljóta að hafa
fengið smá gæsahúð að sjá strák-
ana fagna sigri,“ sagði Ásgeir
Ólafsson, þjálfari FH-liðsins, í
léttum tón en fjölmargir meist-
araflokksmenn voru mættir til að
sjá strákana hans verða Íslands-
meistara og unnu síðan stóran
sigur í Grindavík tveimur dögum
seinna. Sá sigur er góður áfangi í
að tryggja titilinn í Fjörðinn í
fyrsta sinn.
„Það var gaman fyrir strák-
ana að fá svona mikinn stuðning í
þessum leik, það var alls konar
FH-fólk mætt til að hvetja þá, allt
frá meistaraflokksstrákunum
upp í bæjarfulltrúa í Hafnar-
firði,“ sagði Ásgeir en strákarnir
hans hafa unnið öll sex mótin
sem þeir hafa tekið þátt í í sumar.
„Þetta eru mjög sigursælir
strákar. Við lentum reyndar í
fjórða sæti í deildinni og þar
hafði það einhver áhrif að við
vorum aldrei með fullt lið, það
vantaði alltaf nokkra út af sum-
arfríum hjá fjölskyldum strák-
anna. Nokkrir foreldrar höfðu
einhverjar áhyggjur af þessu og
ætluðu að fara að snúast í kring-
um þessa leiki en ég sagði þeim
að hafa engar áhyggjur því nóg
væri til af mannskap,“ sagði Ás-
geir, sem sér marga efnilega í
sínum röðum. „Það er ljóst að
þessir strákar eiga margir
möguleika á að ná mjög langt en
það er bara spurning hvernig
þeir halda á spöðunum í fram-
tíðinni,“ segir Ásgeir en að jafn-
aði mæta 70 strákar á æfingar
hjá flokknum svo knattspyrnuá-
huginn er mikill í Hafnarfirði
þessa dagana.
„Það eru líka sterkir strákar í
C- og D-liðinu og þeir hafa unnið
mörg mót, líka í vetur. Þetta eru
yngri strákar sem taka við hlut-
verkunum í a- og b-liðunum á
næsta ári og FH-liðið verður ekk-
ert síðra þá,“ segir Ásgeir sáttur
að lokum. ooj@frettabladid.is
Fengu örugglega smá gæsahúð
5. flokkur FH varð Íslandsmeistari á dögum fyrir framan marga af meistaraflokksmönnum
félagsins sem eru komnir langleiðina með að tryggja félaginu fyrsta Íslandsmeistaratitilinn.
ÍSLANDSMEISTARAR FH Í 5. FLOKKI KARLA 2004 Sitjandi frá vinstri: Magnús Óli Magnússon, Kári Þrastarson, Bjarni Guðmunds-
son, Andri Magnússon, Sigmundur Sigurgeirsson. Á hnjám frá vinstri: Andri Gíslason, Viktor Smári Segatta, Einar Karl Ingvarsson, Alexand-
er Ágústsson, Helgi Valur Pálsson, Gunnar Máni Arnarsson, Brynjar Ásgeir Guðmundsson, Hjörleifur G. Bergsteinssson, Aron Þór Ragnars-
son, Orri Ómarsson. Aftasta leikmannaröð: Ingi Þór Garðarsson, Hjörtur Þórisson, Gunnlaugur Jón Ingason, Jakob Sæternes, Davíð Sig-
urðsson, Sigurður Ingiberg Ólafsson, Kristján Gauti Emilsson, Ísak Rafnsson, Árni Björn Höskuldsson, Björn Berg, Emil Atlason. Aftast: Árni
Freyr Guðnason aðstoðarþjálfari, Jón Páll Pálmason aðstoðarþjálfari, Ásgeir M. Ólafsson þjálfari. Fréttablaðið/E.Ól.
ÍSLANDSBIKARINN Á LOFTI Fyrirliðar
5. flokks FH með bikarinn, Kári Þrastarson,
fyrirliði A-liðs, til vinstri og Davíð Sigurðs-
son, fyrirliði B-liðs.
FLESTIR ÍSLANDSMEISTARA-
TITLAR Í 5. FLOKKI KARLA
Valur 9
KR 7
FH 6
Fram 5
Breiðablik 3
ÍA 3
FH vann einnig titilinn 1986, 1989, 1990,
1995 og 1996.
KÖRFUBOLTI Líkur eru á að Hlynur
Bæringsson, landsliðsmaður í
körfuknattleik, sé á leið til Evrópu
í atvinnumennsku. Hlynur, sem er
á mála hjá Snæfelli í úrvalsdeild-
inni, segir að vel hafi gengið í
sumar og einhver áhugi hafi
kviknað hjá erlendum liðum, sem
hann vill ekki nefna. „Ef gæsin
gefst verður hún gripin,“ sagði
Hlynur og sagðist hafa mætt full-
um skilningi hjá þjálfara og for-
ráðamönnum Snæfells. „Það er
eins með íþróttamenn og tónlist-
armenn, ef tækifæri gefast verð-
ur maður að grípa eitthvert körfu-
boltalið og skella sér á tónleika-
ferðalag,“ segir Hlynur og hlær.
Málið er enn sem komið er á
frumstigi en taldi Hlynur að
helmingslíkur væru á að hann
færi út.
Landsliðið heldur utan í næstu
viku og mun leika gegn Dönum á
föstudaginn kemur en heldur svo
heim til undirbúnings fyrir leik
gegn Rúmenum 19. september.
„Þetta eru þýðingarmiklir leikir
því ef þeir vinnast erum við
komnir upp í A-riðil og getum þá
tekið þátt í Evrópukeppninni þar
sem leikið er heima og heiman.
Það yrði mjög skemmtilegt ef til
þess kæmi,“ sagði Hlynur.
Hlynur Bæringsson hugsanlega á leið til Evrópu?
Gott gengi að skila sér
Á LEIÐ TIL EVRÓPU Hlynur Bæringsson gæti verið á leið til Evrópu.
46-47 (38-39) Sport 2.9.2004 20:27 Page 3