Fréttablaðið - 03.09.2004, Side 49
LAG
Hamraborg 11
Kópavogi
S
A
L
A
L
A
G
E
R
LAGERSALA
Úrval af vönduðum
dömu-, herra-,
og barnafatnaði.
Góð vörumerki.
Opið
virka daga 12-18
laugardaga 10-15
FÖSTUDAGUR 3. september 2004
nr. 35 2004
Í HVERRI VIKU
bíó heilabrot bækur fólk stjörnuspá matur
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
3.
- 9
. s
ep
tem
be
r
- hefur ekki séð son sinn í tvö ár
Rúnar Alexandersson
Dísir í krísu
- fjórar Dísardísir teknar tali
bragð • fjölbreytni • orka
grillaður kjúklingur
caprese og Toppur
599 kr.
+
Valur Gunnarsson
Robert Jackson
Laufey Ólafsdóttir
» NÝ BIRTA MEÐ
FRÉTTABLAÐINU
Á MORGUN »
„Það eru endalausar veiðilendur
hérna á Grænlandi. Bæði erum við
að veiða hérna bleikju og hreindýr.
Möguleikarnir eru miklir og svæð-
ið mjög stórt,“ segir Bjarni Olsen,
leiðsögumaður úr hópi Íslendinga
sem var að koma úr ævintýralegum
veiðitúr af Grænlandsslóðum. Flog-
ið var til Narssarssuaq, og þaðan
siglt til Narssaq þar sem var gist.
Frá Narssaq var haldið til veiða,
bæði í bleikju og á hreindýr, og er
svæðið þarna í kring ævintýralega
flott fyrir veiðimenn. Ferðin tók
fimm daga og í lok hennar var
Brattahlíð skoðuð í bak og fyrir.
Mest veiddist af bleikju í ferð-
inni og kom mest af henni úr vatni
sem kallast Skeifan. Þúsundir fiska
voru í vatninu og var stærsti fisk-
urinn veiddur á flugu og reyndist
hann vera 8,5 punda fiskur. Stærð-
in á bleikjunni þarna var allt frá
þeirri stærð og niður í 2 pund. Tök-
urnar hjá bleikjunni voru frábærar
og þá sérstaklega þegar hún tók
flugur veiðimannanna. Erfitt er að
lýsa reynslunni með orðum og
verða menn því að reyna sjálfir.
„Ég er búinn að fara hérna með
veiðimenn í 14 ár. Lengsta dvölin
var fjórir mánuðir eitt árið. Græn-
land er frábært veiðiland og enda-
lausir möguleikar til veiða,“ sagði
Bjarni um leið og hann vísaði veiði-
mönnum til vegar um hvar þeir
áttu að veiða. Einn hópur ætlaði
með stangir lengst inn í vatn og
aðrir ætluðu á hreindýraveiðar. Sil-
ungsveiðin var góð og nokkur
hreindýr veiddust.
„Svæðið er fjölbreytt og náttúr-
an í kringum Narssaq er stórbrot-
in. Þarna sér maður hreindýr, erni
og bleikjan er væn sem veiðist á
stöng,“ sagði Þórunn Herdís Hin-
riksdóttir, sem var að fara til
Grænlands í fyrsta skipti en örugg-
lega ekki það síðasta.
Veiðimenn sem hafa heimsótt
Grænland eru flestir á því að þetta
verði veiðimenn að prófa a.m.k.
einu sinni á ævinni, ævintýrið sé
það stórbrotið og svæðið líka. ■
VEIÐIHÓPURINN
Lagt á ráðin um hvar eigi að veiða næst. Landslagið er stórbrotið á þessum slóðum Grænlands.
■ VEIÐI
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiði.
Bullandi bleikja
og bardagi á Grænlandi
ARNAR, ÓLI, PÁLMAR OG ÓSKAR
Með fallegar bleikjur sem veiddust á
vesturströnd Grænlands.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
N
AR
B
EN
D
ER
48-49 (40-41) Skrípó 2.9.2004 20:28 Page 3