Tíminn - 11.11.1973, Page 16

Tíminn - 11.11.1973, Page 16
16 TÍMINN Sunnudagur 11. nóvember 1973. iiiill mgiíii Myndin er tekin i sal Gunnars llannessonar og sést á myndatjald, sem litmyndum Gunnars er varpaö á. Gangnamaöur. Ljósmynd GSG LJÓS '73 er heiti Ijós- myndasýningar, sem nú stendur yfir á Kjarvals- stöðum. Að þessari sýningu standa 6 ungir Reykvikingar — áhuga- Ijósmyndarar, sjálfmennt- aðir i ,,listinni". Hvers vegna ekki að fara og sjá þessa sýningu? Sýningin er mjög áhugaverð, og þeir eiga heiður og hrós skiliö, sem að henni standa. Það er gaman að eyða stund með myndum þeirra. Þær fela i sér blitt viðmót vekja athygli á hversdagslegum umhverfis-- „mótivum” sem alltaf eru fyrir augum, en fáir taka eftir. Þarna eru þau sýnd á listrænan hátt i svart-hvitu. Þegar lokið er skoðun þessarar sýningar, kann margur að spyrja sjálfan sig: Af hverju blæs maður ekki rykið af myndvélinni sinni og tekur slikar myndir (allir eiga myndavélar)? En dæmið er ekki svo einfalt, þvi að litill hlutur myndarinnar er unninn, þó að „mótivið” sé komið á filmu. Þá er eftir kópering, stækkun og skurður, en allt þarf þetta að fylgjast að til þess, að úr verði reglulega góð mynd. Þessi þáttur i myndagerö strákanna hefur tekizt afbragðsvel. Það er mikil vinna, sem liggur að baki gerð myndanna á þessari sýningu. Þarna eru 120 myndir, sem 6 ljósmyndarar hafa tekið við misjöfr. skilyrði, og mætti þvi bgast við sundirleitum myndum. Sú er þó ekki reyndin, þvi að heildarsvipur er á allri sýn- ingunni og jöfn áferð á myndum. Þó getur að lita eina og eina mynd, sem er grátónuð og flöt, — en nóg um það — smámunasemi á ekki rétt á sér i umsögn um þessa miklu sýningu. Hvernig mynd er skorin, er eitt af aðalatriðunum við stækkun myndarinnar, og afmörkun „mótivs”, — skurður myndar- innar — veldur öllu um, hvernig mynd verður áhorfandanum „af- lestrar”. Svo illa má skera mynd, að aðalatriðiö tynist i illa upp- byggðu umhverfi, og myndin verður þá „ólæsileg”. Þeir félagar gleyma þessu atriði ekki, og allt er á sinum stað i næstum hverri mynd. Þó getur að lita mynd og mynd, þar sem skurður á að bjarga misheppnuðu mótivi. Myndskurðurinn er i sjálfu sér smekkur hvers og eins, og reynir þá hvað helzt á smekkvisi og kunnáttu manna i uppbyggingu myndar. Yfirlitsmynd af sýningarsal — Timamynd Gunnar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.