Tíminn - 11.11.1973, Blaðsíða 31
Sunnudagur 11. nóvember 1973.
TÍMINN
31
í júní fyrir næstum 60 árum var
tilræði framið , sem varð kveikjan
að fyrri heimstyrjöldinni. Enn þann
dag í dag er það ekki fullskýrt
litu á verknaö sinn sen hefnd
gagnvart kúgurum Bosniu og sem
þjóðernislega hetjudáð, sem átti
að sameina fólkið i baráttunni.
sem sameinaði Stóru-Serbiu. ,,Ég
iðrast einskis, ég hef aðeins rutt
illu afli úr vegi” sagði Princip við
yfirheyrsluna. Hann hefur þó
viðurkennt, að persónulegar
hvatir liggi aðallega aö baki
verknaðinum og spili þar stærsta
hlutverkið, og margt bendir til
þess, að bæði hjá honum og
Chabrinovitsj sé næstum geð-
veikisleg þörf fyrir að upphefja
sjálfan sig, sem er afleiðingin af
rikri vanmetakennd.
Báðir voru þeir rótlausjr og
viljalitlir persónuleikar og áttu i
erfiðleikum með að aðlaga sig,
bæði heima hjá sérog i skólanum.
Báði voru þeir likamlega heilsu-
veilir og vannærðir. Báðir
byrjuðu þeir i námi og báðir hurfu
þeir frá þvi. Hvorugur þeirra
hafði fasta vinnu. Þó vann
Chabrinovitsj um tima sem
prentari. Jafnvel á kaffihúsum
Belgrad, þar sem þeir rökræddu
um þjóðernisstefnu og stjórn-
leysingastefnu (anarkisma)
biðu þeir ósigur. Cha-
brinovitsj leið fyrir það, að
staöhætt var, að iaöir hans væri
austurriskur lögreglu-njósnari,og
Princip varð að horfast i augu við
það að vera (vegna likamlega á-
galla) visað frá og næstum gerður
að athlægi, þegar hann ætlaði að
skrá sig i einhvers konar
sekmmdarverkahreyfingu i
Balkanstriðinu 1912-13. (Þrátt
fyrir að langt sé um liðiö,er ekki
erfitt að finna lik
karaktereinkenni milli þeirra og
t.d. morðingja Kennedýs,
Oswalds)
Einkennandi er það, að
nokkrum timum fyrir tilræðið lét
Chabrinóvitsj mynda sig. Heim-
urinn skyldi eiga mynd af þessari
mikluhetju. Hvaðhonum við kom,
spilaði það greinilega inn i, að
hann var langt leiddur af berkl-
um.
En þessir ungu menn i Sarajevo
voru aðeins tæki. Hvað ætluðu
höfuðpaurarnir sér? Skemmd-
arverkamennirnir voru út-
sendarar hinnar ólöglegu sérb
nesku hreyfingar. „Sameining
eða dauði,” almennt kölluð
„Svarta höndin”. Kjarni þessa
félagsskapar var liðsforingja-
klikan, sem i fyrsta skipti fyrir
tiu árum hafði orðið heyrum
kunn, þegar meðlimir hennar
myrtu serbneska konunginn
Alexander, drottningu hans
Draga og bræður hennar. Sá blóð-
þyrstasti við þetta tækifæri var
ungur liðsforingi Pragutin
Dimitrijevits. Arið 1914 hafði
honum tekizt að verða leiðtogi
Svörtu handarinnai; auk þess sem
hann var ofursti i herforingja-
ráðinu og yfirmaður Serbnesku
fréttaþjónustunnar-sambland af
njósnara og hefndarverkamanni.
Hver átti hugmyndina að til-
ræðinu i Sarajevo,er ekki vitað .
Nokkrir hafa gert kröfu til
,,heiðursins.”Þaðsem vitaðer, er
það, að áætlunin var viðurkennd
af Dimitrijevitsj. Eft'f hans
skipun voru tilræðismennirnir út-
búnir með sprengjum, skot-
vopnum, eitri, einhverjum
peningum og mynd af þeirri ólög-
legu leifysem þeir áttu að fara yfir
landmærin.
Hvað þessi grimmlyndi ofusti
ætlaði sér að ná fram með þessu
morði og hver stóð að baki
„honum” er hulið þoku, og hans
eigin skýring hefur aldrei fengizt.
Árið 1917 var hann dæmdur til
dauða og tekinn af lifi fyrir þátt-
töku sina i morðtilræðinu við hinn
serbneska erfingja krúnunnar.
Kenning, sem hefur nokkuð til
sins máls, gengur út frá þvi, að
verknaðurinn i Sarajevo hafi að-
eins verið hugsaður sem peð á
skákborði serbneskra innanrikis-
mála. Voldug austurrisk mótmæli
mundu koma serbnesku rikis
stjórninni i þá aðstöði^að hun yrði
,,annað hvort” að taka upp
virkari striðsstefnu (sem væri
vatn á milli Svörtu handarinnar)
,,eða” auðmýkja sig gagnvart
Austurriki og missa þannig and-
litið gagnvart Serbum (sem
Svarta höndin yrði ekki siður
ánægð með).
Til að setja þetta á sjónarsvið
var alls ekki þörf á,að ráðgerðin
heppnaðist en aftur á móti þurfti
að vera hægt, að rekja spor
hennar til afla i Serbiu. Þessi
kenning styðst við það t.d., að
skemmdarverkamennirnir voru
sendir af staö eftir svo skamma
skotþjálfun,að það væri hrein til-
viljun,ef þeir hittu þá manneskju,
sem þeir miðuðu á, í bil á ferð.
Það var ekki séð fyrir sú tilviljun,
sem réði þvi, að bíllinn stansaði
fyrir framan Princip. Einnig
verður það að teljast furðulegt,að
eitur það, sem Princip og
Chabrinovitsj tóku inn, verkaði
næstum ekkert, þrátt fyrir þá
staðreynd að Svarta höndin hafði
töluverða æfingu i meðferð eiturs.
Það þýðir það,að höfuðpaurarnir
,,æsktu þess" að þessir ungu
menn væru handteknir á lifi, sem
auðvitað auðveldaði allar upp-
ljóstranir.
Það tók aðeins nokkra daga
fyrir austurriska undirréttinn að
komast að þvi, að rætur morðtil-
ræðisins var að finna i Belgrad.
Mánuði eftir tilræðið gerði
Austurriki Serbum úrslitakosti,
sem kom skriðunni af stað.
Striðinu sem þá hófst, lauk ná
kvæmlega fimm árum siðar þann
28. júni. 1919 með undirritun
Versa1asamningsins. 10
miljónum manna var fórnað.
Hvorki Princip né Chabrinovitsj
lifðu það af að sjá fyrir endann á
striði þvi,sem þeir höfðu tendrað
árið 1914. Vegna þeirra unga
aldurs sluppu þeir með 20 ára
fangelsisvist, en báðir létust eftir
tveggja ára innisetu.
(Þýtt af kr-)
Fj
i f
Samtima málverk ( ekki allt of nákvæmt) af augnablikinu, þegar Princip hleypti af voöaskotinu og
myrti Franz Ferdinand erkihertoga (I aftursætinu).
9 >2
/• Wiy W
*. 'Æ .*/».............ý
g. ____
Aftasta blaðsiðan i fundargerðarbók Svörtu handarinnar, sem stóö aö
baki morðanna i Sarajevo. Sjötta undirskriftin er nafn Dimitrijevitsj
ofursta.
>að er skemmtilegt að búa
til Readicut teppi. Þó lítill tími
sé aflögu, jafnvel þó þér hafið
aldrei búið til teppi áður, verðið
þér undrandi hve fljótleg teppa-
gerðin er, og hvað hún vekur
mikla aðdáun.
Allir hafa ánægju af Readicut
teppagerð.
Hjón gera teppi saman,
einstaklingar sem föndur eða
fyrir framtíðarheimilið,
eftirlaunafólk sér til afþreyingar,
jafnvel unglingar. Readicut pakk-
inn veitir öllum gagn og gaman.
Það er mjög auðvelt að velja
eftir hinni ókeypis Readicut bók.
Hvert teppi er fullkomlega sýnt
í litum, og litavísirinn sýnir 52
litbrigði Readicut ullarinnar —
sjö þeirra eru nú sýnd í fyrsta
skipti — til hæfis litum heimilis-
ins. Pakkamir em í margvíslegum
stærðum og fimm gerðum. Verð
allra mynstra fara eftir stærðum
pakkanna. (Einlit teppi em
ódýmst). Við staðgreiðslu eða
lítils háttar innborgun getið
þér hafið þetta spennandi
tómstundagaman. Ef yður lízt ekki
á pakkann, endurgreiðum við
peninga yðar samkvæmt ábyrgð-
arskilmálum Readicut.
Sendið eftir Readicut. teppa-
bókinni nú þegar. Þér emð
ekki skuldbundin að kaupa neitt.
Gerið þetta teppi
ÓKEYPIS!
NY ULL
Reynið Readicut aðferðina
með sýnipakkanum sem fylgir
ókeypis öllum Reádicut pökkum
1 sýnipakkanum er efni í teppi,
35x50 cm, sem þér megið eiga,
þó að þér ákveðið að skila
Readicut pakkanum aftur.
Readícut
ATHUGIÐ — Readicut teppi fást ekki í
verzlunum, — aðeins beint frá okkur.
Fyllið strax út míðann og sendið í dag til:
Rcadicut Deninark, Holbergsgade 26, I
1057 Köbcnliavn K, Danmark. i
Nafn....................I
Heimilisfang.
Sendið strax eftir ókeypis eintaki af
Readicut teppabókinni. í bókinni eru 52
skýringamyndir í litum af teppum, sem þér
getið búið til. Þeirra á meðal eru nýtízkuleg
Skandinavisk mynstur hönnuð fyrir Readicut
af færustu, yngri hönnuðum Sviþjóðar.
Þér fáið einnig leiðarvísi um liti, sem sýnir
52 falleg litbrigði Readicut ullarinnar, svo að þér
getið valið liti með hliðsjón af litum heimilis
yðar. Allt yður að kostnaðarlausu. Skrifið strax.
Upplagið er takmarkað.
ókeypis:
24 siðna litprentuð
bók sem sýnir yður
hvernig hœgt er að
gera faliegt teppi i
tómstundum