Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 36
Undirstrika sjálfstæðið Þótt mikil hækkun stýrivaxta Seðlabankans hafi komið mörgum á óvart í fyrradag telja margir að skilaboðin hafi verið góð. Greiningardeild KB banka segir að með þessari kröftugu hækkun hafi bankinn undirstrikað sjálfstæði sitt í ákvarðanatöku en einnig vekur athygli hversu harkalega Seðla- bankinn hefur gagnrýnt ríkisfjármálin að undan- förnu. Þetta er talið vera til marks um að Seðla- bankinn sé nú orðinn mjög sjálfstæður gagnvart stjórnvöld- um en slíkt fyrirkomulag er jafn- an talið miklum mun heppi- legra heldur en kerfi þar sem pólitísk stjórnvöld taka ákvarð- anir um peningamálin. Þykir Birgir Ísleifur Gunnarsson, for- maður bankastjórnar, hafa varið sjálfstæði bankans mjög vel og hann nýtur trausts starfsmanna bankans jafnvel þótt hann hafi upp- runalega komið úr pólitíkinni í starfið. Nýr sparisjóðaslagur að hefjast Í gær var rifist um sparisjóðina á Alþingi og rétt eins og síðast voru stór orð viðhöfð. Talað var um „græðgisvæðingu“ í tengslum við viðskipti með stofnfé í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis en um helmingur stofnfjár hefur nú skipt um hendur og hafa eigendur fengið fimm til sjöfalt nafngengi bréfanna. Komið hefur fram að KB banki og tengd fyrirtæki séu afkastamikil í uppkaupum stofnfjár og velta menn nú fyrir sér hvernig kaupendur ætli að gera sér mat úr fjárfestingunni. Bent hefur verið á innlausn varasjóða í formi arðgreiðslna en líklegra er talið að SPRON einfaldlega gefi út meira stofnfé. Við það fengju núverandi stofnfjáreigendur greidd- an hærri arð - og lögum samkvæmt má Sparisjóð- urinn ekki selja nýtt stofnfé á hærra gengi en einn. Þannig geta núverandi eigendur stofnfjár fengið nýtt stofnfé á miklum afsláttarkjörum. ■ MESTA HÆKKUN ICEX-15 3.434* KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 252 Velta: 4.663 milljónir -1,43% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... Íslandsbanki hefur eignast 5,16 prósent í hugbúnaðarfyrir- tækinu Kögun. Tilkynnt var um þetta í Kauphöllinni í gær. KB banki hefur gert samning við SÍF um svokallaða viðskipta- vakt á útgefnu hlutafé. Samningn- um er ætlað að glæða viðskipti með bréf í félaginu og stuðla að eðlilegri verðmyndun. Ráðgjafafyrirtækin IMG og KMPG ráðgjöf hafa verið sam- einuð. Fyrir skemmstu skildi KPMG ráðgjöf sig frá móðurfé- laginu. Financial News hefur valið Carnegie bankann besta bank- ann á sviði fyrirtækjaráðgjafar á Norðurlöndum. Burðarás er stærsti hluthafinn í Carnegie. 36 4. desember 2004 LAUGARDAGUR Samtök iðnaðarins rekja í pistli á vef sínum raunir fyrirtækis sem margsinnis varð fyrir því að tapa tekjum vegna gjaldþrota við- skiptavina sinna. Vakin er athygli á því í pistlinum að mörg fyrir- tækjanna hafi samt sem áður haldið áfram störfum undir svip- uðu nafni, með sömu stjórn og sömu símanúmer þrátt fyrir gjaldþrotið. Vandinn sem „kennitöluhopp- arar“ valda viðskiptavinum sínum er mikill. Rekstrarvanda þeirra er í raun varpað yfir á viðskiptavin- ina, sem hvergi geta leitað sér skjóls. Þeir sem valda skaðanum halda áfram rekstri á nýrri kenni- tölu og bera því ekki fjárhagsleg- an skaða af ógöngunum. Jón Steindór Valdimarsson, að- stoðarframkvæmdastjóri Sam- taka iðnaðarins, segir að hér sé að nokkru leyti við viðskiptalífið sjálft að sakast þar sem menn eigi ítrekað viðskipti við aðila sem orðið hafi uppvísir að kennitölu- flakki og skilið eftir skuldir. Hið sama á við um hið opinbera og þekkjast dæmi þess að fyrirtæki með vafasama sögu hafi fengið út- hlutað verkefnum hjá ríkinu. „Það er ótrúlega algengt að menn geti skilið eftir sig sviðna jörð en haldi áfram viðskiptum og okkur hefur þótt þetta frekar vera að færast í aukana en hitt,“ segir Jón Steindór. Hann segir jafnvel brögð að því að menn hreinlega geri út á kennitöluflakk. Til dæm- is sé það auðveldara fyrir vinnu- veitenda að halda áfram vonlaus- um rekstri vitandi það að starf- mennirnir muni fá greidd laun úr Ábyrgðarsjóði launa. „Það eru ansi margir sem virð- ast vera alveg ótrúlega óheppnir í viðskiptum. Menn sem koma jafn- vel að tugum gjaldþrota. Það fæst ekkert upp í kröfur, ábyrgðarsjóð- ur borgar launin en peningarnir fara eitthvert,“ segir Jón Stein- dór. Hann segir mjög mikilvægt að stemma stigu við þessari þró- un. Hann segir að tjónið sem kennitöluflakkarar valdi felist einnig í því að fyrirtæki þeirra fari geyst af stað með undirboð- um á markaði þannig að fyrirtæki í traustari rekstri geti ekki staðist samkeppnina. Mikilvægt er þó að fara ekki of geyst í að herða reglur um gjaldþrot. „Það eru tvær hliðar á þessum peningi. Við viljum ekki að menn komist upp með að valda svona tjóni og snúa sér í hring og halda áfram. Á hinn bóginn verðum við að passa okk- ur á því að búa ekki þannig um hnútanna að fólk þori ekki í at- vinnurekstur af ótta við gjald- þrot,“ segir Jón Steindór. thkjart@frettabladid.is vidskipti@frettabladid.is Peningaskápurinn… Actavis 41,40 +0,24% ... Bakkavör 24,70 -0,40% ... Burðarás 12,25 -2,00% ... Atorka 5,71 +1,06% ... HB Grandi 7,90 - ... Íslandsbanki 11,30 -2,59% ... KB banki 450,00 -1,32% ... Landsbankinn 12,20 -2,01% ... Marel 54,70 +0,18% ... Medcare 6,03 -0,99% ... Og fjarskipti 3,10 -2,52% ... Opin kerfi 27,50 - ... Samherji 12,10 -2,42% ... Straumur 9,65 -0,52% ... Össur 85,50 -2,29% *Tölur frá kl. 15.00 í gær. Nýjustu tölur á visir.is Kennitöluhopp verður sífellt algengara Samtök iðnaðarins telja óvandaða viðskiptahætti kennitöluflakkara fara vaxandi. Menn halda áfram vonlausum rekstri vitandi að laun starfsmanna fást greidd úr Ábyrgðarsjóði launa. Þetta veldur viðskiptavinum og samkeppnisaðilum miklum skaða. Atorka 1,06% Hlutabr.sj. Búnaðarb. 0,96% SÍF 0,82% Fiskimarkaður Ísl. -8,33% Íslandsbanki -2,59% Og fjarskipti -2,52% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: nánar á visir.is Stjórn norska BN bankans, sem Íslandsbanki stefnir að því að kaupa, hefur lýst því yfir að hún styðji nýtt tilboð Íslandsbanka til hluthafa og mælir með því að til- boðinu verði tekið. Þá kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka að Skagens Vekst, sem á 5,6 prósent hlutafjár, hafi einnig lýst ánægju með nýtt tilboð. Þar með hefur Íslands- banki tryggt sér stuðning eigenda um tvo þriðju hlutafjár. Að sögn Bjarna Ármannssonar, forstjóra Íslandsbanka, stendur yfirtökutilboðið til 17. desember og er markmið Íslandsbanka að hafa þá náð 90 prósentum hluta- fjár í BN bankanum. Þá getur Ís- landsbanki krafist innlausnar þeirra hluta sem eftir standa í bankanum og eignast fyrirtækið að fullu. „Það er afskaplega ánægjulegt að stjórnin mæli með þessu á þennan hátt sem hún gerir í dag,“ segir Bjarni. Í tilkynningunni frá stjórn bankans er þess meðal annars get- ið að starfsmenn fyrirtækisins séu sáttir við hið nýja eignarhald. „Ég hef átt fundi með fulltruum starfsmanna þar sem við höfum farið yfir okkar áætlanir og áform og þeir hafa verið sáttir við það sem við höfum fram að færa,“ segir Bjarni Ármannsson. - þk Í Peningaskápnum í gær var sagt að Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði væri titl- aður markaðsstjóri. Þetta mun ekki eiga sér stoð. Hallur er sviðsstjóri þróunar og almannatengsla. ■ JÓN STEINDÓR VALDIMARSSON AÐSTOÐARFRAMKVÆMDASTJÓRI SAMTAKA IÐNAÐARINS Hann segir það færast í vöxt að einstaklingar skilji eftir sig sviðna jörð í viðskiptum en haldi rekstrinum áfram undir nýrri kennitölu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R BN banki nánast kominn í höfn BJARNI ÁRMANSSON Forstjóri Íslandsbanka gleðst yfir því að stjórn BN bankans í Nor- egi styðji yfirtökutilboð Íslandsbanka. Stjórn BN bankans styður nú tilboð Íslandsbanka. Starfsmenn eru sáttir við fyrirhugaða breytingu á eignarhaldi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I LEIÐRÉTTING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.