Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 16
16 4. desember 2004 LAUGARDAGUR
Ég elska þig svo mikið að éggæti næstum dáið. Þessisetning hefur öðlast eilíft
líf. Ástarjátningin er heitari og
innilegri en flestar aðrar sem
sungnar hafa verið. Árið sem lag-
ið Endurfundir kom út í flutningi
Upplyftingar var það ávallt
síðasta lagið sem leikið var á
böllum. Við það vönguðu elskend-
ur og rauluðu textann í hálfum
hljóðum í eyru hvor annars.
Gengu svo saman út í nóttina,
enn með lagið á vörunum.
Löngu eftir að það kom út var
það enn mest umbeðna óskalagið
í Ríkisútvarpinu. Og á þeim bæn-
um var ekkert lag leikið eins oft
og Endurfundir árið 1981.
Höfundurinn er Sigfús E. Arn-
þórsson, Þingeyingur sem nú býr
í Lundúnum og selur þar píanó og
flygla við góðan orðstír. Hann
rifjar upp síðvetrardaginn af-
drifaríka þegar lagið varð til.
„Þetta var eft-
ir hádegi á
laugardegi í
febrúar eða
mars. Ég bjó í
kjallaraher-
bergi í Furu-
grundinni í
Kópavogi og
átti í eldheitu
en storma-
sömu ástar-
sambandi við
á h u g a -
leikkonu und-
an Eyjafjöll-
um. Í her-
berginu var
t v í b r e i ð u r
sófi, borð og
píanó. Allt
og sumt sem
svona par
þarf. Einnig
Nordmende segulband, Yamaha
kassagítar sem ég hafði keypt í
Kanada og ekta „steel-drum“ sem
ég hafði vélað útúr innfæddum á
Trinidad. Pianóið var gamalt
danskt Hornung & Møller sem
hefur gengið milli manna í fjöl-
skyldu minni um áratuga skeið.
Upprunalega keypt af norskum
hvalföngurum á Seyðisfirði.
Leikkonan unga lagði svo til
svona „girly stuff“, púða, kerta-
ljós, reykelsi og þess háttar.
Svona eftir á að hyggja er þetta
sennilega eins nálægt himnaríki
á jörð og hægt er að komast. Svo
við getum þá sagt að lagið sé
samið í paradís.“
Hann rifjar líka upp að
skjannahvít snjóbreiða var yfir
Fossvoginum og Upplyfting með
ball í Klúbbnum um kvöldið.
„Þeir voru orðnir örvæntingar-
fullir, höfðu slegið í gegn með
Traustum vini og þurftu að fylgja
laginu eftir með annarri plötu.
Þeir báðu mig um lag en leist
ekkert á Dylanísku rokklögin
sem ég hafði sent þeim. Spurðu
hvort ég gæti ekki samið eitthvað
gagnfræðaskólalegt.“
Varð til á tuttugu mínútum
Sigfús var til í að skoða málið og
lét hugann reika aftur til
gaggóáranna. Hann staðnæmdist
við lagið Without you með Harry
Nilsson en það var upprunalega
með Badfinger. „Ég get upplýst
það núna að Endurfundir er bein
tilvísun í það lag. Og ég er enn
undrandi á að í allri umræðunni
sem Endurfundir ollu kveikti
enginn á því. „I can't live, if liv-
ing is without you“, er auðvitað
Ég elska þig svo mikið að ég gæti
næstum dáið. Og úr laglínunni og
hljómaganginum í „but I guess
that's just the way the story
goes“ er auðvelt að beygja inn í
Endurfundi á tveim stöðum, bæði
inn í „en ég get ei lengur þagað...“
og „því ég elska þig svo mik-
ið...“.“
Sigfús neitar því hins vegar al-
farið að lagið sé þá í raun stolið,
segir tilvísanir í tónlistinni al-
gengar. „Þetta er aðdáun í formi
tilvísunar. Við stöndum öll á ann-
arra öxlum.“
Hann man enn þegar lagið
varð til. Eins og gerst hafi í gær.
„Ég færði mig frá píanóinu til að
skrifa niður textann. Það lá á að
festa þetta á blað því annars yrði
allt glatað. Ég skrifaði eins hratt
og ég gat. Fyrsta vísan, viðlagið
og tvær línur í vísu númer tvö
komu auðveldlega. Næstu línur
urðu svo til í stúdíóinu og eru
annað hvort eftir einhvern í
hljómsveitinni eða Jóhann G.
Jóhannsson upptökustjóra. Ég
færði mig svo yfir að píanóinu,
kveikti á segulbandinu og söng
og spilaði lagið inn. Allt í allt tók
þetta svona tuttugu mínútur. Um
kvöldið lét ég svo Upplyftingu
hafa lagið, baksviðs í pásu, á
fjórðu hæð Klúbbsins við Borg-
artún.“
Lagið var enn nafnlaust á
þessum tíma. Síðar var afráðið að
nefna það Endurfundi og stafar
það af því að fyrsta plata Upp-
lyftingar hét Kveðju-
stund. „Það var þegar
ákveðið að önnur plat-
an héti Endurfundir og
er lagið því skírt eftir
plötunni. Og þar sem
fyrsta setning lagsins
er „Ég hef saknað þín
svo mikið, síðan síðast
er ég sá þig“, má segja
að það sé ásættanlegt.“
Listaspíraðist með
áhugaleikkonunni
Þrátt fyrir að vera
hreinræktaður Suður-
Þingeyingur telur Sig-
fús sig til Akureyr-
inga. Þar bjó hann
lengi og finnst Akur-
eyri vera flottasti bær
í heimi og hefur nú
víða komið. Segir hann
það mat sitt frekar
byggt á tilfinningum
en vitsmunum.
Þrátt fyrir að muna enn vel
daginn sem hann samdi Endur-
fundi man hann minna eftir störf-
um sínum á þeim tíma. „Það vita
sjálfsagt allir sem hafa búið með
dramatískum áhugaleikkonum á
vissum aldri, að það verður ekki
fengist við mikið annað á meðan.
Ég gæti hafa verið í hlutastarfi
á sjúkrahúsi. Og svo hef ég sjálf-
sagt verið í einhverri árshá-
tíða og þorrablótahljómsveit. Og
kannski spilaði ég dinnermúsík á
einhverju hótelanna eða matsölu-
staðnum. En aðallega var ég að
listaspírast eitthvað með leik-
konunni. Í Klúbbnum og á Hótel
Borg og Óðali, minnir mig.“
Sigfús hefur alla sína tíð
tengst tónlist með einum eða öðr-
um hætti og ein hans fyrsta
minning nær til barnæskunnar
þegar hann spilaði Schubert með
bundið fyrir augun. Síðar nam
hann klassískan píanóleik og tón-
listarsögu við Tónlistarskólann á
Akureyri en hallaði sér snemma
að popptónlist og lék með hljóm-
sveitum í mörg ár. „Árið 1990 fór
ég svo að mjaka mér ofan af
sviðinu og stillti mér upp bakvið
búðarborð, fyrst sem deildar-
stjóri Hljómdeildar KEA á Akur-
eyri og síðar í eigin geisladiska-
búð, Melódíu, í sama bæ. Á þess-
um árum sá ég einnig um út-
varpsþætti á Hljóðbylgjunni og
skrifaði reglulega um stjörnu-
speki í Dag. Einnig stýrði ég úti-
hátíðum og stóð fyrir tónleika-
ferðum erlendra listamanna um
Ísland.“
Árið 1996 gerðist Sigfús dag-
skrárgerðarmaður við Dægur-
málaútvarp Rásar 2 og eflaust
muna einhverjir eftir honum það-
an. Þegar þeirri vist lauk fluttist
hann til Lundúna þar sem hann
hefur fengist við ýmislegt, meðal
annars hljóðræna upplýsinga-
miðlun, markaðsrannsóknir og
símsölu. Undanfarið ár hefur
hann svo annast innkaup og sölu
á Yamaha flyglum og píanóum í
tónlistarversluninni Chappell of
Bond Street sem er stórmarkað-
ur á sínu sviði og hefur verið til í
tæp tvö hundruð ár.
Yfirþyrmandi vinsældir
Sigfús E. Arnþórsson unir hag sín-
um vel ytra. Hann segir að um
leið og Lundúnir hafi marga galla
sé hún ómótstæðileg á sinn hátt.
„Ekki síst á þessum árstíma, upp-
ljómuð í jólaljósum. Svo
eru Lundúnarbúar kurt-
eisir í umferðinni, líkt
og Akureyringar. Ég bý í
Chelsea, rétt við lestar-
stöðina South Kens-
ington, uppi á áttundu
hæð með útsýni yfir
vesturborgina og hef
ekki yfir neinu að
kvarta.“
Hann spilar ekki
mikið á hljóðfæri þessi
dægrin, slær þó nótu og
nótu enda innan um há-
gæðaflygla daginn út og
inn. Endurfundir óma
sjaldan um verslunina í
húsi númer 50 við New
Bond Street í heims-
borginni en þetta 23 ára
gamla lag sem var samið
í Furugrundinni í Kópa-
vogi hefur læst sig á ný í
hjörtu ungra Íslendinga.
Og höfundurinn á aðeins
eitt orð til að lýsa vinsældunum í
den. „Yfirþyrmandi. Já, Endur-
fundir var yfirþyrmandi vinsælt
lag. „Setningin „Ég elska þig svo
mikið...“ fékk alls kyns endingar
og var notuð alls staðar í daglegu
tali. Ég man líka að Leikfélag
Reykjavíkur var með fjáröflunar-
samkomur í Austurbæjarbíói þar
sem leikararnir lásu textann upp
sem gullaldarljóð og uppskáru
mikinn hlátur. Textinn hefur líka
komið fram í öðrum textum,
fyrsta setningin í tónverkinu Með
allt á hreinu með Stuðmönnum,
„Ég er dáinn úr ást, þó hjartað
dæli blóði“, er greinilega skrifuð
til að toppa Endurfundi.
Og þetta lag hefur náttúrulega
verið sungið við brúðkaup um allt
land fram á þennan dag. Fullt af
fólki hefur komið til mín í gegnum
árin og þakkað mér fyrir að End-
urfundir hafi bjargað hjónabandi
þess. Jafnvel lífi. Maður fer auð-
vitað hjá sér.“ bjorn@frettabladid.is
ENDURFUNDIR
Ég hef saknað þín svo mikið frá því síðast er ég sá þig
og ég þorði ekki að segja hvað bjó í hjarta mér
en ég get ei lengur þagað er ég horfi svona á þig
því loksins hef ég skilið hvað ástarsæla er
því í hvert sinn er ég sé þig er eins og birti yfir öllu
það sem áður var svo venjulegt það breytir allt um svip
gráir hversdagslegir dagar sem mig áður kvöldu af leiða
þeir fyllast nýjum ljóma í sérhvert sinn er ég sé þig
Ó, vertu alltaf hjá mér þú mátt aldrei fara frá mér
ég skal vera þér eins góður og ég mögulega get
því ég elska þig svo mikið
að ég gæti næstum dáið
fyrir aðeins þessa einu nótt í faðmi þér
Í hvert sinn er ég sé þig er eins og birti yfir öllu
það sem áður var svo venjulegt það breytir allt um svip
gráir hversdagslegir dagar sem mig áður kvöldu af leiða
þeir fyllast nýjum ljóma í sérhvert sinn er ég sé þig
Endurfundir hafa bjargað
hjónaböndum og mannslífum
Endurfundir með Upplyftingu var geysilega vinsælt árið 1981 og stefnir í að verða vinsælt á ný, nú í flutn-
ingi Í svörtum fötum. Sigfús E. Arnþórsson, samdi lagið í kjallaraherbergi í Kópavogi þegar hann átti í eld-
heitu en stormasömu ástarsambandi við áhugaleikkonu undan Eyjafjöllum.
ÉG ELSKA ÞIG SVO MIKIÐ AÐ ÉG GÆTI NÆSTUM DÁIÐ Án efa ein innilegasta ástarjátning íslenskrar poppsögu. Einhver sagði
Endurfundi lengstu pikköpplínu sögunnar.
SIGFÚS E. ARN-
ÞÓRSSON
Höfundur lagsins
Endurfunda viður-
kennir að það er
bein tilvísun í Wit-
hout you með Bad-
finger. Neitar hins
vegar alfarið að um
þjófnað sé að ræða.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/E.Ó
L