Fréttablaðið - 04.12.2004, Page 16

Fréttablaðið - 04.12.2004, Page 16
16 4. desember 2004 LAUGARDAGUR Ég elska þig svo mikið að éggæti næstum dáið. Þessisetning hefur öðlast eilíft líf. Ástarjátningin er heitari og innilegri en flestar aðrar sem sungnar hafa verið. Árið sem lag- ið Endurfundir kom út í flutningi Upplyftingar var það ávallt síðasta lagið sem leikið var á böllum. Við það vönguðu elskend- ur og rauluðu textann í hálfum hljóðum í eyru hvor annars. Gengu svo saman út í nóttina, enn með lagið á vörunum. Löngu eftir að það kom út var það enn mest umbeðna óskalagið í Ríkisútvarpinu. Og á þeim bæn- um var ekkert lag leikið eins oft og Endurfundir árið 1981. Höfundurinn er Sigfús E. Arn- þórsson, Þingeyingur sem nú býr í Lundúnum og selur þar píanó og flygla við góðan orðstír. Hann rifjar upp síðvetrardaginn af- drifaríka þegar lagið varð til. „Þetta var eft- ir hádegi á laugardegi í febrúar eða mars. Ég bjó í kjallaraher- bergi í Furu- grundinni í Kópavogi og átti í eldheitu en storma- sömu ástar- sambandi við á h u g a - leikkonu und- an Eyjafjöll- um. Í her- berginu var t v í b r e i ð u r sófi, borð og píanó. Allt og sumt sem svona par þarf. Einnig Nordmende segulband, Yamaha kassagítar sem ég hafði keypt í Kanada og ekta „steel-drum“ sem ég hafði vélað útúr innfæddum á Trinidad. Pianóið var gamalt danskt Hornung & Møller sem hefur gengið milli manna í fjöl- skyldu minni um áratuga skeið. Upprunalega keypt af norskum hvalföngurum á Seyðisfirði. Leikkonan unga lagði svo til svona „girly stuff“, púða, kerta- ljós, reykelsi og þess háttar. Svona eftir á að hyggja er þetta sennilega eins nálægt himnaríki á jörð og hægt er að komast. Svo við getum þá sagt að lagið sé samið í paradís.“ Hann rifjar líka upp að skjannahvít snjóbreiða var yfir Fossvoginum og Upplyfting með ball í Klúbbnum um kvöldið. „Þeir voru orðnir örvæntingar- fullir, höfðu slegið í gegn með Traustum vini og þurftu að fylgja laginu eftir með annarri plötu. Þeir báðu mig um lag en leist ekkert á Dylanísku rokklögin sem ég hafði sent þeim. Spurðu hvort ég gæti ekki samið eitthvað gagnfræðaskólalegt.“ Varð til á tuttugu mínútum Sigfús var til í að skoða málið og lét hugann reika aftur til gaggóáranna. Hann staðnæmdist við lagið Without you með Harry Nilsson en það var upprunalega með Badfinger. „Ég get upplýst það núna að Endurfundir er bein tilvísun í það lag. Og ég er enn undrandi á að í allri umræðunni sem Endurfundir ollu kveikti enginn á því. „I can't live, if liv- ing is without you“, er auðvitað Ég elska þig svo mikið að ég gæti næstum dáið. Og úr laglínunni og hljómaganginum í „but I guess that's just the way the story goes“ er auðvelt að beygja inn í Endurfundi á tveim stöðum, bæði inn í „en ég get ei lengur þagað...“ og „því ég elska þig svo mik- ið...“.“ Sigfús neitar því hins vegar al- farið að lagið sé þá í raun stolið, segir tilvísanir í tónlistinni al- gengar. „Þetta er aðdáun í formi tilvísunar. Við stöndum öll á ann- arra öxlum.“ Hann man enn þegar lagið varð til. Eins og gerst hafi í gær. „Ég færði mig frá píanóinu til að skrifa niður textann. Það lá á að festa þetta á blað því annars yrði allt glatað. Ég skrifaði eins hratt og ég gat. Fyrsta vísan, viðlagið og tvær línur í vísu númer tvö komu auðveldlega. Næstu línur urðu svo til í stúdíóinu og eru annað hvort eftir einhvern í hljómsveitinni eða Jóhann G. Jóhannsson upptökustjóra. Ég færði mig svo yfir að píanóinu, kveikti á segulbandinu og söng og spilaði lagið inn. Allt í allt tók þetta svona tuttugu mínútur. Um kvöldið lét ég svo Upplyftingu hafa lagið, baksviðs í pásu, á fjórðu hæð Klúbbsins við Borg- artún.“ Lagið var enn nafnlaust á þessum tíma. Síðar var afráðið að nefna það Endurfundi og stafar það af því að fyrsta plata Upp- lyftingar hét Kveðju- stund. „Það var þegar ákveðið að önnur plat- an héti Endurfundir og er lagið því skírt eftir plötunni. Og þar sem fyrsta setning lagsins er „Ég hef saknað þín svo mikið, síðan síðast er ég sá þig“, má segja að það sé ásættanlegt.“ Listaspíraðist með áhugaleikkonunni Þrátt fyrir að vera hreinræktaður Suður- Þingeyingur telur Sig- fús sig til Akureyr- inga. Þar bjó hann lengi og finnst Akur- eyri vera flottasti bær í heimi og hefur nú víða komið. Segir hann það mat sitt frekar byggt á tilfinningum en vitsmunum. Þrátt fyrir að muna enn vel daginn sem hann samdi Endur- fundi man hann minna eftir störf- um sínum á þeim tíma. „Það vita sjálfsagt allir sem hafa búið með dramatískum áhugaleikkonum á vissum aldri, að það verður ekki fengist við mikið annað á meðan. Ég gæti hafa verið í hlutastarfi á sjúkrahúsi. Og svo hef ég sjálf- sagt verið í einhverri árshá- tíða og þorrablótahljómsveit. Og kannski spilaði ég dinnermúsík á einhverju hótelanna eða matsölu- staðnum. En aðallega var ég að listaspírast eitthvað með leik- konunni. Í Klúbbnum og á Hótel Borg og Óðali, minnir mig.“ Sigfús hefur alla sína tíð tengst tónlist með einum eða öðr- um hætti og ein hans fyrsta minning nær til barnæskunnar þegar hann spilaði Schubert með bundið fyrir augun. Síðar nam hann klassískan píanóleik og tón- listarsögu við Tónlistarskólann á Akureyri en hallaði sér snemma að popptónlist og lék með hljóm- sveitum í mörg ár. „Árið 1990 fór ég svo að mjaka mér ofan af sviðinu og stillti mér upp bakvið búðarborð, fyrst sem deildar- stjóri Hljómdeildar KEA á Akur- eyri og síðar í eigin geisladiska- búð, Melódíu, í sama bæ. Á þess- um árum sá ég einnig um út- varpsþætti á Hljóðbylgjunni og skrifaði reglulega um stjörnu- speki í Dag. Einnig stýrði ég úti- hátíðum og stóð fyrir tónleika- ferðum erlendra listamanna um Ísland.“ Árið 1996 gerðist Sigfús dag- skrárgerðarmaður við Dægur- málaútvarp Rásar 2 og eflaust muna einhverjir eftir honum það- an. Þegar þeirri vist lauk fluttist hann til Lundúna þar sem hann hefur fengist við ýmislegt, meðal annars hljóðræna upplýsinga- miðlun, markaðsrannsóknir og símsölu. Undanfarið ár hefur hann svo annast innkaup og sölu á Yamaha flyglum og píanóum í tónlistarversluninni Chappell of Bond Street sem er stórmarkað- ur á sínu sviði og hefur verið til í tæp tvö hundruð ár. Yfirþyrmandi vinsældir Sigfús E. Arnþórsson unir hag sín- um vel ytra. Hann segir að um leið og Lundúnir hafi marga galla sé hún ómótstæðileg á sinn hátt. „Ekki síst á þessum árstíma, upp- ljómuð í jólaljósum. Svo eru Lundúnarbúar kurt- eisir í umferðinni, líkt og Akureyringar. Ég bý í Chelsea, rétt við lestar- stöðina South Kens- ington, uppi á áttundu hæð með útsýni yfir vesturborgina og hef ekki yfir neinu að kvarta.“ Hann spilar ekki mikið á hljóðfæri þessi dægrin, slær þó nótu og nótu enda innan um há- gæðaflygla daginn út og inn. Endurfundir óma sjaldan um verslunina í húsi númer 50 við New Bond Street í heims- borginni en þetta 23 ára gamla lag sem var samið í Furugrundinni í Kópa- vogi hefur læst sig á ný í hjörtu ungra Íslendinga. Og höfundurinn á aðeins eitt orð til að lýsa vinsældunum í den. „Yfirþyrmandi. Já, Endur- fundir var yfirþyrmandi vinsælt lag. „Setningin „Ég elska þig svo mikið...“ fékk alls kyns endingar og var notuð alls staðar í daglegu tali. Ég man líka að Leikfélag Reykjavíkur var með fjáröflunar- samkomur í Austurbæjarbíói þar sem leikararnir lásu textann upp sem gullaldarljóð og uppskáru mikinn hlátur. Textinn hefur líka komið fram í öðrum textum, fyrsta setningin í tónverkinu Með allt á hreinu með Stuðmönnum, „Ég er dáinn úr ást, þó hjartað dæli blóði“, er greinilega skrifuð til að toppa Endurfundi. Og þetta lag hefur náttúrulega verið sungið við brúðkaup um allt land fram á þennan dag. Fullt af fólki hefur komið til mín í gegnum árin og þakkað mér fyrir að End- urfundir hafi bjargað hjónabandi þess. Jafnvel lífi. Maður fer auð- vitað hjá sér.“ bjorn@frettabladid.is ENDURFUNDIR Ég hef saknað þín svo mikið frá því síðast er ég sá þig og ég þorði ekki að segja hvað bjó í hjarta mér en ég get ei lengur þagað er ég horfi svona á þig því loksins hef ég skilið hvað ástarsæla er því í hvert sinn er ég sé þig er eins og birti yfir öllu það sem áður var svo venjulegt það breytir allt um svip gráir hversdagslegir dagar sem mig áður kvöldu af leiða þeir fyllast nýjum ljóma í sérhvert sinn er ég sé þig Ó, vertu alltaf hjá mér þú mátt aldrei fara frá mér ég skal vera þér eins góður og ég mögulega get því ég elska þig svo mikið að ég gæti næstum dáið fyrir aðeins þessa einu nótt í faðmi þér Í hvert sinn er ég sé þig er eins og birti yfir öllu það sem áður var svo venjulegt það breytir allt um svip gráir hversdagslegir dagar sem mig áður kvöldu af leiða þeir fyllast nýjum ljóma í sérhvert sinn er ég sé þig Endurfundir hafa bjargað hjónaböndum og mannslífum Endurfundir með Upplyftingu var geysilega vinsælt árið 1981 og stefnir í að verða vinsælt á ný, nú í flutn- ingi Í svörtum fötum. Sigfús E. Arnþórsson, samdi lagið í kjallaraherbergi í Kópavogi þegar hann átti í eld- heitu en stormasömu ástarsambandi við áhugaleikkonu undan Eyjafjöllum. ÉG ELSKA ÞIG SVO MIKIÐ AÐ ÉG GÆTI NÆSTUM DÁIÐ Án efa ein innilegasta ástarjátning íslenskrar poppsögu. Einhver sagði Endurfundi lengstu pikköpplínu sögunnar. SIGFÚS E. ARN- ÞÓRSSON Höfundur lagsins Endurfunda viður- kennir að það er bein tilvísun í Wit- hout you með Bad- finger. Neitar hins vegar alfarið að um þjófnað sé að ræða. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. FRÉTTAB LAÐ IÐ /E.Ó L
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.