Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 38
38 4. desember 2004 LAUGARDAGUR
FRANCISCO FRANCO,
EINRÆÐISHERRA SPÁNAR,
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1892.
Hann gerði Spán að konungsríki 1947 en
kallaði ekki til kóng í ríkið fyrr en 1969.
Gönguferðir í stað fótbolta
PÁLL GUÐMUNDSSON: LAGÐI SKÓLANN Á HILLUNA
“Ég ber bara ábyrgð gagnvart
guði og sögunni.“
Þetta er eina tilsvar hans sem sagan hefur geymt.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Ásgerður Ester Búadóttir myndlistar-
maður er 84 ára.
Kristín Þorkelsdóttir teiknari er 68 ára.
Stefán Hirst lögfræðingur er sjötugur.
Gunnlaugur Ingólfsson málfræðingur
er sextugur í dag.
Sigrún Sólmundardóttir, Belgsholti,
Melasveit, er fimmtug í dag. Af því tilefni
tekur hún og fjölskylda hennar á móti
gestum í félagsheimilinu Heiðarborg,
Leirársveit, eftir kl. 20 í kvöld.
Daníel Jónsson, fyrrverandi bóndi á
Dröngum, varð sjötugur 2. desember.
ANDLÁT
Sveinn Ólafur Tryggvason, Álfhólsvegi
53, lést miðvikudaginn 1. desember.
Guðsteinn Þengilsson læknir, Grenimel
32, Reykjavík, lést miðvikudaginn 1. des-
ember.
Ágúst G. Breiðdal frá Krossi á Skarðs-
strönd, Sogavegi 118, Reykjavík, lést
miðvikudaginn 1. desember.
JARÐARFARIR
13.30 Haraldur Gestsson, Mánavegi 9,
Selfossi, verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju.
13.30 Kristjana Guðlaugsdóttir frá Sand-
brekku, Fáskrúðsfirði, verður jarð-
sungin frá Fáskrúðsfjarðarkirkju.
14.00 Ingibjörg Þórarinsdóttir, Víðihlíð,
Grindavík, verður jarðsungin frá
Grindavíkurkirkju.
14.00 Guðfinnur Grétar Aðalsteinsson,
Hlíðarvegi 6, Siglufirði, verður
jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju.
14.00 Ása Bergmundsdóttir, Vesturvegi
32, Vestmannaeyjum, verður jarð-
sungin frá Landakirkju.
14.00 Sigurður Magnússon frá Þórarins-
stöðum, Seyðisfirði, áður til heim-
ilis á Kirkjuvegi 57, Vestmannaeyj-
um, verður jarðsunginn frá Seyð-
isfjarðarkirkju.
Þennan dag árið 1954 var sænsk kvikmynd eftir
sögu Halldórs Laxness frumsýnd í Reykjavík. Leik-
stjóri var Arne Mattson. Íslenskir gagnrýnendur
tóku myndinni ekki sérstaklega vel, töldu hana of
sænska og sögðu að höfundur myndarinnar skildi
ekki ýmislegt í eðli sögunnar. Gagnrýnandi Al-
þýðublaðsins sagði t.a.m. að Svíarnir virtust leggja
megináherslu á tilfinningasemi og erótík en
minna færi fyrir gamanseminni. Salka Valka var
kvikmynduð í Grindavík en allir leikararnir voru
sænskir. Myndatakan, en tökumaður var Sven
Nykvist, þótti góð. Það voru í sjálfu sér tíðindi að
gerð skyldi kvikmynd eftir íslenskri sögu á Íslandi
en það höfðu útlendingar ekki gert síðan „Saga
Borgarættarinnar“ var kvikmynduð 1919. Það má
líka kallast merkileg tilviljun að frumdrög Sölku
Völku voru kvikmyndahandrit sem Halldór Lax-
ness samdi í Hollywood 1928 undir nafninu „A
Woman in Pants“ og reyndi að fá fyrirtækið MGM
til þess að kvikmynda. Ekkert varð úr því sem
kunnugt er. Halldór tók sjálfur kvikmyndinni
Sölku Völku ekki illa en sagði m.a.
um myndina: „Í henni er ef til vill
ýmislegt sem kann að koma Ís-
lendingi annarlega fyrir sjónir
en þess ber að gæta að hún
er umfram allt sænsk kvikmynd
og ég held ekki að sænsk kvik-
myndalist hafi áður komizt
hærra.“ Augljóst er að myndin
galt þess í hugum Íslendinga
að þeir báru hana saman
við söguna sem var og er
meðal vinsælustu
sagna Halldórs hér-
lendis.
HALLDÓR LAXNESS
Fyrsta kvikmyndin eftir sögu hans
var frumsýnd þennan dag 1954
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1918 Woodrow Wilson Banda-
ríkjaforseti fer til Evrópu til
friðarsamninga. Hugmynd-
um hans er fálega tekið af
öðrum leiðtogum sigur-
vegaranna.
1942 Kristnir menn í Póllandi
stofna samtök til bjargar
gyðingum. Talið er að nas-
istar hafi drepið 4,5 millj-
ónir gyðinga í Póllandi á
stríðsárunum.
1969 Lögregla í Chicago drepur
tvo félaga í „Svörtu hlé-
börðunum“. Tíu ár tók ætt-
ingja mannanna að ná rétti
sínum.
1971 Veitingahúsið Glaumbær í
Reykjavík brennur. Húsið
var síðar endurreist fyrir
Listasafn Íslands.
1981 Stytta af heilagri Barböru
afjhúpuð í Kapelluhrauni
við Straumsvík.
Salka Valka: Sænsk eða íslensk?
Ástkær fósturmóðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og frænka,
Ingibjörg J. Helgadóttir
frá Patreksfirði,
verður jarðsungin frá Garðakirkju, Álftanesi, mánudaginn
6. desember kl. 13.00.
Sigurður Steingrímsson, Gísli Steingrímsson, Ólöf L. Steingrímsdóttir,
Jón Steingrímsson, Kristinn J. Gíslason, Helga Pálsdóttir, Hrönn Páls-
dóttir, Helgi Pálsson og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi
Sveinn Ólafur Tryggvason
Álfhólsvegi 53,
Lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 1. desem-
ber. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðrún Jónsdóttir, Jón Kristinn Sveinsson, Elínborg Árnadóttir, Tryggvi
Gunnar Sveinsson, Anna Ragna Siggeirsdóttir, Rannveig Sveinsdóttir,
Lúðvík Berg Bárðarson, Helga Björg Sveinsdóttir, Bjarni Sigurðsson
og afabörn.
Ástkær eiginmaður minn, vinur og faðir,
Sveinbjörn Júlíusson
Reykjamörk 15, Hveragerði,
lést af slysförum sunnudaginn 28. nóvember.
Ólöf Ingibergsdóttir, Guðrún Sesselja Sveinbjörnsdóttir, Margrét Maris
Sveinbjörnsdóttir og Ívar Örn Sveinbjörnsson. Páll Guðmundsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Ferða-
félags Íslands. Páll starfaði áður
sem kynningarstjóri hjá Ung-
mennafélagi Íslands. Páll lauk
prófi frá Samvinnuskólanum á
Bifröst 1989 og íþróttakennara-
prófi frá Íþróttakennaraskóla Ís-
lands 1992. Páll hefur fengist við
ýmis störf, meðal annars íþrótta-
þjálfun, bankastörf og ritstörf, og
er ritstjóri Skinfaxa, tímarits
UMFÍ. Þá var hann íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi og ferðamála-
fulltrúi í Ólafsfirði á árunum
1998-2002. Páll lék knattspyrnu
með ÍBV, ÍA og Leiftri og einnig
sem atvinnumaður í Noregi og
Grikklandi. Ferðafélag Íslands
var stofnað 27. nóvember 1927 og
varð því 75 ára árið 2002. Félagið
er áhugamannafélag og tilgangur
þess er að stuðla að ferðalögum
um Ísland og greiða fyrir þeim.
Tímamót slógu á þráðinn til Páls
af þessu tilefni:
Ertu alveg hættur að spila fót-
bolta?
„Já, ég lagði skóna endanlega á
hilluna eftir bikarúrslitaleikinn
með ÍBV árið 2000.“
Stundarðu einhverjar íþróttir
nú?
„Já, ég stunda vinsælustu
íþrótt landsins, gönguferðir. Það
er auðvitað ekki vitað fyrir víst en
ég held að ekki séu margar
íþróttagreinar vinsælli.“
Hefurðu gengið eitthvað ný-
lega?
„Ég hef nú ekki gengið mikið
allra síðustu daga og vikur en ætli
ganga upp á Laugarvatnsfjall hafi
ekki verið sú síðasta. Ég á ættir að
rekja á Laugarvatn og hef mikil
tengsl við staðinn.“
Ferðafélagið gefur út ferða-
áætlun ár hvert þar sem kynntar
eru skipulagðar ferðir um Ísland á
vegum þess. Sæluhús Ferðafélags
Íslands og deildanna úti um land
eru þægilegir áningarstaðir á
ferðalögum um óbyggðirnar. Þau
eru á 34 stöðum víðs vegar um
land og allur almenningur getur
nýtt þau óháð aðild að Ferðafélag-
inu. Sæluhús eru nær öll opin allt
árið og í stærstu húsunum er
gæsla yfir sumarmánuðina. Fyrsta
sæluhúsið var reist í Hvítárnesi
1930. Innan vébanda FÍ starfa 10
deildir víða um landið. Þær eiga og
reka skála og halda úti ferðum all-
an ársins hring. Í Ferðafélagi Ís-
lands eru sjö þúsund félagsmenn.
Auk ferða af ýmsum toga er marg-
víslegt félagslíf innan félagsins.
Yfir vetrarmánuðina er efnt til
myndakvölda, kvöldvaka, spila-
kvölda, þorrablóta og margs fleira.
Forseti Ferðafélags Íslands er
Ólafur Örn Haraldsson. ■
PÁLL GUÐMUNDSSON Nýráðinn framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
Gyltan Eyrún léttari
Eyrún, ein af gyltunum í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum,
gaut 11 grísum hinn 26. nóvember
en einn þeirra var andvana. Eyrún
er af duroc-kyni og því rauð að lit.
Hún er fædd í Hrísey árið 2000 en
það ár var byrjað að flytja þetta
svínakyn til landsins. Fram að því
voru eingöngu landsvín á Íslandi,
ljós að lit, svipuð þeim sem land-
námsmenn fluttu með sér frá
Norðurlöndunum. Duroc-svín eru
amerísk að uppruna en voru flutt
hingað frá Noregi.
Eyrún er nú að gjóta í annað
sinn á ævinni. 26. júlí í fyrra
komu í heiminn 9 sprækir grísir.
Þá var hún sædd með sæði úr
gelti af landkyni en í ár gekk upp
að láta göltinn í Húsdýragarðin-
um sjá um þetta en það er ekki
alltaf sem sú leið virkar. Faðir
grísanna er gölturinn Askur sem
er með Eyrúnu í húsi.
Fyrra got Eyrúnar var henni
erfitt og þurfti meðhöndlun dýra-
læknis í kjölfarið. Sama er uppi á
teningnum núna og því vilja
starfsmenn húsdýragarðsins
biðja gesti að sýna Eyrúnu og litlu
grísunum hennar tillitssemi og
nærgætni.
Meðgöngutímann er auðvelt að
muna, en hann er 3 mánuðir, 3 vik-
ur og 3 dagar, eða m.ö.o. 114 dag-
ar. Got er ekki háð árstíma hjá
svínum og erfitt er að kasta tölu á
fjölda grísa í goti, hún getur verið
margbreytileg. ■
ÞETTA ER EKKI GYLTAN EYRÚN HELD-
UR ÚTLENDUR FRÆNDI HENNAR.