Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 82
■ ■ LEIKIR
14.00 Drangur og Breiðablik
mætast í Vík í 1. deild karla í
körfubolta.
15.00 Höttur og ÍS mætast á
Egilsstöðum í 1. deild karla í
körfubolta.
16.00 Stjarnan og ÍA mætast í
Ásgarði í 1. deild karla í
körfubolta.
16.15 Víkingur og ÍR mætast í
Víkinni í suðurriðli DHL-deildar
karla í handbolta.
16.15 KFÍ og Grindavík mætast á
Ísafirði í Intersportdeild karla í
körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
10.20 K-1 á Sýn.
12.05 Upphitun á Skjá einum.
12.15 Fimleikar á RÚV. Sýnt frá
keppni í fimleikum í
Ólympíuleikunum í Aþenu.
12.40 Enski boltinn á Skjá einum.
Bein útsending frá leik Chelsea
og Newcastle í ensku
úrvalsdeildinni í fótbolta.
13.05 Motorworld á Sýn.
13.35 Race of Champions 2002 á
Sýn.
14.30 Race of Champions 2003 á
Sýn.
14.40 Á vellinum með Snorra
Má á Skjá einum.
15.00 Enski boltinn á Skjá einum.
Bein útsending frá leik
Manchester United og
Southampton í ensku
úrvalsdeildinni í fótbolta.
15.15 Dýfingar á RÚV. Sýnt frá
keppni í dýfingum á
Ólympíuleikunum í Aþenu.
15.25 Race of Champions 2004 á
Sýn.
15.45 Þrekmeistarinn á RÚV.
16.10 Íslenski handboltinn á RÚV.
Bein útsending frá leik Víkings og
ÍR í DHL-deild karla í handbolta.
17.10 Enski boltinn á Skjá einum.
Bein útsending frá leik Blackburn
og Tottenham í ensku
úrvalsdeildinni í fótbolta.
20.00 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Barcelona og
Malaga í spænsku úrvalsdeildinni
í fótbolta.
22.00 Hnefaleikar á Sýn. Sýnt frá
bardaga Naseems Hamed og
Augie Sanchez.
22.25 Hnefaleikar á Sýn. Sýnt frá
bardaga Naseems Hamed og
Vuyani Bungu.
22.50 K-1 á Sýn.
01.20 Hnefaleikar á Sýn. Sýnt frá
bardaga Eriks Morales og
Miguel Antonio Barrera.
54 4. desember 2004 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
1 2 3 4 5 6 7
Laugardagur
DESEMBER
FRJÁLSAR „Ég tel mig enn eiga nóg
inni og vonast til að þessar breyt-
ingar verði til þess að ég nái ár-
angri á ný,“ segir Vala Flosadóttir
frjálsíþróttamaður, en hún og
unnusti hennar, Magnús Aron
Hallgrímsson kringlukastari, eru
að flytja búferlum frá Gautaborg í
Svíþjóð til Árósa í Danmörku.
Afar lítið hefur borið á Völu
um nokkurra ára skeið nú og
hafa á meðan orðið miklar
framfarir í stangarstökki en
Vala setur það ekki fyrir
sig. „Þetta snýst um metn-
að og vilja og ég hef nóg af
báðu eins og sakir standa.
Auðvitað hafa framfarir
orðið og eiga eftir að verða
meiri en ég vil meina að ég
eigi enn nóg
inni til að komast aftur í hóp þeirra
bestu og ég er viss um að dvöl í
Danmörku og breytt umhverfi
mun hafa jákvæð áhrif á það.“
Í Árósum mun Vala æfa undir
stjórn Lars Nielsen, danska lands-
liðsþjálfarans í stökkgreinum, en í
borginni er Ólympíumiðstöð Dana
og öll aðstaða
fyrsta flokks.
Unnusti Völu,
M a g n ú s
Aron, mun
e i n n i g
njóta góðs
af enda
mun hann
a f t u r
hefja sam-
starf við
V é s t e i n
Hafsteins-
son, sem er
lands l iðs -
þjálfari Dan-
merkur í
kast-
greinum. Vésteinn hefur náð þar
góðum árangri enda hokinn af
reynslu eftir áratuga starf og mun
Magnús áreiðanlega njóta góðs af.
Vala vill ekki meina að aðstæð-
ur í Svíþjóð séu á nokkurn hátt
slæmar en hvorugt þeirra hefur þó
náð sérstökum árangri síðan þau
hófu æfingar þar fyrir nokkrum
árum.
„Það er rétt að ég er ekki mjög
ánægð með þann árangur sem ég
hef náð síðan ég kom hingað fyrir
þremur árum síðan, sem er mjög
svekkjandi þar sem ég veit að ég
get meira. En ég vil meina að með-
an metnaður er til staðar og viljinn
til að leggja áfram hart að sér
hefur ekki dvínað er hægt að opna
allar dyr og á það mun reyna í
Danmörku.“
Þau Vala og Magnús koma heim
til Íslands milli jóla og nýárs til að
hitta vini og ættingja en annars
segir Vala ekkert í spilunum sem
bendi til að þau komi heim til
keppni á næstunni. „Það á auðvitað
eftir að skýrast þegar fram líða
stundir en eins og er keppi ég lík-
lega lítið heima nema þá
mögulega í sumar.“
Ég á nóg inni ennþá
Frjálsíþróttakonan Vala Flosadóttir er óánægð með þann árangur sem
hún hefur náð síðan hún hóf æfingar í Svíþjóð fyrir þremur árum. Get-
ur meira og ætlar að sanna það í Danmörku en þangað er hún að flytja.
Við furðum okkur yfir...
...að Bárður Eyþórsson, þjálfari Snæfells í Intersportdeildinni í
körfu, skuli eyða öllu sínu púðri í að kvarta og kveina í dómurun-
um í stað þess að leggja alla sína krafta að mörkum til leiks sinna
manna sem hefur verið afleitur upp á síðkastið.
„Þar hafið þið það, áhorfendur góðir, og Friðrik
Ingi, ég þakka þér alveg kærlega til hamingju!“
Valtýr Björn kunni Friðriki Inga Rúnarssyni bestu þakkir fyrir hjálpina en átti erfitt með
að koma orðum að því, er þeir lýstu saman NBA-leik í beinni útsendingu á Sýn.
albert@frettabladid.is
VALA MEÐ BRONSIÐ Vala Flosadóttir er eina
íslenska konan sem hefur unnið til verðlauna á
Ólympíuleikum. Fréttablaðið/Pjetur