Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 67
Þennan dag árið 1915 lagði bíla-
kóngurinn Henry Ford af stað í
leiðangur. Hann fór á eigin skipi,
„Friðarskipi Fords“. Hann ætlaði
sér að binda enda á fyrri heims-
styrjöldina. Vígorðið var: „Upp úr
skotgröfunum og heim fyrir jól“.
Hann fékk góðar undirtektir heima
í Bandaríkjunum en í Evrópu var
hann ekki tekinn alvarlega. Hann
sneri því vonsvikinn heim úr þess-
um leiðangri.
En hver var hann þessi karl?
Hann var af bændafólki kominn,
fæddur í bænum Dearborn í
Michigan. Hann lærði vélvirkjun
og fór að vinna hjá fyrirtæki Edi-
sons. Þar gafst honum tækifæri til
þess að sinna aðaláhugamáli sínu:
Að búa til bíl. Eftir nokkrar tilraun-
ir varð Ford-fyrirtækið til og hóf að
framleiða bíla. Meðeigendur
Henrys Ford voru á því að miða
ætti bílaframleiðsluna við hinar
betri og efnaðri stéttir. Ford var
ekki sammála. Hann keypti hlut
meðeigenda sinna og hófst handa
við að koma hugmyndum sínum í
framkvæmd.
1908 hófst framleiðslan á Ford
T, bílnum sem olli samfélagsbylt-
ingu. Þetta var bíll fólksins. Lykill-
inn að þessu var ný framleiðsluað-
ferð: Færibandið! Árið 1914 rann
nýr T-Ford af færibandinu á 93
mínútna fresti. Þessi uppgötvun
varð á skömmum tíma grundvallar-
aðferð í öllum iðnaði.
En Ford gerði fleira. Hann tvö-
faldaði í einu vetfangi daglaun
verkamanna sinna og stytti vinnu-
daginn í átta tíma. Hann bannaði
reykingar og kom á fót félagsmála-
deild í fyrirtækinu. Viðskiptablaðið
The Wall Street Journal kallaði
þessa kauphækkun Fords „efna-
hagslegan glæp“ en karl lét sig álit
annarra engu skipta. En jafnframt
þessu var hann algjörlega andvígur
verkalýðsfélögum og það var ekki
fyrr en hann yfirgaf fyrirtækið á
gamals aldri árið 1945 að verka-
menn hja Ford-verksmiðjunum
náðu því fram eftir áralanga bar-
áttu að fá að stofna verkalýðsfélög.
Hann var líka frumkvöðull í
markaðsmálum. Hann kom sér upp
kerfi sjálfstæðra umboðsmanna
um öll Bandaríkin, kerfi sem önnur
fyrirtæki hafa síðan stælt með góð-
um árangri. Hann setti líka upp
ábatakerfi þeirra sem unnu hjá
honum.
Ford fór ekki troðnar slóðir og
stundum varð þverúð hans honum
að fótakefli. Hann hélt til dæmis
iðulega áfram of lengi með bíl-
tegundir, eins og Ford T og Ford A,
sem leiddi til þess að keppinautar
sóttu á. Hann hafði líka einstreng-
ingslegar skoðanir og hann var sak-
aður um gyðingahatur og samúð
með þýskum nasistum. Hann lét
Ford-fyrirtækið byggja verksmiðj-
ur í Þýskalandi sem framleiddu
hergögn fyrir Þriðja ríkið og var
sæmdur einu af æðstu heiðurs-
merkjum nasista. Henry Ford dó úr
heilablóðfalli á áttugasta og fjórða
aldursári í apríl 1947. ■
LAUGARDAGUR 4. desember 2004 39
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 13:00–17:00
Hvort heldur flriggja e›a fimm dyra er Micran nett og
au›velt a› aka henni og leggja í stæ›i. Innanr‡mi› er
svo haglega hanna› a› fletta er rúmbesti bíllinn í sínum
stær›arflokki. Micran er full af hugvitsamlegum lausnum
sem gera aksturinn flægilegri og skemmtilegri.
Nissan Micra – nútíminn á hjólum
Primera og Almera – a›eins fyrir kröfuhar›a
VETRARTILBO‹
Micra Visa 1,2i Beinskiptur 80 3 1.390.000 kr. 1.300.000 kr.
Micra Visa 1,2i Beinskiptur 80 5 1.440.000 kr. 1.350.000 kr.
Micra Visa 1,2i Sjálfskiptur 80 5 1.590.000 kr. 1.500.000 kr.
Tilbo›sver› gildir frá 1. nóv. – 31. des. 2004
Tegund Vél Skipting Hestöfl Dyr Ver›skrá Tilbo›sver›
– á n‡jum Nissan
KAUPAUKI
Vetrardekk me› umfelgun fylgja
öllum Nissan á vetrartilbo›i.
Nissan Primera
Tegund Vél Skipting Hestöfl Dyr
Primera Acenta 1,8i Sjálfskiptur 116 4
Ver›skrá 2.380.000 kr. Tilbo›sver› 2.240.000 kr.
Primera Acenta 1,8i Sjálfskiptur 116 5
Ver›skrá 2.445.000 kr. Tilbo›sver› 2.305.000 kr.
Nissan Almera
Tegund Vél Skipting Hestöfl Dyr
Almera Visia 1,5i Beinskiptur 90 5
Ver›skrá 1.730.000 kr. Tilbo›sver› 1.620.000 kr.
Almera Acenta 1,8i Beinskiptur 116 5
Ver›skrá 1.830.000 kr. Tilbo›sver› 1.690.000 kr.
Almera Acenta 1,8i Sjálfskiptur 116 5
Ver›skrá 1.930.000 kr. Tilbo›sver› 1.790.000 kr.
Almera Acenta 1,8i Sjálfskiptur 116 4
Ver›skrá 1.940.000 kr. Tilbo›sver› 1.800.000 kr.
Var bílakóngurinn Henry Ford nasisti?
HENRY FORD.
Upphafsmaður færibandaframleiðslunnar.
Hver eru þau?
Kannast
einhver við
myndirnar?
Myndir verða stundum viðskila
við eigendurna. Enn sjaldgæfara
er að fólk gleymi að ná í myndir
sínar í framköllun í orlofsferðum
erlendis. En allt getur gerst. Júlí-
ana Helgadóttir kom til okkar á
Fréttablaðinu og sagði okkur
merkilega sögu. Hún var í orlofs-
ferð á dögunum í Flórida og var
stödd í K-Mart, sem margir Ís-
lendingar þekkja. Þá spurði af-
greiðslukonan hvort hún væri frá
Íslandi. Það væru nefnilega
myndir þarna í búðinni, sem eig-
andinn hefði ekki sótt og grunur
léki á að hann væri frá Íslandi.
Konan vill endilega koma mynd-
unum til skila. Við birtum eina
myndina en grunur leikur á að
eigandinn sé á henni. Konan í K-
Mart bauðst til að senda mannin-
um myndirnar, jafnvel án
greiðslu. Júlíana Helgadóttir hef-
ur allar upplýsingar og er í símum
568-5473 og 899-5473. Og við von-
um að myndirnar komist í hendur
rétts eiganda! ■
Tilkynningar um
merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í
smáletursdálkinn
hér á opnunni má senda
á netfangið
timamot@frettabladid.is
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@fretttabladid.is
eða hringja
í síma 550 5000