Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 57
3LAUGARDAGUR 4. desember 2004
Komdu beint til okkar!
- og við tjónaskoðum í hvelli þér
að kostnaðarlausu
Bílastjarnan ehf. · Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Kafbátar og rúðusköfur
Ég er einn af þeim sem kætast innra með sér þegar tekur að snjóa. Ég
á mér nokkur áhugamál sem fara afskaplega vel saman við snjó og
geng nánast í barndóm í hvert sinn sem ég sé hvítar stórar flygsur
falla af himnum ofan. Þá kemst ég í stuð til að leika mér.
Svona virðist farið fyrir fleirum. Sumir eru meira að segja svo
kræfir að fara í kafbátaleik í umferðinni þegar fer að snjóa. Kafbáta-
leikir eru örugglega skemmtilegir en umferðin er enginn leikvöllur.
Hún er mannskæður samgönguvettvangur sem við eigum alltaf að
umgangast af ýtrustu varúð.
Einhverjir gleyma sér þó þegar þeir eru að skafa bílana sína. Gera
lítið gat í snjóinn á framrúðuna, setjast inn og keyra af stað. Með eitt
lítið gat til að horfa út um. Eins og sjónpípu í kafbáti. „Blíbb. Blíbb.
Blíbb.“
Það upplýsist hér með að kafbátar eiga heima í sjónum. Ég mælist
þó ekki til þess að þið þið keyrið bílana ykkar í sjóinn, heldur skafið
almennilega af þeim þegar snjóar.
Með því að skafa snjó af öllum rúðum erum við ekki bara að auð-
velda okkur að komast leiðar okkar í umferðinni, heldur erum við að
tryggja öryggi okkar og annarra vegfaranda. Við viljum sjá bíla og
fólk allan hringinn í kringum okkur. Til þess að verða ekki fyrir nein-
um og til þess að lenda ekki á neinum.
En við skulum líka fjarlægja sem mest af snjónum af þakinu, vél-
arhlífinni og skottlokinu. Þar safnast nefnilega snjór sem getur farið
af stað á óheppilegum stundum og byrgt okkur sýn. Til dæmis getur
snjór runnið fram af þaki bílsins þegar við hægjum á okkur, hulið
framrúðuna og valdið því að við keyrum á næsta bíl á undan okkur.
Í flestum kafbátum er radar og sérstakur áhafnarmeðlimur sem
fylgist með honum. Þar til við búum svo vel að hafa slíkan búnað og
mannafla í bílnum ættum við að geyma alla kafbátaleiki.
„Við byrjuðum fyrir tveimur
árum í heimahúsi en höfum núna
fært okkur upp á skaftið. Við
erum núna með umboðið fyrir
Husqvarna-hjól á Íslandi og
ákváðu því að flytja verslun okk-
ar í stærra húsnæði á Grensás-
veg 14 í Reykjavík,“ segir Friðrik
Arilíusson, en hann á Púk-
ann.com með Guðna Friðgeirs-
syni.
Í Husqvarna-línunni hjá strák-
unum eru Motocross-hjól, End-
uro-hjól, Supermoto-hjól, Mini-
hjól og fjórhjól. „Við erum alveg í
bólakafi í svona hjólum og vitum
hvað við erum að gera. Við getum
þess vegna gefið viðskiptavinum
okkar góðar ráðleggingar og ein-
beitum okkur að því sem við
kunnum best,“ segir Friðrik en
þeir félagar selja einnig tísku-
fatnað fyrir alla fjölskylduna.
Verslunin er opin alla daga og
einnig allar helgar til jóla. Friðrik
og Guðni prófuðu fyrst til að
byrja með að hafa Púkann.com
eingöngu netverslun en hafa
breytt um stíl núna. „Fyrst var
þetta áhugamál en núna er þetta
orðið að starfi. Núna viljum við
veita persónulegri þjónustu sem
fæst með því að fólk hringi eða
komi í verslunina til okkar en
skoði ekki aðeins netsíðuna,“ seg-
ir Friðrik en þeir félagar hyggja
á að auka vöruúrvalið innan tíðar.
„Husqvarna er einnig með
svokölluð Agusta-hjól sem eru
götuhjól og við munum prófa þau
í sumar. Síðan er aldrei að vita
hvað fleira við bjóðum upp á.“ ■
Guðni og Friðrik eru að vonum ánægðir með nýju 280 fermetra verslunina sína.
Fengu Husqvarna-umboðið á Íslandi
Verslunin Púkinn.com hefur fært sig um set.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Sala BMW hér á landi hefur auk-
ist um meira en helming það sem
af er árinu. Alls hafa 127 bifreiðar
selst sem er um 63% aukning mið-
að við sama tímabil í fyrra. Sölu-
aukningin er nokkuð jöfn eftir
tegundum en þær söluhæstu eru
X5, X3 og 5 línan. Þá lofa viðtökur
við nýju BMW 1 línunni góðu, en
hún var frumkynnt hér á landi í
síðasta mánuði.
Það er þó ekki aðeins hér á
landi sem BMW hefur styrkt stöðu
sína því heildarsala BMW-sam-
steypunnar jókst um samtals 9% á
tímabilinu janúar til október. ■
Einstakt ár hjá BMW
Meira en helmingsaukning í sölu á árinu.
Á SUNNUDÖGUM
Auglýsingasíminn
er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins -
Viðtökur á BMW 1 línunni lofa góðu.