Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 32
Árni lætur greipar sópa
Nokkur kurr er meðal þingmanna yfir því að
Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður,
skuli birta jafn margar þingvísur og raun ber
vitni í nýrri bók sinni. Telja þeir augljóst að
Árni hafi haft aðgang að hljóðupptöku af
þingveislum. Hvorki Steingrímur J. Sigfússon
né Jón Kristjánsson kannast við að hafa
leyft Árna að birta vísur sínar nema hvað
heilbrigðisráðherrann mun
hafa gefið leyfi fyrir
einni. „Ég er ekki mjög
hrifinn af þessu,“ segir
Jón „Þetta er sam-
kvæmisleikur og fæst af
þessu á nokkuð erindi á
prent.“
Skoðar áður en hann selur
Athygli vakti að Pétur H. Blöndal var einn
fimm þingmanna sjálfstæðismanna sem
mættu í fullveldisdagsveislu forseta Íslands til
heiðurs Alþingi. Pétur er sem kunnugt er
flutningsmaður tillögu um að leggja forseta-
embættið niður. Hann útskýrði komu sína í
samkvæmið með þeim orðum að hann hefði
viljað skoða Bessastaði áður en hann seldi
slottið.
Bleyjuformaðurinn
Össur Skarphéðinssyni, sem
kallaður var „Pampers-
drengurinn“ á þessari
síðu um síðustu helgi,
gerir það ekki enda-
sleppt við bleyjuinnflytj-
endur því hann tók enn
bleyjupakka sem dæmi í
grein í DV í vikunni.
Örtröð í ríkinu
Þingmenn voru boðaðir til skyndifundar síð-
astliðið mánudagskvöld til að hækka verð á
áfengi. Nokkuð sást til ferða þingmanna í
áfengisverslanir enda vissu þeir einir fárra
landsmanna hvað til stæði. Er talið að hagur
þeirra af þessum „innherjaviðskiptum“ hafi
numið nokkrum hundruðum króna....
Nýr titill
Ummæli Davíðs Oddssonar
á þingi um Samfylkinguna
hafa orðið fleyg. Kristján
L. Möller, fyrrverandi Al-
þýðuflokksmaður, unir því
þó heldur illa að á máli
Davíðs heitir hann
afturhaldskomma-
tittsþingflokksvara-
formaður.
32 4. desember 2004 LAUGARDAGUR
D-listanum tekst ekki að nota sér
afsögn Þórólfs Árnasonar borgar-
stjóra og harðar deilur þríflokk-
anna sem að R-listanum standa.
Fylgiskönnun Gallups sem tekin
var á níu dögum í kjölfar upp-
sagnarinnar bendir til að R-listinn
haldi velli. Hann fengi 54% en D-
listinn 41%. Þeir sem fylgjast
nánast með gangi mála í ráðhús-
inu við Tjörnina eru á einu máli
um að könnunin sé áfall fyrir Vil-
hjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita
sjálfstæðismanna, enda þakkar
Stefán Jón Hafstein, borgarfull-
trúi Samfylkingarinnar, þennan
árangur meðal annars „ótrúlega
lélegri stjórnarandstöðu“ eins og
hann orðar það við Fréttablaðið.
Einn þingmanna sjálfstæðis-
manna í Reykjavík segir að miðað
við málefnastöðuna sé niðurstað-
an með ólíkindum. Sjálfum sér
sundurþykkur R-listi hækki
skatta og barnaheimilisgjöld,
flæmi vinsælan borgarstjóra úr
starfi og ráði í staðinn konu ger-
sneydda útgeislun. „Og við getum
ekki nýtt okkur
þetta!“
K j a r t a n
M a g n ú s s o n
borgarfulltrúi
segir þetta orð-
um aukið og
bendir á lágt
svarh lut fa l l :
„Mér sýnist að
þarna sé sam-
úðarbylgja með
Þórólfi á ferð-
inni. Það eru
mörg dæmi um
slíka hluti og
nú nýtist þetta R-listanum“.
Stefán Jón Hafstein segir:
„Þeta sýnir hvað það er ótrúleg
seigla í R-listanum. Fólk styður
þetta konsept hvað sem kjaftask-
ar eins og þú segja. Það sér að við
höfum styrk og vilja til að halda
áfram og það kann að meta það.“
Stefán segir augljóst að Vil-
hjálmi Þ. Vilhjálmssyni hafi ekki
tekist að fylkja fólki með sér frek-
ar en Birni Bjarnasyni: „Þetta er
sama lélega fylgið og hjá Birni“.
Vilhjálmur Þ. telur slaka út-
komu D-listans í Gallupkönnun-
inni vera þá að tekist hafi að koma
því inn hjá almenningi að sjálf-
stæðismenn hafi flæmt Þórólf á
brott. Þeir og framsóknarmenn
eigi mesta sök á olíumálinu: „Það
er sagt að vika sé langur tími í
pólitík og það eru 76 vikur til
kosninga.“
Stefán Jón Hafstein segist ekki
búast við að Vilhjálmur Þ. leiði D-
listann í næstu kosningum 2006.
„Þeir virðast vera búnir að ákveða
að það verði Gísli Marteinn
Baldursson“.
Sjálfur segir Gísli Marteinn:
„Vilhjálmur er okkar leiðtogi og
við stöndum heilshugar að baki
honum. Fyrir næstu kosningar
verður örugglega prófkjör og í
því verðum við sjálfstæðismenn
að hugsa okkar gang mjög vel,
ekki síst ef fylgið fer ekki að
hækka meira en þessi könnun
bendir til. Ég ætla mér að taka
þátt af fullum krafti.“ Gísli segist
ekki tilbúinn að segja í hvaða sæti
hann gefi kost á sér en bætir við:
„Ég skorast ekki undan neinni
ábyrgð.“
Mjög skiptar skoðanir eru um
þetta innan Sjálfstæðisflokksins.
Jafnvel nánustu samstarfsmenn
Gísla Marteins segja að hann
skorti vikt. Sjálfstæðismaður orð-
aði það þannig: „Menn bera hann
saman við Davíð Oddsson, sem
líka var með skemmtiþætti. En
Davíð var um og innan við tvítugt
þegar hann var með hárbeitta
stjórnmálaádeilu þar sem hann
valtaði yfir stjórnmálaelítuna.
Gísli Marteinn er á svipuðum
aldri og Davíð þegar hann varð
borgarstjóri en er enn að skjalla
Birgittu Haukdal í spjallþáttum“.
Gísli Marteinn segist ekki búast
við því að halda lengi áfram með
hinn vinsæla þátt sinn.
Gísli Marteinn er varaborgar-
fulltrúi en í raun situr hann alla
borgarstjórnarfundi og situr jafn-
framt í nefndum. Þannig þarf
Björn Bjarnason ekki að víkja til
að koma honum að og gefa þannig
höggstað á sér með því að svíkja
kosningaloforð um að sitja út
kjörtímabilið. Jafnvel þótt Vil-
hjálmur víki er foringjastaðan
sýnd veiði en ekki gefin fyrir
Gísla Martein því Guðlaugur Þór
Þórðarson ætlar sér stóra hluti í
stjórnmálum.
Og reyndar sýnir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson ekki neitt fararsnið
á sér og ætlar sér að leiða D-list-
ann næst. Bent er á að hann sé
einn albesti kosningasmali flokks-
ins í Reykjavík og eigi fáa sína
líka í þeim efnum. Sjálfur segist
Vilhjálmur fylgjandi hefðbundnu
prófkjöri meðal flokksbundinna
sjálfstæðismanna til að velja
listann.
Af niðurstöðu könnunarinnar
er þó ljóst að Vilhjálmur verður
að bíta í skjaldarrendur. Gagn-
rýnendur hans segja að for-
mennska hans í Sambandi
íslenskra sveitarfélaga reynist
honum og D-listanum mjög erfið
og minnki svigrúm hans. „Hann
hefur sett ofan í eigin borgarfull-
trúa úr ræðustól fyrir að mót-
mæla hærri álögum á borgarbúa
og rétt aðeins maldað í móinn yfir
útsvarshækkun,“ segir þing-
maður sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Vilhjálmur segist telja
að fólk líti frekar til sjálfstæðis-
manna í borginni sem hóps en til
hans sem leiðtoga.
Gallinn er auðvitað sá að hefð
er fyrir sterkum leiðtoga í borg-
inni, hvort sem hann heitir Gunn-
ar Thoroddsen eða Bjarni Ben,
Ingibjörg Sólrún eða Davíð
Oddsson.
Margir telja líklegt að Gísli
Marteinn verði ofan á en ólíklegra
er en áður að hann etji kappi við
sinn gamla erkifjanda Dag B.
Eggertsson en þeir háðu marga
hildi í stúdentapólitík og ræðu-
keppnum hér á árum áður. Nú
hefur Steinunn Valdís Óskars-
dóttir sest í stól borgarstjóra og
því kann að vera freistandi að
velja konu henni til höfuðs. Og
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarfulltrúi er eins og hin hliðin
á sama peningnum nema ef vera
skyldi að hún væri sama hliðin á
hinum peningnum.
a.snaevarr@frettabladid.is
stjornmal@frettabladid.is
Úr bakherberginu...
Könnun veldur kurr
hjá D-listanum
nánar á visir.is
Þetta var hefðbundin vika í pólitík og
kom fátt á óvart. Þingmenn misstu ekki
af tækifærinu að taka sér frí á fullveldis-
daginn þótt enginn annar gerði það
nema Háskólinn og fátt þykir sjálfstæð-
ismönnum skemmtilegra en að skrópa
hjá Ólafi Ragnari. Össur gerir það ekki
endasleppt við og nefndi verðið á
bleyjupakkanum í 100. skipti í grein í DV
í vikunni. Davíð hellti sér svo yfir Sam-
fylkinguna á eftirminnilegan hátt og á
nýyrði vikunnar, „afturhaldskommatitt-
ur“. „Mér hefur oft verið úthúðað sem
komma,“ sagði einn slíkur, „en aldrei
áður verið kallaður tittur, hommarnir
sátu aleinir að þeim titli.“
Menn eru dæmdir af verkum sínum
en ekki alltaf þeim sem þeir hyggja. Verk
yfirmanna íslensku friðargæslunnar
verða vafalaust metin af myndinni Ís-
lenska sveitin sem frumsýnd var í viku-
lokin í Háskólabíói. Í myndinni er brugð-
ið upp mjög áhugaverðri mynd af störf-
um landans í Kabúl. Mörgum bregður
örugglega í brún að sjá íslenska slökkvi-
liðsmenn á æfingum með vélbyssur
enda hafði Arnór Sigurjónsson, yfirmað-
ur friðargæslunnar, sagt að þeir væru
einungis með „pistólur og riffla“. Teppa-
sali heimsækir höfuðsmanninn á Kabúl-
flugvöll. Í myndinni er fylgst með því
þegar friðargæsluliðarnir leita að hinum
fræga bóksala í Kabúl, heimsækja af-
ganska undirmenn sína og fleira. Vissu-
lega er lofsvert að þeir reyni að kynna
sér reynsluheim Afgana, en myndin sýn-
ir að utanríkisráðuneytið hefur margagt
ósatt um þær reglur sem giltu um ferðir
friðargæsluliðanna í Kabúl. Þetta stend-
ur upp úr eftir að hafa séð Íslensku
sveitina, fyrir utan stórmeistaratakta
Friðriks Guðmundssonar á myndavélina.
Davíð Oddsson utanríkisráðherra
verður vitaskuld ekki dreginn til ábyrgð-
ar fyrir vitleysuna sem viðgengist hefur í
Kabúl. Sú ákvörðun var ekki tekin á hans
vakt. Íslenska sveitin sýnir góða menn
að leik og störfum í nafni íslenska ríkis-
ins, fullorðna karlmenn í mannskæðum
hermannaleik.
Hallgrímur höfuðsmaður hefur þegar
verið kallaður heim og er framtíð hans
óviss. Davíð Oddsson rak eitt sinn skúr-
ingakonu fyrir að gerast fingralöng í ráð-
húsinu á borgarstjóraárum hans og vitn-
aði til orða frelsarans um að henni hefði
verið trúað fyrir litlu. Hallgrímur ber ekki
ábyrgð á klúðrinu í Kabúl. Það gerir yfir-
maður hans. Utanríkisráðuneytinu ætti
ekki að verða skotaskuld úr því að stof-
na nýtt sendiráð í Fjarskanistan. Lang-
þráður draumur sjálfskipaða ofurstans
Arnórs Sigurjónssonar um sendiherra-
tign myndi rætast. ■
VIKA Í PÓLITÍK
ÁRNI SNÆVARR SKRIFAR
Nýtt sendiráð í Fjarskanistan
VILHJÁLMUR Þ.
Nýja könnunin er
verulegt áfall fyrir
hann.
Fullyrt er að ákveðið hafi
verið að Gísli Marteinn taki
við forystu D-listans. Gísli
Marteinn: „Ég skorast ekki
undan neinni ábyrgð.“ Vil-
hjálmur Þ. segist ekki vera á
förum.
GÍSLI MARTEINN Sjónvarpsstjarnan útilokar ekkert í næsta prófkjöri. Hann er vinsæll en
þykir skorta vikt.
Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi þar
sem lagðar eru til breytingar á upplýsingalögum
í því skyni að greina megi frá því hverjir ìnefnd-
arkóngar og drottningarî ríkisins séu. Sem kunn-
ugt er var það úrskurðarnefnd um upplýsingalög
sem hafnaði beiðni um að slíkt yrði gert opin-
bert. Formaður nefndarinnar er Eiríkur Tómas-
son en hann er talinn góður kandídat í að vera
nefndakóngur sjálfur.
FRUMVARP Á ALÞINGI,, FRUMVARP ALÞINGI ,,