Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 4
4 4. desember 2004 LAUGARDAGUR Formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis um sameiningu kerfa: Alfarið á móti SJÁVARÚTVEGUR Guðjón Hjörleifs- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins og formaður sjávarútvegs- nefndar, segist vera alfarið á móti því að krókaflamarkskerfið, sem oft er kallað litla kerfið, og stóra kerfið verði sameinuð. „Að mínu mati er það mikilvægt byggðamál að litla kerfið verði áfram við lýði,“ segir Guðjón. „Þannig er líka hægt að koma í veg fyrir að þeir stóru verði enn stærri.“ Aðspurður segist Guðjón vissu- lega hafa orðið var við það að út- gerðarmenn og smábátasjómenn séu að þrýsta á um að kerfin verði sameinuð. Greinilegt sé að málið sé mikið til umræðu hjá mönnum sem lifi og hrærist í sjávarútveginum. „Ég hef verið töluvert spurður að því hvort þetta komi til greina. Ég tel að það gerið það ekki. Það er það mikil byggðaumræða inni á Alþingi að ég tel að þingmenn séu almennt sammála um að sameina þetta ekki heldur halda þessum kerfum algjörlega aðskildum.“ - th R-listinn hækkar gjöld á borgarbúa R-listinn hefur samþykkt að hækka sorphirðugjald um 30 prósent. Heimaþjónusta hækkar um ríflega 40 prósent. Oddviti sjálfstæðis- manna segir hækkanir endurspegla veika fjármálastjórn meirihlutans. BORGARMÁL R-listinn hefur sam- þykkt að hækka ýmis gjöld sem snúa að sorphirðu, frístundum, fé- lagsþjónustu og menningarmál- um. Borgarráð samþykkti á fimmtudaginn að hækka sorp- hirðugjald fyrir heimili um 30 prósent. Samkvæmt því mun til dæmis gjald fyrir vikulega tæm- ingu á ruslatunnu hækka úr 7.478 krónum á ári í 9.700 krónur. Gjaldið er hækkað til að það standi undir meðalraunkostnaði við meðhöndlun úrgangs að því er fram kemur í bréfi forstöðu- manns Umhverfis- og heilbrigðis- stofu. Borgaryfirvöld samþykktu líka að hækka gjald fyrir hverja unna vinnustund í heimaþjónustu úr 350 krónum í 500 krónur eða um rúm 40 prósent. „Það er um verulegar hækkan- ir að ræða og meiri en við höfum séð oftast áður,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálf- stæðisflokksins. „Þessar hækkan- ir eru að vissu leyti afleiðing veikrar fjármálastjórnar R-list- ans á undanförnum árum. Þetta er ein leiðin, ásamt miklum skatta- hækkunum, að mæta þeim fjár- hagsvanda sem R-listinn stendur frammi fyrir.“ Gjaldskrá í sundlaugar Reykjavíkur verður hækkuð að jafnaði um tíu prósent. Þannig hækkar stakt gjald fyrir fullorðna úr 230 krónum í 250 krónur og fyrir börn úr 100 krónum í 110 krónur. Tíu miða kort hækkar úr 1.650 krónum í 1.900 krónur og ár- skort úr 19.500 krónum í 21.500 krónur. Á höfuðborgarsvæðinu er dýrast að fara í sund í Reykjavík. R-listinn hefur samþykkt að hækka gjald fyrir barn á frí- stundaheimili úr 6.500 krónum á mánuði í 7.150. Frístundaheimili bjóða sex til níu ára börnum upp á tómstundastarf þegar hefðbundn- um skóladegi lýkur. Meirihluti borgarstjórnar hefur einnig sam- þykkt að hækka gjaldskrá skóla- hljómsveita og bókasafna. Gjald vegna grunnnáms barns í skóla- hljómsveit fyrir veturinn hækkar úr 14.000 krónum í 15.000. Bóka- safnsskírteini fyrir fullorðna hækkar úr 1.000 krónum á ári í 1.200 krónur. Í bréfi frá menning- armálastjóra kemur fram að gjaldið hafi ekki hækkað í þrjú ár. Þá hækkar aðgangseyrir í Árbæj- arsafn úr 500 krónum í 600 krón- ur. trausti@frettabladid.is KERTASTJAKARNIR Voru til sölu 13. október til 3. nóvember. Europris innkallar vöru: Eldfimir kertastjakar ELDVARNIR Europris hefur ákveðið að innkalla ákveðna tegund kerta- stjaka fyrir sprittkerti vegna eld- hættu. Kertastjakarnir voru til sölu frá 13. október til 3. nóvem- ber. Í ljós hefur komið að það getur kviknað í stjökunum ef loginn nær að snerta þá. Þeir sem hafa keypt svona stjaka geta skilað þeim til næstu Europris-verslunar þar sem varan verður endurgreidd. Í til- kynningu frá Europris eru við- skiptavinir beðnir afsökunar á óþægindunum sem þetta kann að valda og fullyrt að héðan í frá verði lögð ríkari áhersla á að prófa vörur frá birgjum. ■ Samtök atvinnulífsins: Kaupmáttur jókst KJARAMÁL Regluleg laun á almenn- um vinnumarkaði hækkuðu um 4,9 prósent að meðaltali milli þriðja ársfjórðungs 2003 og þriðja ársfjórðungs 2004. Vísitala neysluverðs hækkaði um 3,6 pró- sent og jókst því kaupmáttur launa að meðaltali um 1,3 prósent. Laun kvenna hækkuðu um 5,9 prósent og karla um 4,5 prósent. Laun á höfuðborgarsvæðinu hækkuðu um 4,8 prósent og úti á landi um 5,2 prósent. ■ ■ MIÐ-AUSTURLÖND Sendir þú jólapakka til útlanda? Spurning dagsins í dag: Spilar þú tölvuleiki? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 54,8% 45,2% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun Vinnumarkaður: Fjölgun framundan KJARAMÁL Fjölgun starfa virðist vera framundan á vinnumarkaði, samkvæmt könnun sem Samtök atvinnulífsins hafa gert á ráðning- aráformum fyrirtækja. Um 19 prósent fyrirtækja hyggjast fjölga starfsfólki næstu þrjá til fjóra mánuðina en aðeins sjö pró- sent hyggja á fækkun. Fjölgunin á sér stað í nær öllum greinum, aðeins fyrirtæki í útgerð boða lítils háttar fækkun starfsfólks. Meiri fjölgun virðist fram- undan á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. - ghs Hvolsvöllur: Í ökuferð út í móa LÖGREGLA Piltur sem nýkominn er með bílpróf ók bíl móður sinnar út í skurð skammt frá Hvolsvelli á fimmtudagskvöld. Hann hafði fengið bílinn lánaðan til að keyra vin sinn heim en fór þess í stað að keyra út í móa langt frá veginum. Bílferðin endaði ofan í skurði og björguðu bílbeltin því að pilt- arnir hentust ekki í gegnum fram- rúðuna. Ástæðan fyrir akstrinum í móanum sagði pilturinn vera að gaman væri að láta bílinn hoppa til á þúfunum. Bílnum þurfti að ná upp úr skurðinum með traktors- gröfu. - hrs AUÐGA ÚRAN AFTUR Íranar hefja auðgun úrans aftur innan hálfs árs, sagði Hashemi Rafsanjani, fyrrum forseti landsins, í ræðu. Rafsanjani, sem hefur enn mikil áhrif í Íran, sagði nauðsynlegt fyrir Írana að nýta kjarnorku og að útlendingar kæmu ekki í veg fyrir það. „Lygin er valdið, sannleikurinn óttaleg vandræði. Kvennabókmenntir eru rugl. Klám og spjallsíður það sem lifir. Fyrst blöskraði mér þó nihilisminn þegar aðalpersónan ræðst gegn andlegum leiðtoga sínum í póstmódernisma með orðunum: ,,Allt var ekki lengur texti, allt var stríð.““ Skafti Þ. Halldórsson, Mbl. Lesið þessa bók! Sannfærist! Heillist! Hugsjónadruslan er þetta en líka svo margt margt fleira. Nýr höfundur, ný og ósvikin rödd og gagnrýnendurnir strax byrjaðir að aftengja sprengjuna: SORPHIRÐA Í RE0YKJAVÍK R-listinn hefur samþykkt að hækka sorphirðugjöld. Árgjald fyrir vikulega tæmingu á rusla- tunnu hækkar úr 7.478 krónum í 9.700 krónur. DÆMI UM HÆKKANIR Á GJALD- SKRÁM REYKJAVÍKURBORGAR Gjöld Hækkun Sorphirðugjald 30% Sundlaugar 10% Frístundaheimili 10% Æskulýðsstarf 7% Bókasafn 20% Heimaþjónusta 40% GUÐJÓN HJÖRLEIFSSON Formaður sjávarútvegsnefndar segist hafa orðið var við að útgerðarmenn séu að þrýsta á sameiningu fiskveiðikerfanna. Verðlagsþróun: Bensínverð lækkar víða OLÍUVERÐ Olíufélögin þrjú, Esso, Olís og Skeljungur, lækkuðu verð á olíu og bensíni í gær, en heims- markaðsverð olíu hefur lækkað ört síðustu daga. Esso og Skelj- ungur lækkuðu bæði bensín um 1,40 krónur og dísilolíu um 1,50 krónur á lítrann. Olís lækkaði verð mismikið eftir útsölustöðum. Hjá Atlantsolíu segjast menn fylgjast grannt með þróun olíu- verðs, en hafa ekki gripið til lækk- ana enn. „Við höfum ekki hækkað verð síðan 27. ágúst og lækkuðum raunar einu sinni 6. nóvember,“ segir Hugi Hreiðarsson, kynning- arfulltrúi Atlantsolíu. - óká
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.