Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 94
Þessa dagana stendur yfir tónlistar- hátíð í Hallgrímskirkju á vegum Mótettukórsins undir stjórn Harðar Áskelssonar, organista kirkjunnar. Meðal annars voru tónleikar sl. mið- vikudagskvöld, þar sem flutt var fjöl- breytt dagskrá með jólalögum úr ýmsum áttum. Ísak Ríkharðsson söng einsöng, Sigurður Flosason lék einleik á saxófón og Björn Steinar Sólbergsson lék á orgel kirkjunnar. Tónleikahald á jólaföstu nýtur mikilla vinsælda og fólk þyrptist í kirkjuna þetta kvöld. Lögin á efnis- skránni voru eftir bæði íslenska og erlenda höfunda og atriðin of mörg til að telja upp. Allt var það vel valið og af smekkvísi. Hinn ungi Ísak Rík- harðsson söng einsöng í nokkrum lögum. Hann hefur óvenjulega fallega drengjarödd, sem hann hefur gott vald á. Þess utan er hann greini- lega tónelskur og efni í góðan tón- listarmann hvort sem röddin endist honum til fullorðinsára eða ekki. Svona raddir eru sjaldgæfar nú á tímum og söngáhugafólk ætti ekki að láta það fram hjá sér fara að hlusta á þennan unga söngvara. Saxófónleikur Sigurðar Flosasonar hefur það til síns ágætis að tónn hans er óvenjulega jafn og fallegur. Ennfremur neitar hann sér um ýms- ar þær klisjur og kæki sem setur oft svip á saxófónleik manna. Hreinleiki og smekkvísi er það sem einkennir stíl Sigurðar. Hann lék af fingrum fram í allmörgum lögum. Spuni byggist á því að endurtaka svipaðar vel æfðar hendingar aftur og aftur, auk þess að renna upp og niður tón- stiga. Hann hentar best í þröngri tón- listarlegri umgjörð þar sem allt er í föstum vel fyrirsjáanlegum farvegi. Það felst í þessum einkennum spunans að hann hefur ríka tilhneig- ingu til þess að verða einhæfur, sama hversu góður tónlistarmaður á í hlut. Af þeim sökum er spuni vin- sælastur við þær aðstæður að menn geri eitthvað annað jafnframt því að hlusta, t.d. að njóta veitinga. Þegar spunnið er við klassískt hljómsetta tónlist, þar sem hvert smáatriði raddfærslunnar hefur verið fágað til fullkomnunar, verður alveg sérstakt stílbrot þegar hin frjálsa spunarödd kemur ofan á og breytir tilviljunar- kennt hljómnum í hverjum punkti. Þetta er ekki sagt til hnjóðs Sigurði Flosasyni, sem er frábær tónlistar- maður, og mest að furða hvað hann sleppur vel frá boðaföllum viðfangs- efnisins. Kjarni tónlistarflutningsins á þess- um tónleikum var að sjálfsögðu söngur Mótettukórsins, sem var sér- lega góður. Kórinn hefur mjög góð- um röddum á að skipa og hljómur hans að sama skapi fallegur. Hann er einnig áberandi vel samhæfður kór. Flutningurinn var skýr og öll blæ- brigði komust vel til skila. Meðal þeirra laga sem hvað best hljómuðu hjá kórnum má nefna „Hin fegursta rósin“ í útsetningu M. Prætoríi, „Jólagjöfin“ eftir Hörð Áskelsson og „María fer um fjallaveg“ eftir Johann- es Eccard. Eccard þessi var þýskt sextándu aldar tónskáld og nemandi hins mikla Lassi. Verk hans eru farin að heyrast stundum hér á landi og er það vel, því hann var augljóslega mikill meistari listar sinnar. Björn Steinar lék töluvert viðamikið hlut- verk á orgelið á þessum tónleikum og skilaði því með sóma. ■ 66 4. desember 2004 LAUGARDAGUR TÓNLIST FINNUR TORFI STEFÁNSSON Mótettukórinn Jólatónleikar í Hallgrímskirkju Stjórnandi: Hörður Áskelsson Gísli Helgason og Herdís Hallvarðsdóttir stofnuðu fyrirtæki til að gefa út hljóð- bækur og hafa þegar náð samningi um útgáfu á út- varspsleikritum RÚV. Bóklestur er án efa ein skemmti- legasta og notalegasta dægradvöl sem hægt er að hugsa sér. En það eru nú einu sinni svo, að það geta ekki allir lesið. Það er til bæði les- blint og sjónskert fólk. Og svo er til fólk sem hefur ekki tíma til þess eftir að venjulegum vinnudegi er lokið – en vildi samt gjarnan heyra góða sögu, til dæmis handverks- fólk og myndlistarmenn, svo ein- hverjir séu nefndir. Hingað til hefur ekki verið mikil gróska í útgáfu hljóðbóka, nema helst hjá Blindrabókasafni Íslands, en þær bækur eru ekki að- gengilegar öðrum en blindum, sjónskertum og langveiku fólki. Það er eiginlega með ólíkindum að hér skuli bækur ekki gefnar út á hljóðbók um leið og þær eru gefn- ar út innbundnar. En nú er komin betri tíð með blóm í haga, vegna þess að á vor- dögum stofnuðu hjónin Gísli Helgason og Herdís Hallvarðsdótt- ir útgáfuna Hljóðbók.is, bókafor- lag, brettu upp ermarnar og hófu útgáfu. „Þegar við stofnuðum fyrirtæk- ið,“ segir Gísli, „voru nær allir hættir að gefa út hljóðbækur, nema örfáir eins og fyrirtækið Dimma og Hörpuútgáfan. Hljóð- bókaklúbburinn, sem Blindrafé- lagið átti, var lagður niður með einu pennastriki og við urðum að byrja alveg frá grunni. Við vissum auðvitað af því að Hljóðbókaklúbb- urinn átti um hundrað titla og buð- um mjög hátt verð í allar upptökur hans. En ég fékk mjög kurteislegt bréf til baka, þar sem ég var þér- aður upp í hástert, og mér var til- kynnt að ekki væri hægt að taka afstöðu til boðsins – og ekki hefur verið hægt að taka afstöðu enn. Þannig að við ákváðum að byrja upp á nýtt – en þó með ýmsum breytingum.“ Útgáfa á útvarpsleikritum „Við breyttum gersamlega um út- lit á bókunum og færðum það til nútímahorfs. Við einbeitum okkur eingöngu að útgáfu á geisladisk- um, höfum aðallega lagt áherslu á barnaefni enn sem komið er og nú í haust náðum við samningum við Ríkisútvarpið um útgáfu á leikrit- um í eigu þess.“ Útgáfan er enn sem komið er eingöngu heimilisiðnaður hjá Gísla og Herdísi. „Við leigjum lítið hljóð- ver, stýrum allri framleiðslu sjálf og fjölföldum allt sjálf - en pökkun er unnin hjá Blindravinnustof- unni,“ segir Gísli sem hefur unnið við hljóðbókaútgáfu í vel á þriðja áratug, og bætir við: „Það hefur skapast gríðarleg þekking og reynsla varðandi þessa útgáfu. Okkur þótti ótækt að þessi reynsla færi forgörðum þegar Hljóðbóka- klúbburinn var lagður niður og það voru margir sem hvöttu okkur til þess að halda þessari útgáfu áfram, byrja upp á nýtt – hvað við gerðum. Þess vegna létum við gera heimasíðu með nákvæmum upp- lýsingum um útgáfu okkar – og á síðunni er einnig hljóðsýnishorn af öllu sem við gefum út. Auk þess fannst okkur rétti tíminn fyrir hljóðbókaútgáfu kominn, þar sem geisladiskar eru að taka við af snældunum og verið er að vinna í því að fólk geti hlustað á hljóðbæk- ur beint af netinu. Nú þegar geta menn verslað hjá okkur beint í gegnum netið, ef menn nenna ekki út í búð.“ Vandaður upplestur Gísli segir það staðreynd að marg- ir hafi ekki tíma fyrir bóklestur – sérstaklega fyrir börnin sín. „Það er ekkert við því að gera annað en að útvega fólki hljóðbækur fyrir börnin til að hlusta á. Svo virðist æ vinsælla að fólk velji sjálft það efni sem vill hlusta á. Þar eru út- varpsleikritin mjög mikil viðbót við það hljóðbókaefni sem gefið hefur verið út á undanförnum árum. Við erum ekkert endilega að hugsa um þá sem eru sjónskertir. Við erum að hugsa um allan almenning, því það er allt önnur upplifun að hlusta á bók en að lesa hana af pappír. Svo eru um 12-14.000 manns lesblindir hér á landi – og fara á mis við allt það lesefni sem flæðir yfir. Eins hitti ég myndlistarmann á bar á dögunum sem sagðist fá inn- blástur við að hlusta á hljóðbækur. Hann sagðist sakna útvarpsþátta eins og „Við sem heima sitjum“ sem hefði fyrst og fremst verið ætlaður húsmæðurm en hefði verið mjög skemmtilegur fyrir margra hluta sakir. Við höfum lagt mikið upp úr því að vera með vandaðan upplestur á þeim bókum sem við gefum út og höfum lagt áherslu á að gefa út sígilt barnaefni fyrir börn frá tveggja til þriggja ára aldri og upp úr. Núna erum við að fikra okkur áfram með að gefa út bækur fyrir fullorðna. Það vantar bara herslumuninn á að Íslendingar stökkvi á hljóðbækur sem miðil og fari að nota hann almennilega.“ Útgáfan Þau verk sem eru komin út núna á haustdögum hjá Hljóðbókum.is eru leikritin „Sálmurinn um blómið“ eftir Þórberg Þórðarson í leikgerð Jóns Hjartarsonar; „Myrkraverk,“ sem er mögnuð hrollvekja eftir Elías Snæland Jónsson og „Sitji guðs englar“, fyrri hluti eftir Guð- rúnu Helgadóttur, í leikgerð Illuga Jökulssonar. Einnig eru konmar út barnabækurnar „Eldfærin og fleiri sögur“ eftir H.C. Andersen sem Halla Margrét Jóhannesdóttir les og barnabók sem ber heitið „Gæsa- húð: Hryllingsmyndavélin“ sem les- in er af Þóru Sigríði Ingólfsdóttur. „Fyrstu bækurnar sem við gáf- um út í vor voru „Grafarþögn“ eftir Arnald Indriðason, örlítið stytt, sem Sigurður Skúlason les,“ segir Gísli, „Skemmtilegu smábarnabækurnar, sem eru 16 eða 17 algildar barna- bækur, sem Hanna G. Sigurðardótt- ir les, „Línu langsokk“ í lestri Völu Þórsdóttur, „Hróa hött“ í lestri Vals Freys Einarssonar og valin „Grimmsævintýri“ í lestri Þorsteins Thorarensen. Útgáfan hefur farið vel af stað að sögn Gísla og fengið ákaflega góðar viðtökur. „Frá því að heima- síðan okkar, hljodbok.is, var opnuð á miðju sumri hafa rúmlega tíu þús- und manns heimsótt hana – sem ég mundi telja harla gott. Okkar stefna er umfram allt að gefa út vandaðar bækur. Það skiptir jafn miklu máli að hljóðbók sé vönd- uð og eins að bók sé vel samin, vel prentuð og fallega útlítandi.“ sussa@frettabladid.is Jólatónleikar Mikilvægt að hljóðbækur séu vandaðar GÍSLI HELGASON OG HERDÍS HALLVARÐSDÓTTIR Urðum að byrja frá grunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.