Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 8
8 4. desember 2004 LAUGARDAGUR
Stoðir hf. kaupa sýningarskálann í Aðalstræti fyrir 160 milljónir króna:
Borgin greiðir 480 milljónir í leigu
BORGARMÁL Reykjavíkurborg hef-
ur ákveðið að semja við fasteigna-
félagið Stoðir hf. um sölu á sýn-
ingarskálanum í kjallara Aðal-
strætis 16, þar sem rústir land-
námsskálans verða til sýnis.
Stoðir greiða 160 milljónir
króna fyrir sýningarskálann og
kostnað við framkvæmdir, sem
metinn er á um 90 milljónir
króna. Samtals eru þetta 250
milljónir króna. Á móti skuld-
bindur borgin sig til að leigja
hann af félaginu fyrir 1,6 millj-
ónir króna á mánuði í 25 ár. Sam-
kvæmt því greiðir borgin 480
milljónir króna í leigu á samn-
ingstímanum. Mismunur er 230
milljónir króna. Í greinagerð
Steinunnar Valdísar Óskarsdótt-
ur borgarstjóra segir að sam-
kvæmt mati fjármáladeildar
borgarinnar sé talið hagstæðara
fyrir Reykjavíkurborg að leigja
skálann en að eiga hann og reka.
Borgin hefur forkaupsrétt að
skálanum og möguleika til að
framlengja leiguna um fimm ár.
Sýningarskálinn verður hluti
af hóteli sem nú er verið að
byggja á horni Aðalstrætis og
Túngötu. Framkvæmdum við sýn-
ingarskálann á að vera lokið fyrir
1. mars á næsta ári. - th
Tæplega 200 milljóna
niðurskurður í Hafnarfirði
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir sveitarfélögin ekki geta rekið þjónustu
við íbúa nema rekstrargrundvöllur þeirra verði tryggður. Sveitarfélögin
bíða niðurstöðu tekjustofnanefndar sem fundar við ríkið.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Grípa þarf til
niðurskurðar í rekstri Hafnar-
fjarðarbæjar til að mæta kjara-
samningi kennara, segir Lúðvík
Geirsson bæjarstjóri. Hann,
ásamt Einari Njálssyni, bæjar-
stjóra í Árborg, áréttar að tekju-
stofnar sveitarfélaganna séu
veikir.
Lúðvík segir útgjöld Hafnar-
fjarðarbæjar aukast verulega
vegna komandi kjarasamninga
við starfsmenn sveitarfélaganna.
Samningur kennara auki kostnað
bæjarins til dæmis í kringum 190
milljónir króna á næsta ári.
„Við erum að fara með fjár-
hagsáætlun í síðari umræðu í
næstu viku. Það er ljóst að við
verðum að grípa til ráðstafana
núna fyrir seinni umræðu til að
mæta þessum kostnaðarauka,“
segir Lúðvík. Allt sé til skoðunar í
þeim efnum. Ekki hafi verið tekin
ákvörðun um hvar herða þurfi
ólina: „Ég veit að menn eru að
glíma við sama vanda allt í kring-
um landið.“
Einar Njálsson bæjarstjóri
segir sveitarfélagið Árborg þurfa
að grípa til aðgerða vegna al-
mennrar kostnaðarþróunar en
ekki sérstaklega vegna kjara-
samninga grunnskólakennara.
Þeir séu aðeins þriðjungur starfs-
manna sveitarfélagins og eftir sé
að semja við aðra starfsmenn
þess.
Einar segir sveitarstjórnar-
menn bíða eftir niðurstöðu tekju-
stofnanefndar, sem standi í við-
ræðum við ríkið. Viðræðum hafi
miðað hægt, sem séu vonbrigði.
Skriður virðist kominn á störf
nefndarinnar og sveitarstjórnar-
menn vænti niðurstöðu eftir um
tveggja mánaða skeið.
Lúðvík segir aðspurður að fjár-
hagsmál Hafnarfjarðar hafi verið
til skoðunar hjá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga, rétt eins
og annarra sveitarfélaga. Það hafi
rétt eins og 70 prósent sveitar-
félaga eytt um efni fram á síðasta
ári. Niðurstaða ársreikninga verði
í nokkuð góðu jafnvægi á þessu
ári.
„Við höfum líka verið í mikilli
hagræðingu og sparnaði. Það er
ekki um annað að ræða en að
halda sjó í þessari stöðu,“ segir
Lúðvík. Sveitarfélögin geti ekki
rekið þjónustu við íbúa nema
rekstrargrundvöllur þeirra verði
tryggður.
gag@frettabladid.is
Hæstiréttur:
Sló mann
í andlitið
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
þrjátíu daga fangelsisdóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir manni fyrir
að hafa slegið annan mann í andlit-
ið með bjórflösku. Sá sem varð
fyrir árásinni missti framtönn.
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttardómari skilaði sérá-
kvæði þar sem hann taldi að
sýkna ætti manninn. Samkvæmt
framburði vitna hefði höggið ekki
verið kröftugt og sá sem varð
fyrir árásinni sagði manninn hafa
otað að sér flöskunni. Taldi hann
ósannað að ætlunin hefði verið að
veita áverkann sem maðurinn
hlaut. ■
Banaslysið í Vonarskarði:
Minningar-
sjóður
SJÓÐUR Stofnaður hefur verið
minningarsjóður fyrir börn Stef-
áns Reynis Ásgeirssonar, sem lést
í bílslysi í sunnanverðu Vonar-
skarði sunnudaginn 28. nóvember.
Útför Stefáns Reynis, sem lætur
eftir sig unnustu og þrjú börn, fór
fram í Grafarvogskirkju í gær.
Þeir sem vilja láta fé af hendi
rakna geta lagt inn á reikning:
0114-05-065388, kennitala: 101267-
4239. ■
■ KJARAMÁL KENNARA
Jarrahúsgögnin frá Suður-Afríku eru safngripir. Borð í
öllum stærðum, stólar og margt fleira. Sérsmíði og pantanir.
Ný send
ing
kominn
Einstök húsgögn með
heillandi sögu.
Opið frá 12:00 - 18:00 virka daga og 12:00 - 16:00 laugardaga.
Úrval fallegrar og óvenjulegrar gjafavöru
Félagsmálaráðuneytið og Geysir:
Samstarf um atvinnu geðfatlaðra
ATVINNUMÁL Félagsmála-
ráðherra, Árni Magnús-
son, hefur gert sam-
starfssamning við
klúbbinn Geysi um að
félagar í honum komi til
starfa í félagsmála-
ráðuneytið árið 2005.
Um er að ræða að
hámarki hálft stöðu-
gildi sem ráðgert er að
nýta þannig að tveir
félagar í Geysi komi til
starfa í ráðuneytinu,
hvor í sex mánuði í
senn, á næsta ári.
Geysir starfar eftir
alþjóðlegri hugmynda-
fræði, Fountain House,
sem fyrst kom fram á
sjónarsviðið í New York
árið 1948 og er fyrir
fólk sem á eða hefur átt
við geðræn veikindi að
stríða. Hugmyndafræði
Fountain House og klúbba
sem starfræktir eru um
allan heim byggir á þeim
skilningi að bati vegna
geðrænna veikinda verði
að fela í sér þátttöku í
mikilvægu samfélagi. Í
samræmi við það hefur
Klúbburinn Geysir frá
upphafi verið vettvangur
starfsleitar fyrir félaga
sína og er sá samningur
sem undirritaður hefur
verið við félagsmálaráðu-
neytið liður í því starfi. -
- jss
Íslensk stjórnvöld:
Styrkja
kennslu
MENNTAMÁL Nú styrkja íslensk
stjórnvöld kennslu í íslensku við
17 erlenda háskóla, að því er fram
kemur í Stiklum, vefriti um menn-
ingar- og landkynningarmál.
Hátt á annað þúsund nemar
stunda nám í íslensku við hina er-
lendu háskóla ár hvert fyrir utan
þann fjölda erlendra nema sem
stundar íslenskunám við Háskóla
Íslands, í reglulegu námi á vetr-
um og á sumarnámskeiðum. Að
auki nema margir forníslensku
erlendis.
Það er Stofnun Sigurðar Norð-
dals sem annast umsjón með
íslenskukennslu við erlenda
háskóla af hálfu íslenskra stjórn-
valda. ■
ATKVÆÐI KOMIN Í HÚS Atkvæði
kennara hafa að mestu borist í
hús Kennarasambandsins, að
sögn Helga E. Helgasonar upp-
lýsingafulltrúa. Nokkur atkvæði
gætu þó verið á leið í pósti.
Talning atkvæða verði um helg-
ina og niðurstaða kosningu um
kjarasamning grunnskólakenn-
ara við sveitarfélögin kunngerð
á mánudag.
KENNSLA ÁKVEÐIN EFTIR HELGI
Borgaryfirvöld ákveða ekki
hvernig uppfylla eigi 170 daga
kennslu grunnskólabarna fyrr en
eftir að niðurstaðan í atkvæða-
greiðslu kennara liggur fyrir.
Starfshópur skoðar hvaða ráð-
stafanir koma til greina og verð-
ur ákvörðun hópsins kynnt síð-
degis á mánudag eða á þriðjudag.
HÓTELIÐ VIÐ AÐALSTRÆTI
Framkvæmdir standa nú yfir í Aðalstræti þar sem verið er að reisa hótel. Í kjallaranum
verða fornminjar landnámsskálans til sýnis.
ÁRNI MAGNÚSSON
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA.
LÚÐVÍK GEIRSSON
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir að skera verði niður um 190 milljónir vegna breyttra kjara
kennara. Ekki hafi verið ákveðið hvar sparnaðurinn komi fram. Það verði rætt á bæjar-
stjórnarfundi á þriðjudag.
FRÓÐLEIKSMOLI:
Að meðaltali fór 51,1 prósent af heild-
artekjum aðalsjóðs sveitarfélaganna til
fræðslu- og uppeldismála árið 2003.
Innan þess ramma falla grunnskólar,
leikskólar og tónlistarskólar. Hækkaði
hlutfallið um 0,4 prósentustig milli
ára. Hlutfall Hafnarfjarðarbæjar var
56,4 prósent árið 2003. Sveitarfélagið
Árborg lagði til 55,5 prósent, rétt tæp-
lega prósentustigi meira en árinu á
undan.
Á SNEKKJUSÝNINGU
Fyrstu gestir á 44. Siglingahátíðinni í París
hópast að til að skoða snekkju í gær. Sýn-
ingin verður opin almenningi frá og með
deginum í dag og fram til 13. þessa mán-
aðar, en á henni má sjá nýjustu afurðir
snekkjuframleiðenda.
■ EVRÓPA
SPRENGJUÁRÁSIR Í MADRÍD Fimm
sprengjur sprungu í Madríd um
kvöldmatarleytið í gær, þær ollu
smávægilegum skaða en engum
meiðslum. ETA, hryðjuverka-
hreyfing Baska, varaði við
sprengjunum skömmu áður en
þær sprungu.
SLASAÐIST Á AUGA Maður
meiddist á auga í vinnuslysi í
Bláfjöllum í fyrradag. Hann var
að vinna við eina skíðalyftuna og
fékk skrúfjárn í augað. Maðurinn
var fluttur á slysadeild þaðan
sem hann fór beint í aðgerð.
VATNSLEKI Í PENNANUM Vatn
flæddi yfir um 400 fermetra
svæði í Pennanum í Hallarmúla í
gærmorgun og var slökkvilið
kallað á staðinn. Lekinn varð
vegna tæringar á vatnslögn.
Skemmdir urðu á gólfefnum.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
AP
M
YN
D
/R
EM
Y
D
E
LA
M
AU
VI
N
IE
R
E