Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 28
Hjálmar Árnason, þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins, er í
sviðsljósinu vegna ummæla í
Silfri Egils síðastliðinn sunnudag
þar sem hann sagði koma til
greina kæmi að Ísland yrði tekið
af lista hinna viljugu þjóða í
Íraksstríðinu. Yfirlýsing Hjálm-
ars vakti mikinn fögnuð meðal
stjórnarandstæðinga, sem
viku góðu að honum. Stjórn-
arliðar tóku yfirlýsing-
unni hins vegar fálega
og Hjálmar sjálfur
virtist iðrast hennar
og hefur sagt að orð
hans hafi verið oft-
túlkuð. Almenn
skoðun er sú að
Hjálmar, sem ekki
er gjarn á að vera
yfirlýsingaglaður,
hafi talað af sér.
Hjálmar varð
þingmaður Fram-
sóknarflokksins
árið 1995. Áður
hafði hann verið í
Alþýðubandalag-
inu og sagan seg-
ir að hann sé enn
skráður formað-
ur Alþýðubanda-
lagsins í Sand-
gerði. Steingrím-
ur Hermannsson
mun hafa séð efni-
legan framsóknar-
mann í allaballanum
og tók hann undir
sinn verndarvæng.
Hjálmar hefur risið
hratt til metorða í
Framsókn án þess þó að
ná því takmarki að verða
ráðherra. Þeir sem
þekkja hann segjast ekki
í vafa um að metnaður
hans standi í þá átt.
Hjálmar nýtur virðingar
og álits innan Framsókn-
arflokksins en hefur þó
eldað grátt silfur við Siv
Friðleifsdóttur. Í þeirra
samskiptum hefur hann
gefið eftir, og kunnugir
segja það sýna hyggindi
hans. Hann hafi séð að
ráðlegt væri að bíða um
sinn. Hann ákvað til dæm-
is að fara ekki í prófkjör
gegn Siv og þegar hún til-
kynnti um framboð sitt til
ritara flokksins bauð hann
sinn sig ekki fram gegn henni.
Gamlir vinir Hjálmars finna
honum helst til foráttu að hlaupa
eftir flokkslínunni í stað þess að
fara eftir eigin sannfæringu.
Þetta segja þeir hann gera af
klókindum þar sem hann ætli sér
frama innan flokksins.
Hjálmar er fæddur árið 1950.
Faðir hans, Árni Waag Hjálmars-
son, var Færeyingur sem flutti
til Íslands og Hjálmar hefur ætíð
ræktað samskiptin við færeysk-
an frændgarð. Áður en Hjálmar
sneri sér að stjórnmálum kenndi
hann um árabil og var skóla-
meistari Fjölbrautaskólans á
Suðurnesjum frá 1985-1995.
Hann mun hafa verið mjög vel
liðinn í starfi.
Hjámar hefur listræna taug
og er góður ljósmyndari. Hann
hefur haldið að minnsta kosti
eina ljósmyndasýningu. Myndir
á þeirri sýningu voru allar af
Keili. Hjálmar hafði fyrir venju
að stöðva bíl sinn ætíð á sama
stað á Reykjanesbrautinni á mis-
munandi tímum og tók myndir af
Keili. Afraksturinn varð mynd-
listarsýning sem kunnugir segja
hafa verið ansi skemmtilega.
Fjallið var á sínum stað en birta,
myrkur og sólarlag gerðu hverja
mynd um sig sérstaka. Annað
áhugamál Hjálmars er steina-
söfnun. Hann leitar uppi fjöru-
steina sem hann sér alls kyns
mynstur í. Sagt er að þetta
áhugamál mæti litlum skiln-
ingi eiginkonu hans, Val-
gerðar Guðmundsdóttur,
m e n n i n g a r f u l l t r ú a
Reykjanesbæjar.
„Hann er bjartsýnn
og skemmtilegur en
stundum sést hann
ekki fyrir. Hann er
ljómandi góður
drengur og okkur
vinum hans þykir
alltaf miður þegar
hann kemur sér í
vandræði með
fl jótfærninni ,“
segir æskuvinur
hans Sigurður G.
Tómasson. Vinir
Hjálmars segja
hann mikinn og
góðan húmorista.
Hann á til grallara-
hátt, keypti sér til
dæmis trommusett
fyrir tveimur árum,
og geymdi í bílskúrn-
um og trommaði þar
oft af hjartans list.
Trommusettið hefur
hann nú selt yngri syni
sínum, sem er í rokkhljóm-
sveit.
Ekki er hægt að ræða um
stjórnmálaferil Hjálmars
Árnasonar án þess að geta um
vetni en hann hefur einbeitt
sér mjög að uppbyggingu
vetnisframleiðslu hér á
landi á undanförnum árum.
Hann hlaut heiðursverð-
laun Íslenskrar nýorku
árið 2003 fyrir frumkvæði
sitt í vetnismálum. Hann
sagði í því sambandi: „Ís-
land er kjörið land til þess
að vera tilraunavettvang-
ur fyrir nýja og bylting-
arkennda tækni.“ Í þessu
máli hefur Hjálmar
reynst vera sannur frum-
kvöðull.
Hann er ekki alveg laus
við snobb, þótt ekki beri
hann það utan á sér. „Hann á
til að vera rogginn,“ segir
stjórnarandstæðingur sem seg-
ir Hjálmar ekki lausan við tæki-
færimennsku. „Hann stekkur á
mál sem hann telur sig geta sleg-
ið sér upp á. Honum þykir sann-
arlega ekki slæmt að fá umfjöll-
un,“ segir þessi þingmaður en
bætir við að Hjálmar sé bæði
greindur og klókur, auk þess að
vera skemmtilegur í umgengni
og þægilegur í viðræðu. ■
4. desember 2004 LAUGARDAGUR28
AF NETINU
Fréttablaðið mun bjóða öllum lesendum sínum frítt inn
í garðinn til jóla og verður margt við að vera.
ÞÉR ER BOÐIÐ
Í FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐINN!
Fréttablaðið er komið í hátíðarskap!
Mest notaði fjölmiðill á Íslandi - daglega
Dagskráin laugardaginn 4. desember:
Aðrir velunnarar Fjölskyldu- og húsdýragarðsins eru:
10:30 Hreindýrum gefið
10:45 Jólasaga lesin í Jólaveröldinni
12:00 Jólahlaðborð fyrir Fjölskylduna
13:00 Skoppa og Skrítla stíga á stokk fyrir hlaðborðsgesti.
13:00 Fræðsla um fiskana í fiskasafninu
13:30 til 17:00 Handverksmarkaður
14:00 Svínum hleypt út ef veður leyfir
14:00 til 14:30 Hestar teymdir undir börnum
14:00 Jólasaga lesin í Jólaveröldinni
14:30 Borgarkórinn kemur og syngur
15:00 Fálkunum gefið
15:30 Hreindýrum gefið
15:45 Dýrum í smádýrahúsi gefið
16:00 Selum gefið
16:15 Hestum, geitum og kindum gefið
16:30 Svínum gefið og mjaltir í fjósi.
Handverksmarkaður alla daga fram að jólum frá 13:30 til 17:00.
Fetað til hægri
Það er aftur á móti umhugsunarefni að
Fréttablaðið sem í fyrra hamaðist býsna
vel fyrir Samfylkinguna er núna að fikra
sig hægt og rólega yfir til hægri. Þar hafa
nú undanfarið verið predikuð frjáls-
hyggjusjónarmið í leiðurum, svo ræki-
lega að erfitt er að þekkja Fréttablaðið
og Morgunblaðið í sundur. Hefur þar
ræst sem margir óttuðust að hin miklu
umbrot á dagblaðamarkaðnum virðast
ætla að skilja eftir sig eintóm hægriblöð.
Ármann Jakobsson á murinn.is
Afdrifarík mistök söngvarans
Kristján [Jóhannsson söngvari] gerði þau
afdrifaríku mistök að fara bálreiður í
Kastljósið. Það átti hann ekki að gera.
Fyrir vikið varð hann ókurteis. Það var
aumkunarvert að horfa á hann með nýja
diskinn í annarri hendi og ræða síðan
um að Eyrún Magnúsdóttir væri svo reið
að hún væri rauð niður á brjóstin af
reiði. Svo kom alltaf inn á milli hjá hon-
um hvað nýi diskurinn væri fallegur og
Eyrún vond. Þetta var einhvern veginn
allt algerlega út úr kú hjá honum. Ótrú-
lega pínlegt. Og miðað við yfirlýsingar
hans í DV í dag um að Íslendingar séu
sveitalubbar þá virðist honum vera að
takast að valta fullkomlega yfir sjálfan
sig.
Jón G. Hauksson á heimur.is
Fjármál stjórnmálaflokkanna
Líkt og önnur fyrirtæki hafa olíufélögin
veitt fjárstyrki til einstakra flokka en ekki
fæst uppgefið hvað hver flokkur hefur
fengið í sinn hlut. Fjárreiður þeirra flestra
eru lokuð bók og þeir sem hafa hreyft
hugmyndinni um að opna bókhaldið fyr-
ir almenningi hafa rekið sig á veggi. Sjálf-
stæðismenn sitja fastast á fleti fyrir og
telja það hluta af einstaklingsfrelsinu að
veita fjármagni inn í stjórnmálasamtök
án þess að það sé á almannavitorði. Hér
er um algjörlega úrelt sjónarmið að
ræða.
Bjarki Bjarnason á vg.is/postur
Rúmur mánuður er liðinn frá
kosningunum hér vestra. Ekki eru
þó allir tilbúnir að sætta sig við að
rétt hafi verið staðið að málum við
framkvæmd þeirra. Á netinu fer
fram kröftug umræða um að
brögð hafi verið í tafli í Ohio-fylki
og þar hafa tveir frambjóðendur
smáflokka farið fram á endurtaln-
ingu. Ljóst er að ýmislegt fór úr-
skeiðis í Ohio, kjósendur þurftu
að bíða í allt að sjö klukkustundir
á kjörstað, mikill skortur var á
kosningatölvum í ákveðnum kjör-
dæmum og dæmi eru um grófar
villur við talningu eins og í Frank-
lin-sýslu þar sem Bush var „út-
hlutað“ 4.258 atkvæðum þó ein-
ungis 638 kjósendur hefðu greitt
atkvæði! Gagnrýni endurtalning-
arsinna hefur ekki síst beinst að
yfirmanni kjörstjórnar í Ohio,
sem er repúblikani og var einn af
helstu stjórnendum kosningabar-
áttu Bush í fylkinu. Hann er sak-
aður um að hafa beitt sér fyrir því
að blökkumenn og ungir kjósend-
ur ættu erfiðara með að kjósa,
með misvísandi skilaboðum um
skráningarreglur, kjördeildir
o.s.frv. Blackwell ríkisstjóri tók
líka ákvörðun um það eftir kosn-
ingar að breyta reglum um taln-
ingu utankjörstaðaatkvæða sem
juku verulega fjölda ógildra at-
kvæða úr umdæmum þar sem
Demókratar njóta mikils fylgis.
Fleira í framkvæmd kosninganna
vekur furðu. Mörg umkvörtunar-
efnin virðast tengjast tölvubúnaði
sem víða var notaður í fyrsta sinn
í þessum kosningum. Í mörgum
kjördeildum greiddu kjósendur
atkvæði með því að nota kosn-
ingatölvur með snertiskjám. Mjög
er gagnrýnt að þessar vélar prent-
uðu ekki út kvittun til staðfesting-
ar á því hvaða frambjóðanda kjós-
andinn hefði valið, sem hefði ver-
ið hægt að nota til að sannreyna
vilja kjósenda. Ýmsir kjósendur
kvörtuðu undan því að þegar þeir
völdu nafn John Kerrys á snert-
iskjánum birtist nafn George W.
Bush í staðinn. Tölvuútprentun
hefði getað leyst úr slíkum villum.
Það þótti tortryggilegt að í mörg-
um kjördæmum voru notaðir
tölvuskannar við talningu at-
kvæða, sem framleiddir voru af
fyrirtækinu Diebold. Stjórnandi
þessa fyrirtækis er dyggur
repúblikani, sem lýsti því yfir
fyrir kosningar að hann myndi
gera allt sem í hans valdi stæði til
að tryggja Bush sigurinn í Ohio.
Sagnir af tölvumistökum eru ekki
bundnar við Ohio. Í New Hamps-
hire bar mikið á gagnrýni á um-
rædda Diebold-skanna og nú hef-
ur Ralph Nader farið fram á end-
urtalningu þar til að fá staðfest-
ingu á því hvort skannarnir hafi
skekkt úrslitin. Óháð rannsóknar-
stofnun við Berkeley-háskóla hef-
ur birt athugun þar sem leitt er
líkum að því að tölvumistök hafi
oftalið atkvæðamagn Bush um
allt að 260.000 atkvæði í Florída.
Enn sem komið er sigla þessar
sögusagnir um kosningaóreiðu að
mestu undir radar stóru fjölmiðl-
anna hér vestra. Repúblikanar af-
greiða þær sem ómenguð tapsær-
indi en John Kerry mun fylgjast
grannt með gangi mála þó hann
láti á engu bera opinberlega. ■
Er ballið örugglega búið?
Ameríkubréf
SKÚLI HELGASON
Klókur og metnaðargjarn
MAÐUR VIKUNNAR
HJÁLMAR ÁRNASON
FORMAÐUR ÞINGFLOKKS FRAMSÓKNARFLOKKSINS
TEIKN. HELGI SIGURÐSSON - HUGVERKA.IS