Fréttablaðið - 21.01.2005, Síða 23

Fréttablaðið - 21.01.2005, Síða 23
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 5 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 99 stk. Keypt & selt 35 stk. Þjónusta 38 stk. Heilsa 8 stk. Skólar & námskeið 2 stk. Heimilið 13 stk. Tómstundir & ferðir 6 stk. Húsnæði 28 stk. Atvinna 20 stk. Tilkynningar 4 stk. Kringlunni föstudag kl.15-18 Smáralind laugardag kl. 14-17 Sólveig Eiríksdóttir verður með kynningu í Hagkaupum: Heilsublað Hagkaupa fylgir fréttablaðinu í dag Matreiðsluskóli Hagkaupa Sölvi Fannar Viðarsson verður með námskeið í Matreiðsluskólanum. Yfirskrift námskeiðsins er BREYTTUR LÍFSSTÍLL. Sjá nánar í heilsublaðinu. Góðan dag! Í dag er föstudagurinn 21. jan., 21. dagur ársins 2005. Reykjavík 10.39 13.39 16.40 Akureyri 10.41 13.24 16.07 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Óskar Guðjónsson saxófónleikari, heldur mest upp á flysjarann sinn af öllu sínu heimilisdóti. „Ég keypti þennan flysjara í Ameríku í skemmtilegri búsáhaldabúða- keðju sem heitir Williams and Samona. Hann er óvenjulegur að því leyti að hann er eins og „u“ í laginu svo maður ber sig öðru- vísi að við flysjunina og mér finnst hann virka betur en aðrir flysjarar. Flysjarinn er af tegundinni Kuhn og hann er í uppáhaldi, einfaldlega af því að mér finnst svo gaman að elda. Ég flysja helst sætar kartöflur, gul- rætur, ávexti og meira að segja lárperuna mína. Ég á tíu mánaða strák sem borðar ekki fasta fæðu en þeim mun meira af mauki og þá er nauðsynlegt að eiga góðan flysjara. Ég hef farið fram á það við eigend- ur búsáhaldaverslunar hér í bæ að fara að flytja svona inn því þessi hefur mikið verið notaður og ég er hræddur um að ég fái ekki annan í hans stað ef hann fer að gefa sig.“ Óskar er einn þekktasti og vinsælasti saxó- fónleikari landsins og alltaf með eitthvað í pípunum. Þó segir hann yfirleitt frekar rólegt hjá tónlistarmönnum í janúar. „Í janúar eru tónlistarmenn að jafna sig eftir erilinn í desember og skipuleggja árið framundan. Árið er ekkert mikið skipulagt hjá mér enn sem komið er en það verður örugglega gaman. Konan mín, Guðbjörg, er nýbúin að opna förðunarskóla sem heitir EMM og við höfum verið upptekin af ýmsu þar að lútandi undanfarið. Hún varð þrítug um daginn og ég eldaði nautalundir og flysjaði ýmislegt meðlæti handa henni í til- efni dagsins.“ brynhildur@frettabladid.is „U“ lagaðan flysjara í hvert eldhús tilbod@frettabladid.is Veruleg verðlækkun er á ýmsum vörum í verslun Odda að Höfðabakka 3 í Reykjavík þessa dag- ana og nemur lækk- unin allt að helmingi. Skrifborðsstólar af góðum gerðum eru til dæmis á 45% og 50% af- slætti. Plöstunarvél sem hentar vel þeim sem taka mikið af digitalmyndum og hafa gam- an af að búa til möppur með myndunum, bæði til gjafa og fyrir sjálfa sig, fást nú á 14.900 en voru áður á 21.899. Þá er ótalin fartölva af gerðinni HP Compax sem nú er á til- boðsverðinu 119.900 en kost- aði áður 159.900. Henni fylgir fartölvustandur að verðmæti 4.990 í kaupbæti. Fallegur kvenfatnaður fyrir konur á öllum aldri er á útsölu í versluninni Næs. Um er að ræða huggulegan hversdags- fatnað og einnig samkvæmis- klæðnað af ýmsum gerðum og allt er á niðursettu verði. Versl- unin Næs er á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, Hverafold 1-3 og Foldatorgi í Grafarvogi. Útsalan stendur út næstu viku. Þrjátíu prósenta afsláttur er á Miele-heimilistækjum í versluninni Eirvík á Suður- landsbraut 20, í Ljósgjaf- anum, Glerárgötu 34 á Akureyri og Geisla á Flöt- um 29 í Vestmannaeyj- um. Um er að ræða þvottavélar, þurrkara og ryksugur. Miele-vörur eru þekktar að gæðum og nú er því lag. Tuttugu og fimm pró- senta afsláttur er gefinn af vinnu við smurningu á bíl í nýrri smurstöð Bílkó á Smiðjuvegi 34 í Kópa- vogi næstu vikurnar. Smurstöð- in er við rauða götu. 2 fyrir 1 tilboð er nú í gildi á augnskuggum, naglastyrkingu og varalitum í Apótekar- anum, Akureyri, Hagkaup Skeifunni, Smáralind og Lyfi og heilsu í Aust- urstræti, Kringlunni og Melhaga. Tilboðið er á völdum lín- um með franska vöru- merkinu L’oréal. Óskar flysjar fyrir fjölskyldu sína. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í tilboðum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Má ég óska þér gleðilegs árs eða er einhver annar kannski löngu búinn að því? Nýtískulegur þorramatur BLS. 4 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Óskar Guðjónsson eldar sér til ánægju og heldur upp á flysjarann sinn. FRÉTTAB LAÐ IÐ /E.Ó L FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E . Ó L.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.