Fréttablaðið - 21.01.2005, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: 585 8330, dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT
2. sýning 13. febrúar kl. 19 – FÁAR SÝNINGAR
Miðasala á netinu; www.opera.is
Netfang miðasölu; midasala@opera.is • Sími miðasölu: 511 4200
Banki allra landsmanna
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
27
13
0
0
1/
20
05
GÓÐA FERÐ!
Icelandair styður íslenskt keppnisfólk!
Við óskum íslenska landsliðinu í handknattleik
gæfu og gengis á HM í Túnis.
Handknattleikur hefur ávallt verið sterkasta hópíþrótt Íslendinga og ekkert íslenskt
knattlið hefur náð eins góðum árangri á alþjóðavettvangi og karlalandsliðið í handbolta.
Mikla hæfileika, sjálfstraust og seiglu þarf til að vera í fremstu röð í heiminum.
Við hjá Icelandair leggjum áherslu á þessa eiginleika í harðri samkeppni á alþjóðavettvangi.
Við vorum, erum og verðum dyggir stuðningsmenn íslenska landsliðsins í handknattleik.
Seltirningar og
víkingagenið
Sennilegt er að sérstakt gen hafivaldið því að formæður okkar og
forfeður gerðust þreytt á þjóðþrifa-
störfum sínum í norskum landbún-
aði og tóku þess í stað að leggja
stund á ferðalög, ofbeldi og grip-
deildir. Þetta gen leiddi til þess að
svonefnd „víkingaöld“ hófst og ná-
grannaþjóðir eins og Fransmenn,
Bretar og Rússar lágu andvaka í
meira en 200 ár og höfðu áhyggjur
af því að skuggalegur lúseraskríll
væri á leið í heimsókn til að herja
með glæpa- og skemmdarfýsn. Vík-
ingagenið virðist blunda í æðum
okkar Íslendinga enn þann dag í dag
– einkum í sambandi við neyslu
áfengis eða vímuefna sem komið
hafa í stað „mjaðar“ og „berserkja-
sveppa“.
ERFÐAFRÆÐIN er ekkert grín
og samkvæmt lögmálum hennar
hafa hinir ýmsu arfberar parað sig
og makað í aldanna rás þannig að nú
er svo komið að þeir sem lausir eru
við hið andstyggilega meingen vík-
inganna hafa náð að hópa sig saman
í þjóðfélaginu og búa í notalegum
svefnhverfum við himinhátt fer-
metraverð, en lúserarnir híma í
myrku slömminu og spangóla um
nætur og stunda ofbeldisverk.
SELTJARNARNES er gott dæmi
um fyrirmyndarsvefnfélag. Þar sef-
ur kynstofn sem tekist hefur að
rækta burt víkingagenið úr æðum
sér og hefur lært að byggja lífs-
afkomu sína á andlegum yfirburðum
fremur en líkamlegum styrk. Það er
því sorglegt að vita til þess að slíkt
fólk skuli þurfa að liggja andvaka
um nætur af ótta við að lúserar með
gen víkinganna í æðum komi inn
fyrir þorpsmörkin til að stela og
gera stykki sín á innbrotsstöðum.
EFTIRLITSMYNDAVÉLAR við
bæjarmörkin gætu verið skamm-
tímalausn á þessum vanda þannig að
löggan geti fylgst með ferðum utan-
bæjarmanna sem eru á spjaldskrá
yfir lúsera, en til lengri tíma litið
fæst varla lausn á þessu máli fyrr
en tekist hefur að greina víkinga-
genið, svo að hægt verði að safna
öllum arfberum víkingagensins sam-
an í Ódáðahrauni þar sem þeir geta
útrýmt hver öðrum. Þangað til verða
Seltirningar Íslands að verja sig fyr-
ir undirmálsfólki með gaddavírs-
girðingum, eftirlitsmyndavélum og
harðsnúinni löggæslu. ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR