Fréttablaðið - 21.01.2005, Síða 26
HÁKARLSTARTAR
á rúgbrauði
10 bitar hákarl
Hálf kartafla, soðin
1 tsk. Capers
1/4 rauðlaukur, fínt saxaður
Öllu blandað saman og mótað ofan á
rúgbrauðið.
Rauð paprika er sæt, safarík, litrík og uppfull af góðum
vítamínum. Miðað við þyngd er rauð paprika með þrisvar
sinnum meira C vítamín en sítrus ávöxtur. Þar að auki er í
henni beta-karóten, trefjar og B6-vítamín. Hana er bæði hægt
að borða hráa eða elda á ótal marga vegu.[ ]
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
Bragðgóðar og frískandi mintur sem minnka
matarlyst og auka brennslu.
Þú færð Slim Mints í verslunum um land allt
MEGRUNARMINNTUR
sími 568 6440
ÚTS
ALA
Nýtískulegur þorramatur
Flestir eru eflaust sammála
um að þorramaturinn sé frek-
ar litlaus og því ákváðum við
hjá Fréttablaðinu að krydda
hann aðeins.
Það verður seint sagt að þorra-
maturinn okkar sé fallegur á að
líta, og það er ekki hver sem er
sem getur gert hann fegurri og
lystugri fyrir þá sem vilja smá
lit í tilveruna og tilbreytingu.
Þó að þorramaturinn með öllu
tilheyrandi fáist ekki á Tapas-
barnum á Vesturgötu 3b í
Reykjavík tóku kokkarnir þar,
þeir Borgþór Egilsson og Steinar
Þór Þorfinnsson, það að sér að
útbúa fallegan þorramat.
„Þetta var mjög gaman og
vissulega verðug áskorun. Þetta
er náttúrlega nýr markaður fyrir
okkur og við reyndum fyrst að
vinna með hráefni sem við höf-
um hér á staðnum. Þegar það
gekk ekki þurftum við að leita
víðar og leyfa ímyndunaraflinu
að ráða því þetta er vissulega
sérstakur matur. Það var frekar
erfitt að gera hann nýtískulegan
en okkur finnst alltaf gaman að
prófa eitthvað nýtt,“ segja þeir
félagar og reiða fram hvern
girnilegan réttinn á fætur öðr-
um. Þó að réttirnir líti vel út full-
vissa þeir Borgþór og Steinar
lesendur um að hver sem er geti
spreytt sig á þessum uppskrift-
um á þorranum. ■
HARÐFISKUR Í BÚRI
með Aioli
Tilbúinn harðfiskur út úr búð.
Aioli:
2 eggjarauður
1 bökuð kartafla
1 tsk. Dijon-sinnep
1 msk. vatn
1 kraminn hvítlauksgeiri
4 saffranþræðir
2 dl ólífuolía
Allt nema olía er maukað saman í mat-
vinnsluvél. Olíu hellt út í í mjórri bunu. Ef
sósan þykknar er hægt að bæta við vatni
svo skilji ekki. Salt og pipar eftir smekk. HRÚTSPUNGAR
með rauðlaukssultu, rófustöppu og
súrsuðu chili
1 rauðlaukur skorinn í sneiðar
4 msk. sykur
1 dl rauðvín
1 dl Balsamico edik
Rauðlaukur er steiktur á pönnu. Sykurinn er
látinn á pönnuna og laukurinn látinn kar-
mellast í honum. Rauðvíni og ediki er bætt
út í og þetta er soðið þangað til laukurinn
er orðinn sultaður. Lauksneiðar eru settar á
milli hrútspungasneiða, chili ofan á, rófu-
stappa til hliðar og edik sem skreyting.
SVIÐASULTA
með klettasalati og pestó
Ný sviðasulta
Klettasalat
Hnífsoddur af Maldon-salti og
grófum svörtum pipar
Ristaðar furuhnetur
Ólífuolía
Sviðasulta borin fram eins og
hún kemur. Klettasalat er
bleytt með ólífuolíu og salt og
pipar sett á. Furuhnetur eru
settar ofan á.
REYKTUR MAGÁLL OG
MELÓNA
Magáll skorinn í sneiðar og
melónubitum stráð yfir.
STEIKT LIFRARPYLSA
Linsubauna ragú:
(það sem er undir lifrapylsunni)
Nýsoðin lifrarpylsa
1/2 laukur
4 sneiðar beikon
1 dl linsubaunir
3 dl vatn
1 tsk. kjúklingakraftur
Laukur og beikon léttsteikt.
Baunir settar út í og aðeins
steiktar. Vatni og kjúklingakrafti
bætt við. Soðið þangað til
baunir eru meyrar.
BOURGOGNE-SÓSA:
1/2 laukur
5 sneiðar beikon
4 sveppir
2 dl rauðvín
1/2 l vatn
1 msk. nautakraftur
Smá sósulitur
2 msk. Balsamico edik
2 msk. smjör
(til að þykkja sósuna eftir smekk)
Laukur, beikon og sveppir létt-
steikt. Rauðvín sett út í og látið
sjóða niður um 2/3. Vatni,
nautakrafti, sósulit, ediki og
smjöri bætt út í og látið malla
þangað til tilbúið.
PESTÓ
1 búnt basil
1/2 búnt steinselja
1 msk. furuhnetur
2 msk. rifinn parmesan ostur
2 dl ólífuolía
Salt og pipar eftir smekk
Allt sett í matvinnsluvél og
maukað saman og borið fram
með sviðasultunni.
SÚRT SLÁTUR
með kjötseyði
Súrt slátur
4 dl vatn
1 1/2 tsk. nautakraftur
Gulrætur – fínt skornar
Tómatkjöt – fínt skorið
Basil – skorið í strimla
Vatn og nautakraftur látið sjóða. Gulrætur,
tómatkjöt og basil sett út í þegar blandan
sýður. Sett í skál og slátrið ofan á.