Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.01.2005, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 21.01.2005, Qupperneq 26
HÁKARLSTARTAR á rúgbrauði 10 bitar hákarl Hálf kartafla, soðin 1 tsk. Capers 1/4 rauðlaukur, fínt saxaður Öllu blandað saman og mótað ofan á rúgbrauðið. Rauð paprika er sæt, safarík, litrík og uppfull af góðum vítamínum. Miðað við þyngd er rauð paprika með þrisvar sinnum meira C vítamín en sítrus ávöxtur. Þar að auki er í henni beta-karóten, trefjar og B6-vítamín. Hana er bæði hægt að borða hráa eða elda á ótal marga vegu.[ ] SÓMABAKKAR Nánari uppl‡singar á somi.is *Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr. PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING* Bragðgóðar og frískandi mintur sem minnka matarlyst og auka brennslu. Þú færð Slim Mints í verslunum um land allt MEGRUNARMINNTUR sími 568 6440 ÚTS ALA Nýtískulegur þorramatur Flestir eru eflaust sammála um að þorramaturinn sé frek- ar litlaus og því ákváðum við hjá Fréttablaðinu að krydda hann aðeins. Það verður seint sagt að þorra- maturinn okkar sé fallegur á að líta, og það er ekki hver sem er sem getur gert hann fegurri og lystugri fyrir þá sem vilja smá lit í tilveruna og tilbreytingu. Þó að þorramaturinn með öllu tilheyrandi fáist ekki á Tapas- barnum á Vesturgötu 3b í Reykjavík tóku kokkarnir þar, þeir Borgþór Egilsson og Steinar Þór Þorfinnsson, það að sér að útbúa fallegan þorramat. „Þetta var mjög gaman og vissulega verðug áskorun. Þetta er náttúrlega nýr markaður fyrir okkur og við reyndum fyrst að vinna með hráefni sem við höf- um hér á staðnum. Þegar það gekk ekki þurftum við að leita víðar og leyfa ímyndunaraflinu að ráða því þetta er vissulega sérstakur matur. Það var frekar erfitt að gera hann nýtískulegan en okkur finnst alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt,“ segja þeir félagar og reiða fram hvern girnilegan réttinn á fætur öðr- um. Þó að réttirnir líti vel út full- vissa þeir Borgþór og Steinar lesendur um að hver sem er geti spreytt sig á þessum uppskrift- um á þorranum. ■ HARÐFISKUR Í BÚRI með Aioli Tilbúinn harðfiskur út úr búð. Aioli: 2 eggjarauður 1 bökuð kartafla 1 tsk. Dijon-sinnep 1 msk. vatn 1 kraminn hvítlauksgeiri 4 saffranþræðir 2 dl ólífuolía Allt nema olía er maukað saman í mat- vinnsluvél. Olíu hellt út í í mjórri bunu. Ef sósan þykknar er hægt að bæta við vatni svo skilji ekki. Salt og pipar eftir smekk. HRÚTSPUNGAR með rauðlaukssultu, rófustöppu og súrsuðu chili 1 rauðlaukur skorinn í sneiðar 4 msk. sykur 1 dl rauðvín 1 dl Balsamico edik Rauðlaukur er steiktur á pönnu. Sykurinn er látinn á pönnuna og laukurinn látinn kar- mellast í honum. Rauðvíni og ediki er bætt út í og þetta er soðið þangað til laukurinn er orðinn sultaður. Lauksneiðar eru settar á milli hrútspungasneiða, chili ofan á, rófu- stappa til hliðar og edik sem skreyting. SVIÐASULTA með klettasalati og pestó Ný sviðasulta Klettasalat Hnífsoddur af Maldon-salti og grófum svörtum pipar Ristaðar furuhnetur Ólífuolía Sviðasulta borin fram eins og hún kemur. Klettasalat er bleytt með ólífuolíu og salt og pipar sett á. Furuhnetur eru settar ofan á. REYKTUR MAGÁLL OG MELÓNA Magáll skorinn í sneiðar og melónubitum stráð yfir. STEIKT LIFRARPYLSA Linsubauna ragú: (það sem er undir lifrapylsunni) Nýsoðin lifrarpylsa 1/2 laukur 4 sneiðar beikon 1 dl linsubaunir 3 dl vatn 1 tsk. kjúklingakraftur Laukur og beikon léttsteikt. Baunir settar út í og aðeins steiktar. Vatni og kjúklingakrafti bætt við. Soðið þangað til baunir eru meyrar. BOURGOGNE-SÓSA: 1/2 laukur 5 sneiðar beikon 4 sveppir 2 dl rauðvín 1/2 l vatn 1 msk. nautakraftur Smá sósulitur 2 msk. Balsamico edik 2 msk. smjör (til að þykkja sósuna eftir smekk) Laukur, beikon og sveppir létt- steikt. Rauðvín sett út í og látið sjóða niður um 2/3. Vatni, nautakrafti, sósulit, ediki og smjöri bætt út í og látið malla þangað til tilbúið. PESTÓ 1 búnt basil 1/2 búnt steinselja 1 msk. furuhnetur 2 msk. rifinn parmesan ostur 2 dl ólífuolía Salt og pipar eftir smekk Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman og borið fram með sviðasultunni. SÚRT SLÁTUR með kjötseyði Súrt slátur 4 dl vatn 1 1/2 tsk. nautakraftur Gulrætur – fínt skornar Tómatkjöt – fínt skorið Basil – skorið í strimla Vatn og nautakraftur látið sjóða. Gulrætur, tómatkjöt og basil sett út í þegar blandan sýður. Sett í skál og slátrið ofan á.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.