Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 2
2 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Efnahagsspá fyrir árin 2005 til 2010: Fasteignaverð hækkar áfram FASTEIGNIR Þess má vænta að fast- eignaverð eigi eftir að hækka nokkru meira á næstunni, sam- kvæmt endurskoðaðri efnahags- spá fjármálaráðuneytisins fyrir árin 2005 til 2010. Búist er við því að verðið hækki þar til framboð á nýju hús- næði jafnast á við eftirspurn. Spáð er að í ár verði lokið við hátt í 3.000 íbúðir, sem er um 1.200 íbúðir umfram árlega þörf lands- manna. Að mati fjármálaráðu- neytisins bendir það til þess að jafnvægi myndist á fasteigna- markaði fyrr en seinna og jafnvel á næsta ári. Könnun á aðstæðum á bygg- ingamarkaði á höfuðborgarsvæð- inu bendir til að lóðaframboð í Reykjavík verði ekki aukið til að mæta allri byggingareftirspurn og því eru það einkum byggingaverk- takar sem þegar eiga lóðir sem geta mætt aukningu hennar. Á höfuðborgarsvæðinu hefur fram- boð á lóðum aukist mest í Mosfells- bæ og Hafnarfirði en talsvert meira hefur verið byggt af íbúðum á öllu suðvesturhorninu frá Akra- nesi til Árborgarsvæðis og svo á Reykjanesi. – ghg Hvíta húsið með yfirlýsingu Davíðs Í yfirlýsingu Davíðs Oddssonar frá 18. mars 2003, sem finna má á vef Hvíta hússins, vísar hann til yfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar um deilurnar í Írak. Ekki var hægt að fá uppgefið frá ráðuneytum hvaða yfirlýsingar var verið að vísa til. ÍRAKSMÁLIÐ Á heimasíðu Hvíta hússins er að finna yfirlýsingu frá Davíð Oddssyni, fyrrverandi for- sætisráðherra, sem dagsett er 18. mars 2003, sama dag og hann tók þá ákvörðun ásamt Halldóri Ás- grímssyni að Íslendingar styddu innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak. Yfirlýsingin er svohljóðandi: „Bandaríkin líta nú svo á að ör- yggi þeirra sé stórlega í hættu gagnvart gjörðum og árásum hryðjuverkamanna og vegna fjölda hótana frá löndum sem stjórnað er af einræðisherrum og harðstjórum. Þau trúa því að stuðningur frá þessu litla landi hafi að segja... Yfirlýsingin sem íslenska ríkisstjórnin gaf út varð- andi deilurnar í Írak felur það í sér að við munum halda áfram þeirri nánu samvinnu sem við höfum haft við hinn öfluga banda- mann okkar í vestri. Í fyrsta lagi felur þetta í sér leyfi til þess að fljúga yfir íslenska lofhelgi. Í öðru lagi leyfi til að nota Keflavíkurflugvöll ef þörf er á. Í þriðja lagi munum við taka þátt í uppbyggingu í Írak eftir að stríði lýkur. Í fjórða lagi lýsum við yfir pólitískum stuðn- ingi við að ályktun 1441 sé fram- fylgt eftir fjögurra mánaða töf.“ Í yfirlýsingu Davíðs kemur fram að íslenska ríkisstjórnin hafi gefið út yfirlýsingu varðandi deil- urnar í Írak. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í viðtali í Kastljósinu 6. desember síðastlið- inn, þegar hann var spurður hvort ríkisstjórnin hefði samþykkt að styðja innrásina í Írak: „Það var engin formleg samþykkt gerð um það í ríkisstjórn“. Fréttablaðið óskaði eftir svör- um frá utanríkisráðuneytinu um það hvaða yfirlýsingar Davíð væri að vísa til. Illugi Gunnars- son, aðstoðarmaður utanríkisráð- herra, vildi þetta eitt um málið segja: „Bandarískum yfirvöldum var tilkynnt ákvörðun forsætis- ráðherra og utanríkisráðherra eftir að hún lá fyrir.“ sda@frettabladid.is 24 ára Íslendingur: Tekinn með hass í Svíþjóð FÍKNIEFNI 24 ára Íslendingur var tekinn með tvö kíló af hassi í Malmö í Svíþjóð á þriðjudaginn í síðustu viku. Hann var að koma frá Danmörku þegar hann var tekinn með hassið falið í bíl sín- um. Í kjölfarið var hann úrskurð- aður í gæsluvarðhald og er hann enn í haldi sænsku lögreglunnar. Maðurinn hefur komið lítillega við sögu lögreglu hér á landi. Í september sinnti hann ekki stöðv- unarmerkjum við eftirför lög- reglu og nam ekki staðar fyrr en hann ók á ómerkta lögreglubif- reið. Hann var ölvaður og hafði fíkniefni undir höndum. - hrs Sérkennileg sjóferð: Drukkinn á trillu LÖGREGLUMÁL Maður á fimmtugs- aldri var handtekinn fyrir að sigla trillu undir áhrifum áfengis við Árskógsströnd á þriðjudag. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögregl- unni á Dalvík barst henni tilkynn- ing um klukkan 17.30 um ein- kennilega siglingu trillu úti fyrir ströndinni. Maðurinn í bátnum sigldi trill- unni að lokum stórslysalaust í land og var handtekinn í kjölfarið grunaður um ölvun. Björgunar- sveitin við Árskógsströnd kom trillunni aftur á flot. Manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku en málið er í rannsókn. Hann mun hafa komist í kast við lögin áður fyrir svipað athæfi. - bs Handteknir með dóp: Með 160 grömm af hassi LÖGREGLUMÁL Þrír menn voru handteknir með 160 grömm af hassi og nokkur grömm af am- fetamíni við Hvalfjarðargöngin um tvöleytið aðfaranótt mið- vikudags. Að sögn lögreglunnar á Akranesi þótti lögreglumönn- um ástæða til að stöðva bílinn þegar hann kom úr göngunum og við leit í honum fundust fíkni- efnin en talið er að þau hafi verið ætluð til sölu. Mennirnir voru á leiðinni til Akureyrar og munu allir vera þaðan. Sá yngsti þeirra er sautján ára, annar tvítugur og sá þriðji tæplega þrítugur og hafa allir komið við sögu lögreglu áður. Mönnunum var sleppt að lokinni yfirheyrslu og málið er í rannsókn. - bs SPURNING DAGSINS Ásthildur, vantar ekki land- nema á Jan Mayen? „Ætli ég og eiginmaðurinn fengjum landvistarleyfi þar.“ Ásthildur Albertsdóttir og eiginmaður hennar Said Hassan hafa kært ákvörðun Útlendinga- stofnunar um að vísa Hassan úr landi. Þeim finnst þau fá kaldar kveðjur frá stofnuninni, sem segir því ekkert til fyrirstöðu að þau búi saman utan Ís- lands. Öldungadeildin: Staðfesti skipan Rice BANDARÍKIN, AP Öldungadeild Bandaríkjaþings staðfesti í gær skipun Condoleezza Rice í emb- ætti utanríkisráðherra. 85 þing- menn greiddu atkvæði með skip- un Rice en þrettán á móti. Það hefur ekki gerst frá lokum seinni heimsstyrjaldar að svo margir þingmenn hafi greitt atkvæði gegn skipan utanríkisráðherra. Fjöldi þingmanna gagnrýndi utanríkisstefnu Bandaríkjanna og þátt Rice í mótun hennar þó þeir greiddu ekki allir atkvæði gegn skipun hennar. ■ Kyoto-bókunin: Nægur kvóti til mengunar ALÞINGI Lítil hætta er á að farið verði fram úr heimildum Kyoto- bókunarinnar á losun gróður- húsalofttegunda á fyrsta skuld- bindingartímabil- inu frá 2008 til 2012. Sigríður Anna Þórðardóttir um- hverfisráðherra svaraði þannig fyrirspurn Þórunnar Sveinbjarn- ardóttur í Samfylkingunni á Al- þingi í gær. Þórunn spurði hvern- ig tryggja ætti að losun gróður- húsalofttegunda færi ekki fram úr heimildum samningsins. Sigríður sagði stóriðjufyrir- tæki hafa mengunarkvóta og yrðu að gera eigin ráðstafanir þyrftu þau að auka hann. - gag DAVÍÐ ODDSSON OG HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Í yfirlýsingu Davíðs á vef Hvíta hússins frá 18. mars 2003 segir: „yfirlýsingin sem íslenska ríkisstjórnin gaf út varðandi deilurnar í Írak felur það í sér að við munum halda áfram þeirri nánu samvinnu sem við höfum haft við hinn öfluga bandamann okkar í vestri“. NÝBYGGING Lokið verður við byggingu hátt í 3.000 íbúða á þessu ári. Heimilisofbeldi: Ofbeldismenn yfirgefi heimili LAGAFRUMVARP Kolbrún Halldórs- dóttir, þingmaður Vinstri grænna, lagði á Alþingi í gær fram frum- varp um að auka heimildir lög- reglu til að vísa manni af heimili sínu ef hann beitir eða hótar öðru heimilisfólki ofbeldi. Að sögn Kolbrúnar er þetta frumvarp lagt fram til að sporna við heimilisofbeldi gegn konum og börnum en ofbeldi gegn konum sé útbreiddasta mannréttindabrot heims. Frumvarpið er samið að austurrískri fyrirmynd og sagði Kolbrún að þar í landi hefði það gefist vel og heimilisofbeldi minnkað í kjölfar þess. Hún sagði það staðreynd að of- beldi gegn konum væri oftast framið af sambýlismönnum þeirra innan veggja heimilisins þar sem þeir nytu friðhelgi, en fórnarlömbin þyrftu að flýja und- an okinu. Með þessari lagabreyt- ingu væri það ofbeldismaðurinn sem væri fjarlægður af heimilinu og gæti lögreglan gert það að eig- in frumkvæði. Ágúst Ólafur Ágústsson tók undir með Kolbrúnu og sagðist vona að þetta mál yrði rætt og samþykkt á þingi þar sem heimil- isofbeldi væri týndur brotaflokk- ur í íslensku réttarkerfi. - bs KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR Segir ofbeldi gegn konum útbreiddasta mannréttindabrot í heimi. LITHÁI SÓTTUR TF-LIF sótti slas- aðan litháískan sjómann í togara 135 sjómílur austsuðaustur af Vestmannaeyjum seinnipartinn í gær. Maðurinn var með opið lær- brot og var fluttur á neyðarmót- töku Landspítala – háskólasjúkra- húss í Fossvogi í Reykjavík. ■ SJÚKRAFLUG SIGRÍÐUR ANNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.