Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 8
1Hættu á ofneyslu hvað vítamíns gætirhjá neytendum Hollywood-kúrsins?
2Hver er meðalaldur kvenna hérlendissem fæða sitt fyrsta barn?
3Hve margir eru taldir af vegna flóð-bylgjunnar í Asíu?
SVÖRIN ERU Á BLS. 38
VEISTU SVARIÐ?
8 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
HAMFARIR Hjálparstarf Rauða
krossins hefur nú náð til fleiri en
500.000 manna í þeim löndum sem
urðu illa úti í flóðbylgjunni í des-
ember.
Félög Rauða krossins og Rauða
hálfmánans um allan heim hafa
safnað sem nemur tæplega 80
milljörðum íslenskra króna til
hjálpar- og uppbyggingarstarfs á
hamfarasvæðunum. Af þeirri
upphæð koma 85 prósent úr fjár-
söfnunum meðal almennings.
„Fólk á Íslandi og um allan
heim hefur brugðist óhemju vel
við og reyndar svo vel að nú telj-
um við okkur geta staðið myndar-
lega að hjálpar- og uppbyggingar-
starfi á flóðasvæðunum til næstu
ára með því fé sem safnast hefur,“
segir Sigrún Árnadóttir fram-
kvæmdastjóri RKÍ, sem kveður
Rauða krossinn ekki munu halda
áfram fjársöfnun vegna flóðanna.
Á þeim 31 degi sem liðinn er
frá jarðskjálftanum hafa 77 flug-
vélar hlaðnar hjálpargögnum og
18 sérhæfðar neyðarsveitir verið
sendar á hamfarasvæðin á vegum
Rauða krossins. Alls hafa níu þús-
und þjálfaðir sjálfboðaliðar og
300 alþjóðlegir sendifulltrúar
unnið að hjálparstörfum á vett-
vangi. Á vegum RKÍ eru fimm
sendifulltrúar við hjálparstörf á
skaðasvæðum og tveir til viðbótar
fara utan á næstu dögum.
- jss
Hætti við sjálfsvíg á síðustu stundu en olli mannskæðu slysi:
Tíu létust í sjálfsvígstilraun
BANDARÍKIN, AP Tíu létu lífið þegar
maður í sjálfsvígshugleiðingum
ók í veg fyrir lest í úthverfi Los
Angeles. Sjálfur hætti maðurinn
hins vegar við sjálfsvígið á síð-
ustu stundu, fór út úr bílnum rétt
áður en lestin lenti á honum og
slapp því lifandi.
Lestin fór út af spori sínu þegar
hún lenti á bílnum og kastaðist á
lest sem var á leið í hina áttina.
Lestirnar lentu báðar á hliðinni og
slösuðust um 200 manns, margir
hverjir lífshættulega.
Maðurinn sem lagði bílnum í
veg fyrir lestina verður að líkind-
um ákærður fyrir manndráp.
Lestarslysið í gær er hið mann-
skæðasta í tæp sex ár, síðan ellefu
létust þegar lest lenti á bíl í Illi-
nois. ■
Dómurinn gæti haft
áhrif á kjarasamninga
Hæstaréttarlögmaður segir nýjasta Akureyrardóminn geta haft áhrif á gerð
kjarasamninga háskólastétta. Hefðbundnar kvennastéttir gætu leitað eftir því
að bera sig saman við hefðbundin karlastörf líkt og gert var í dómnum.
KJARAMÁL „Niðurstaða Hæstarétt-
ar í máli Guðrúnar Sigurðardóttur
gegn Akureyrarbæ markar tíma-
mót varðandi launamun kynj-
anna,“ segir Sif Konráðsdóttir
hæstaréttarlögmaður, sem fór
með mál Guðrúnar.
Hæstiréttur staðfesti að starf
Guðrúnar, sem deildarstjóra á fé-
lagsmálastofnun Akureyrarbæj-
ar, væri jafnverðmætt og starf
deildartæknifræðings hjá sama
bæjarfélagi og því ættu laun
þeirra að vera sambærileg.
Að sögn Sifjar staðfestir hann
dóm Hæstaréttar frá 2000 þar
Akureyrarbæ var gert að leið-
rétta kynbundinn launamismun
hjá kvenkyns jafnréttisfulltrúa
bæjarins og karlkyns atvinnu-
málafulltrúa, en gengur jafn-
framt skrefi lengra því dómurinn
nú varðar störf á gjörólíkum svið-
um. Hún bendir á að með dómnum
sé einnig gengið lengra en kæru-
nefnd jafnréttismála hefur viljað
gera hingað til. Dómurinn grund-
vallast á starfsmati sem Akureyr-
arbær lét gera um störf á vegum
bæjarins 1995.
„Dómurinn gæti hugsanlega
haft á kjarasamninga háskóla-
stétta, en í málinu voru stjórnun-
arstöður taldar jafn verðmætar
sem krefjast háskólamenntunar
annars vegar á sviði félagsvísinda
og hins vegar tæknifræði,“ segir
Sif.
„Hins vegar er erfitt fyrir kon-
ur að fá samanburð á störfum og
því erfitt að ná fram leiðréttingu á
kjörum hefðbundinna kvenna-
stétta miðað við hefðbundin karla-
störf,“ bendir Sif á.
Gísli Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Bandalags háskóla-
manna, tekur undir þetta og segir
að staðfestur launamunur sé milli
kynjanna. „Almennt skortir að-
ferðafræði við að bera saman ólík
störf. Í þessum dómi var aðferða-
fræðin til staðar og vildi ég óska
þess að svo væri víðar svo stórar
hefðbundnar kvennastéttir há-
skólamenntaðs fólks gætu borið
kjör sín saman við það sem þær
teldu sambærilegt,“ segir Gísli.
„Ég er á því að hækka eigi laun
hefðbundinna kvennastétta innan
BHM sérstaklega. Þeir sem semja
um kjör hafa rétt og skyldu til
þess að koma í veg fyrir að kjara-
samningar feli í sér kerfisbund-
inn launamun kynja eins og mig
grunar að þeir geri,“ segir hann.
Hann segir það umdeilanlegt
hversu mikil áhrif á sjálfstæðan
samningsrétt þessi dómur hafi.
„Vonandi hefur þó enginn þá
stefnu að viðhalda í kjarasamn-
ingum kerfisbundnum launamun.
Það hvílir frekar á vinnuveitend-
um að leiðrétta þann launamun
sem allir sjá að er til staðar milli
hefðbundinna kvenna- og karla-
stétta,“ segir Gísli.
sda@frettabladid.is
■ MIÐ-AUSTURLÖND
SIGRÚN ÁRNADÓTTIR
Framkvæmdastjóri RKÍ segir að fjársöfnun verði ekki haldið áfram.
Rauði krossinn á hamfarasvæðunum:
Aðstoðar meira en
hálfa milljón manna
GÍSLI TRYGGVASON
„Ég er á því að hækka eigi laun kvenna-
stétta innan BHM sérstaklega. Þeir sem
semja um kjör hafa rétt og skyldu til þess
að koma í veg fyrir að kjarasamningar feli í
sér kerfisbundinn launamun kynja eins og
mig grunar að þeir geri.“
SIF KONRÁÐSDÓTTIR
„Dómurinn gæti hugsanlega haft áhrif á
kjarasamninga háskólastétta, en í málinu
voru stjórnunarstöður taldar jafn
verðmætar sem krefjast háskólamenntunar
annars vegar á sviði félagsvísinda og hins
vegar tæknifræði.“
SLÖSUÐ KONA FLUTT Á SJÚKRAHÚS
Á fjórða hundrað slökkviliðsmenn komu
að björgunarstarfi þar sem tíu manns
létust í lestarslysi.
Loðna:
Minni veiði
VEIÐAR Heldur rólegra hefur ver-
ið yfir loðnuveiðum í vikunni en
vikunni þar á undan. Að sögn
Freysteins Bjarnasonar, fram-
kvæmdastjóra útgerðar Síldar-
vinnslunnar, er skýringin sú að
loðnan er nú í hitaskilum um eitt
hundrað sjómílur austur af
Norðfjarðarhorni og þá dreifist
hún og verður erfiðari viðfangs.
„Nótaskipin hafa verið að reka í
ágætan afla en verr hefur geng-
ið hjá þeim sem eru með troll.
Ég á von á loðnunni út úr hita-
skilunum um helgina og þá kem-
ur hún upp að Lónsbugtinni eða
Reyðarfjarðardýpi, þéttist á ný
og við mokum henni upp,“ sagði
Freysteinn. - kk
TAKI VIÐ LÖGGÆSLU Mahmoud
Abbas, forseti palestínsku heima-
stjórnarinnar,
hefur sagt yfir-
mönnum palest-
ínskra öryggis-
sveita að vera
því viðbúnir að
taka við lög-
gæslu í fimm borgum á Vestur-
bakkanum innan tíu daga. Borg-
irnar eru Betlehem, Jeríkó,
Qalqiliya, Ramalla og Tulkarem.
MYRTI DÓTTUR SÍNA Kúvæskur
karlmaður skar þrettán ára dótt-
ur sína á háls þegar hann sneri
aftur úr pílagrímsferð til Mekka í
Sádi-Arabíu. Að sögn lögreglu var
hann íslamskur bókstafstrúar-
maður sem átti sakaferil að baki.