Fréttablaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 44
munur á Skítamóral og Mínus. Húðflúr,
hvort sem þau eru fengin að fyrirmynd
úr bíómynd eða hafa persónulega
skírskotun, eru í tísku bæði hjá hnökkum
og rokkurum. Nonnabúð og Dogma eru
ekki lengur rokkarabúðir, heldur eru þær
fyrir bæði rokkara og hnakka. Það hefur
því orðið til nýr hópur, ný tíska sem er
hálfgerð samsuða þessara tveggja hópa,
hinir svokölluðu rokk – hnakkar. Það
eina sem aðskilur þá er í raun að í stað
þess að lykta af reyk og brennivíni bera
rokkhnakkaranir ennþá með sér sætan
ilm kölnarvatns.
Krúttin markaðsvædd
Krúttkynslóðin varð til fyrir um fimm
árum og höfðu margir á orði að hér væri
kominn fram hópur sem stæði á sama um
allt, ekki skipti máli hvort skórnir væru
gatslitnir og sokkarnir í mismunandi lit.
„Tískan er trunta“ virtist vera slagorð-
ið, enda var upphaflega um að
ræða fólk sem var orðið þreytt á
öfgafullri markaðsvæðingu list-
arinnar.
En eins allir jaðarhópar
urðu „krúttin“ markaðsöflun-
um að bráð, og nú þurfti að
finna réttu „krútt“-merkin og
reyna að sýnast eins mikið
sama og hugsast gæti. Þetta
þýddi langar stundir fyrir framan
spegilinn, í þeirri von að finna eitt-
hvað sem léti fólk sýnast vera nógu
mikið sama um útlitið. Og fljót-
lega, eftir að Sigur Rós, Gabríella
og Daníel Ágúst höfðu rutt braut-
ina, reis krúttkynslóðin upp á fæt-
urna, markaðsvæddist og kom fram
sem tískuhópur. Ekki var lengur
flott að vera bara í hverju sem er,
heldur varð nú að velja fötin til þess
að þau litu út fyrir að vera valin á síð-
ustu stundu, en sem hafði í raun tekið
óratíma að finna þessa samblöndu. Óreið-
an varð að reglu, hið ósamsetta varð sam-
sett.
Fyrirhafnarlaus Mugison
En af öllum mönnum er það sjálfur
Mugison sem er að verða eitt helsta
tískutáknið í dag. Hann þykir hafa
smekklegt val á því að vera mitt á milli
þess að vera rokkari og krútt. Hann er
því ef til vill tákn fyrir hina nýju kynslóð,
sem er mótuð af poppmenningu, list-
hneigð og því að standa á sama. Hann er
meðvitaður um það sem er að gerast í
kringum hann, hlustar á vinsældapopp
og hefur skoðanir á þjóðmálunum. Það
er því ef til vill ekki Mugison sjálfur,
heldur það sem hann stendur fyrir. Að
vera mitt á milli þess að vera alveg sama
og standa alls ekki á sama um útlitið.
Það er ekki auðvelt
að festa hönd á
tískunni í dag. Hver
ólíki hópurinn virð-
ist líkjast öðrum.
FM-hnakkarnir eru
allt í einu orðnir
rokkarar, eða eru
rokkararnir orðnir
FM-hnakkar? Freyr
Gígja Gunnarsson
skoðaði málið.
Tískan í dag er ekki alls kostar auðvelt
viðfangsefni, en eins og alltaf koma fyrir-
myndirnar frá þeim sem standa í sviðs-
ljósinu. Fyrir þremur árum kom orðið
hnakki fyrst fram, var þá átt við sykur-
sætu sólbekkjabrúnu strákana sem voru
vel rakaðir í andlitinu, í Buffalo-skóm,
fötum frá Mótor og ilminn af ilmvatninu
lagði um allt. Í dag er þessi hópur að
verða að minnihluta, finnst aðallega í
vaxtarræktarsölum. Hnakkarnir urðu
nefnilega fyrir uppljómun þegar fyrir-
myndir á borð við Justin Timberlake,
Robbie Williams og ekki síst David
Beckham brutust fram, klæddir eins
og rokkarar, húðflúraðir í bak og
fyrir.
Margir fylgismenn hnakkatísk-
unnar ákváðu því að leita í
smiðju rokkaranna, keyptu
sér keðjur í gallbuxurnar,
stóra hringa og létu sér
vaxa grön, nokkuð sem
hefði verið óhugsandi
fyrir þessa snyrtip-
inna að gera fyrir
nokkrum árum.
Þeir hafa því á
skömmum tíma
orðið að hörðum
nöglum sem hlusta á
sykursæta tónlist hljóm-
sveita eins og Blue. Aðrir
urðu eftir, eins og Heiðar
Austmann og Ásgeir Kol-
beins, sem hafa haldið
hnakkatískunni hátt á lofti
á Popptíví.
Rokkararnir í Mínus hafa
verið áberandi undanfarin tvö
ár, hvort sem það er
fyrir yfirlýsingar sín-
ar eða klæðaburð. En
í fljótu bragði virðist
ekki vera mikill
Allir vilja vera rokkarar
HNAKKARNIR
HNUPLA HRÁA STÍLNUM
F2 12 27. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Skítamórall
Það hefur margt breyst síðan Skítamórall kom fyrst fram í jakkafötunum frægu. Þeir voru tákn fyrir Mótor og Moonboots, hina
sönnu hnakkatísku, en eru nú orðnir harðir rokkarar hvað útlitið varðar.
David Beckham Hann er tvímælalaust eitt
helsta tískutákn 21. aldarinnar. Hann bland-
ar saman rokk- og hnakkatískunni, þannig
að úr verður hinn sanni rokkhnakki.
Mínus Þeir spruttu fram með
miklum látum, og eru nú ráðandi afl
í tískuhugmyndum unga fólksins.
Múm Þau eru önnur kynslóð krúttanna
og virðast leggja eins mikið upp úr að
vera á þeirri línu og þau geta.
Mugison sló í gegn á síðasta ári.
Hann er nýr fánaberi krútt-
kynslóðarinnar, laus við alla tilgerð
og fyrirhöfn.
Gamli góði pólóbolurinn hefur fengið nýtt líf. Miuccia Prada veðjar á
hann í vorlínum sínum, bæði hjá Prada og hjá litlu systur Miu Miu. Miu
Miu pólóbolirnir eru margvíslegir, ýmist einlitir með skrautlegu lógói á
brjóstinu eða röndóttir. Bolirnir eru mjög litríkir og koma í gulum, app-
elsínugulum og rauðum. Sævar Karl er komin með Miu Miu í verslun
sína en enn sem komið er er bara hluti af línunni fáanlegur. Það eru þó
fleiri hönnuðir hrifnir af pólóbolnum. Marc Jacobs sýnir pólóbolinn
sinn í vorlínunni og pólóbolirnir frá Fred Perry eru klassískir. Svo ekki sé
minnst á Lacoste pólóbolina sem fást í öllum regnbogans litum. Lacoste
bolurinn náði sögulegu hámarki á níunda áratugnum þegar forstjórar
komust upp með að mæta í þeim á skrifstofuna innan undir jakkafötun-
um í stað skyrtu og bindis. Núna er þó annað upp á teningnum. Nú á fólk að nota póló-
bolina við töffaralegar gallabuxur, helst alveg niðurmjóar eða beinar í sniðinu. Við
erum ekki að tala um buxur með „bootcut“ sniði. Það er algerlega dottið út.
Pólóbolurinn lifir
Marc Jacobs pólóbolur
er svalur.
Lacoste klikkar
ekki.
Karen Millen skór smell-
passa við pólóboli.
Miu Miu leggur
línurnar.